Læknablaðið - 15.08.1982, Blaðsíða 37
LÆKNABLADID
191
NÝIR HEIÐURSFÉLAGAR
LÆKNAFÉLAGS REYKJAVÍKUR
Föstudaginn 4. júní 1982 voru þrem læknum afhent heiðursskjöl í tilefni þess, að þeir höfðu
verið kjömir heiðursfélagar Læknafélags Reykjavíkur. Voru það þeir Bjarni Jónsson, Jón
Sigurðsson og Kristbjörn Tryggvason. Hinn fjórði, Ófeigur J. Ófeigsson, gat ekki verið
viðstaddur athöfnina, þar sem hann var á sjúkrahúsi, en fyrrverandi og núverandi formaður
Læknafélags Reykjavíkur afhentu honum heiðursskjalið síðar.
Hér á eftir fara ávörp Arnar Smára Arnaldssonar og Björns Árdal, svo og pistill Snorra
Páls Snorrasonar um Ófeig J. Ófeigsson.
Örn Smárí Arnaldsson:
Góðir félagar og gestir.
Þegar ég valdist sem formaður Læknafélags
Reykjavíkur í mars 1978, voru tveir heiðursfé-
lagar í félaginu á lífi, Þeir Valtýr Albertsson og
Bergsveinn Ólafsson. Kristján Sveinsson bætt-
ist í hópinn 1980.
Bergsveinn lést í desember 1981. Ef til vill
hafði lát Bergsveins pau áhrif á mig, að ég fór
að hugsa um heiðursfélaga í Læknafélagi
Reykjavíkur.
Engar fastmótaðar reglur eru til um pað í
félagi okkar, hvernig heiðursfélaga skuli velja.
í 6. gr. félagslaga segir svo:
»FéIagið getur kosið sem heiðursfélaga
lækna, vísindamenn eða velunnara félagsins.
Stjórn félagsins tekur ákvörðun um kjör
heiðursfélaga, enda sé löglegur fundur stjórn-
ar og meðstjórnar pví einróma fylgjandi. Val
heiðursfélaga skal tilkynnt á aðalfundi«.
Segja má, að pað sé jafnmikill eða meiri
heiður fyrir félagið að eignast heiðursfélaga
og fyrir einstaklinginn, sem verður fyrir valinu.
Á fundi stjórnar og meðstjórnar, 3. mars 1982,
var sampykkt að kjósa pá Bjarna Jónsson,
Kristbjörn Tryggvason, Jón Sigurðsson og
Ófeig J. Ófeigsson heiðursfélaga Læknafélags
Reykjavíkur. Var peim tilkynnt pessi ákvörðun
sama kvöldið, og að gert væri ráð fyrir
afhendingu heiðursskjala síðar á vorinu, og pví
erum við hér saman komin í dag.
Margir eru betur til pess fallnir en ég að
ræða um dr. Jón Sigurðsson, af peim fjöl-
mörgu, er hann hefur starfað með og kynnst á
lífsleiðinni. Ég hef kynnt mér starfsferil Jóns
og ég hef vissulega séð honum bregða fyrir
öðru hverju frá ég lauk læknanámi. Ég hef
heyrt aðra ræða um hann, og pannig hefur
skoðun mín á manninum mótast. Hann hefur
ætíð verið vingjarnlegur og hlýlegur í allri
framkomu og getið sér gott orð hvarvetna.
Dr. Jón er fæddur í Reykjavík 29. júní 1906.
Mynd 1. Heidursfélagar L. R. 1982 og páverandi formadur félagsins. Frá vinstri: Jón Sigurdsson, Bjarni
Jónsson, Kristbjörn Tryggvason og örn Smári Arnaldsson.