Fréttatíminn - 03.12.2010, Side 62
62 jólakræsingar Helgin 3.-5. desember 2010
Agavesírópið er, vegna
framúrskarandi sætueiginleika,
góður valkostur í staðinn fyrir sykur.
Vegna þess hve bragðið er milt
hentar það einkar vel til að sæta
eftirrétti, morgunkorn, ávaxtarétti,
drykki og í bakstur.
Fæst í verslunum um allt land!
Hægt er að fá Agave sírópið í 500 ml
skvísum og 250 ml flöskum
Allir klárir í bátana
– stökkir að utan, mjúkir að innan!
ar
gu
s
04
-0
71
3
Mulligatawny-súpa er sú vinsælasta
í Indlandi að sögn Yesmine. Mild,
ljúf og litrík og fullkomin sem létt
jólamáltíð.
8 dl kjúklingasoð
2 kjúklingabringur
1 msk. ólífuolía
2 gulir laukar, fínt skornir
1 rauður chili, fínt skorinn (með eða
án fræja; fræin eru sterkust)
3 hvítlauksrif
8 cm púrrulaukur, fínt skorinn
3 meðalstórar gulrætur, skornar í
litla bita
½ rófa, skorin í litla bita
2 meðalstórar kartöflur, skornar í
litla bita
2 tsk. karrí
2 epli, afhýdd og skorin í litla bita
1 msk. ferskt timjan (bara laufin), fínt
skorið, eða 1 tsk. þurrkað timjan
1 tsk. hunang
1 dl grísk jógúrt
2 dl kókósmjólk
ferskt kóríander eða steinselja til að
skreyta með
salt og pipar eftir smekk
Setjið kjúklingasoðið í pott og fáið
suðuna upp.
Léttsteikið laukinn í öðrum súpupotti
ásamt hvítlauk, chili, gulrótum, rófu
og púrrulauk.
Bætið karríi út í, látið krauma áfram
á lágum hita í 3–5 mínútur, hrærið í
á meðan.
Hellið soðinu varlega út í ásamt
kartöflunum. Hrærið vel og fáið
suðuna upp.
Lækkið hitann og látið malla í 30
mínútur.
Notið töfrasprota til að mauka
hráefnið í pottinum enn frekar.
Bætið kjúklingnum saman við ásamt
eplum, timjan og hunangi. Látið malla
áfram í 15–20 mínútur eða þangað
til kjúklingurinn er fulleldaður. Bætið
kókosmjólk og jógúrt út í og látið
krauma í nokkrar mínútur. Saltið
og piprið með nýmöluðum svörtum
pipar. Hellið í súpuskál og skreytið
með fersku kóríander eða timjan.
Hrist upp í jóla-
hefðunum með
súpu og chili
F lest erum við vanaföst um jól og ríghöldum okkur við
sömu jólaréttina frá ári til
árs. Jólin eru jafnvel ónýt
hjá sumum ef ekki næst í
rjúpurass til að gæða sér á á
aðfangadagskvöld. Auðveld-
ara er með hangiketið og
hamborgarhrygginn en þá
þarf það eflaust að vera eins
og hjá mömmu forðum. En
er ekki einmitt tilvalið í öllu
hefðarstússinu að taka sér
smá pásu inn á milli villi-
bráðarinnar og reykta kjöts-
ins og prófa eitthvað nýtt?
Fréttatíminn fékk hina
hugmyndaríku Yesmine
Olsson, sem nýverið gaf út
sína þriðju matreiðslubók,
til að koma með tillögur að
því hvernig brjóta megi upp
hefðbundið jólaát með ein-
hverju framandi.
M
ul
lig
at
aw
ny
-s
úp
a
HELGARBLAÐ
Sími 531 3300