Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2007, Blaðsíða 1
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
s
fréttir
fimmtudagur 15. mars 2007 dagblaðið vísir 23. tbl. – 97. árg. – verð kr. 235
LögregLan tók fíkniefnasaLa sem var að störfum í framhaLdsskóLanum að Laugum:
fréttir
seldi skólafélögum
dóp og er nú í haldi
- skólastjóri segir að dópsalanum verði vikið úr skólanum. sá seki er nítján ára suðurnesjamaður. sjá baksíðu
Guðjón A. Kristjánsson alþingis-
maður er meðal eigenda Björgu
Hauks ÍS sem fórst með tveimur
sjómönnum. Slysið setti sterkan
svip á allt mannlíf á Ísafirði í gær.
Bls. 2.
Sorg á ÍSafirði
>> Ráðherrarnir virðast þreyttir á lokasprett-
inum. Fimmtíu frumvörp eru enn óafgreidd.
DV-Sport
fylgir meðBLS. 8
Þungt yfir þinginu
Fá tugi milljarða í arð
>> Eigendur stærstu fyrirtækja
landsins skammta sér vænar
greiðslur úr sjóðum fyrirtækjanna.
DV Sport fimmtudagur 15. mars 2007 15
sport@dv.is
Chelsea vann Man. City auðveldlega 1-0 í gær og heldur áfraM að narta í hælana á
Man. utd. arsenal vann aston villa Með söMu Markatölu. allt uM ensku leikina á bls.
Íslenska kvennalandsliðið í fót-
bolta vann í gær frábæran 4-1 sigur á
Kína í leik um níunda sætið á Algar-
ve-mótinu. Staðan var markalaus allt
fram á 68. mínútu en þá kom Dóra
María Lárusdóttir íslenska liðinu yfir.
Við þetta kviknaði í okkar stelpum sem
sýndu ótrúlegan leikkafla og skoruðu
þrjú mörk á sjö mínútum. Greta Mjöll
Samúelsdóttir skoraði og svo bætti
Margrét Lára Viðarsdóttir við tveimur
mörkum á tveimur mínútum.
Kínverska liðið náði að minnka
muninn í uppbótartíma en engu að
síður frábær árangur hjá Íslandi enda
Kína í níunda sæti á styrkleikalista
FIFA. „Það kom okkur í sannleika
sagt mjög á óvart hvað við náðum að
vinna stóran sigur. Kínversku stúlk-
urnar fóru að færa sig framar í seinni
hálfleik og við það myndaðist meira
svæði fyrir aftan vörnina sem við
náðum að nýta okkur,“ sagði Margrét
Lára Viðarsdóttir við DV en íslenska
liðið sýndi ótrúlega frammistöðu í
seinni hálfleik.
„Þegar við náðum að skora fyrsta
markið var eins og allur vindur færi úr
þeim. Þá kom líka aukið sjálfstraust í
okkar lið og við hreinlega völtuðum
bara yfir þær. Níunda sterkasta þjóð
í heimi svo þetta eru klárlega frábær
úrslit fyrir okkur. Það var mikill stíg-
andi í liðinu í heild sinni allt mótið.
Fyrsti leikurinn var ekkert sérstakur
en svo vorum við vaxandi og náðum
að ljúka þessu með frábærum leik,“
sagði Margrét.
„Það var frábær stemning í hópn-
um og það skiptir miklu í langri ferð
eins og þessari. Maður hefur ekki
getað kvartað yfir neinu, andinn hef-
ur verið frábær, úrslitin góð og veðr-
ið einnig. Það má því segja að allt hafi
leikið við okkur í þessari ferð,“ sagði
Margrét en hún segir ferðina hafa nýst
liðinu vel. „Við fáum þarna fjóra góða
leiki sem við náðum að nýta okkur vel,
allir leikmenn hafa fengið tækifæri og
mikilvægt fyrir nýjan þjálfara að kynn-
ast liðinu betur.“
Margrét setti nýtt markamet á mót-
inu en hún hefur nú skorað 25 mörk
í þrjátíu landsleikjum sem eru fleiri
mörk en nokkur önnur íslensk kona
hefur skorað. „Það er æðisleg tilfinn-
ing, alltaf gaman að slá met. Það er
samt ekkert sem maður spáir mik-
ið í,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir.
elvargeir@dv.is
Mikill stígandi í liðinu allt Mótið
Bilið minnkar
Sport
Fimmtudagur 15. mars 2007
sport@dv.is
Allt um leiki næturinnar í NBA NBA
Úrslitakeppnin í Iceland Express deild karla hefst í kvöld. Mikil spenna er meðal körfuboltaunnenda. Bls. 17.
Geta flúið
biðlistana
>> Íbúar innan Evrópusambandsins
geta flúið biðlista eigin lands og fengið
heilbrigðisþjónustu annars staðar