Læknablaðið - 01.06.1977, Side 57
LÆKNABLAÐIÐ
113
Hraunbær 102, þar sem heilsugæzlustöðin í Árbæ er til húsa,
starf, frá því að vera aukastarf ýmissa sér-
fræðinga í öðrum greinum, sem að mestu
unnu að sinni eigin sérgrein í praxis eða á
stofnunum. Enn sinna slíkir sérfræðingar
heimilislækningum að 'hluta, oft um
skamma hríð í millibilsástandi þeirra eigin
starfsframa. Einangrun heimilislækna hef-
ur verið mikil en fagleg hvatning lítil. í
Reykjavík sinna þeir engri heilsuvernd og
engum sjúklingum innan veggja sjúkra-
húsa. Heimilislæknum hefur því fækkað
að mun, en álag aukizt á þeim sem eftir
eru. Númerakerfið hefur ekki verkað
hvetjandi til faglegra átaka eða bættrar
þjónustu, og því síður sem sjúklingaálag
hefur aukizt. Nýliðun í faginu hefur því
verið lítil og fjölgun heimilislækna engin.
Er nú almenn skoðun, að númerakerfið
hafi gengið sér til húðar og nauðsyn sé á
endurbótum í heimilislækningum á svipað-
an hátt og lýst er að framan. Má þetta ger-
ast á þann veg, að heimilislæknar hefji
hópstarf með öðrum heilbrigðisstéttum og
hasli sér um leið faglegan völl, sem sér-
menntaðir læknar í 'heimilislækningum, á
svipaðan hátt og starfsbræður þeirra ann-
ars staðar.
Til þess að svo megi verða, þarf einkum
tvennt að koma til:
a) Efling heilsugæzlustöðva.
b) Efling menntunar í heimilislækning-
um.
Um a) vísast til nefndarálits um kennslu
í heilsugæzlustöðvum, sem lagt var fyrir
L.í. þing í september 1976.
Um b). Menntun í heimilislækningum
fari fram á stigi grunnmenntunar, fram-
'haldsmenntunar, viðhalds- og viðbótar-
menntunar.
III. SKILGREINING
Heimilislækningar eru sá hluti heilsu-
gæzlu, er beinist að því að viðhalda og
efla heilbrigði með félags- og fjölskyldu-
viðmiðaðri umsjá til handa ákveðnum hópi
einstaklinga, vita skil á og finna orsaka-
valda og frumstig sjúkleika. Heimilislækn-
ir leitast við að lækna, sjálfur eða í sam-
vinnu við aðra, þá kvilla, sem ljósir eru
orðnir eða framskriðnir, fylgjast með og
halda niðri þeim, sem króniskir eru og
endurhæfa eftir megni þá sjúklinga, sem
fengið hafa takmarkaða bót meina sinna.
Heilbrigðisumsjá þessi sé yfirgripsmikil,