Fréttatíminn - 10.12.2010, Page 2

Fréttatíminn - 10.12.2010, Page 2
 Hörkuspennandi „Þokan er rosalega spennandi. Maður gat varla litið upp úr bókinni meðan á lestri stóð.“ María Gústavsdóttir, 14 ára Verðlauna- höfundurinn Þorgrímur Þráinsson í essinu sínu! BarnaBækur, 5. desemBer Félag íslenskra bókaútgeFenda 2. sæti 2. prentun komin Björgóflur fékk tæpa þrjá milljarða frá Glitni án veða 2,6 milljarðar Lán frá Glittni til Björgólfs Guð- mundssonar án nokkurra veða.  Sprotafyrirtæki ÖryggiSmál Þjálfar býflugur til sprengjuleitar Guðbjörg Inga Aradóttir, íslenskur líffræðingur, vinnur hjá sprotafyrirtækinu Inscentinel við að þjálfa býflugur í sprengjuleit. Þær eru eins og hundar í bandi við að læra að þekkja lyktina af sprengiefnum. Þ etta er alveg gríðarlega skemmtilegt starf,“ segir Guð-björg Inga Aradóttir, doktor í líf- fræði, sem vinnur við að þjálfa býflugur í sprengjuleit. Guðbjörg Inga eða Gia, eins og Bret- arnir sem geta ekki borið fram Guð- björg kalla hana, hefur þjálfað býflugur undanfarna sjö mánuði hjá fyrirtækinu Inscentinel. „Ég þekkti fólkið sem stofnaði þetta sprotafyrirtæki og sótti um því mér fannst þetta spennandi,“ segir Guðbjörg. Hún hefur búið í Englandi frá því hún lauk námi í líffræði við Háskóla Íslands. Hún tók masterspróf í líffræði við Royal Holloway og fékk upp úr því vinnu við Natural History Museum í London, þar sem hún vann á skor- dýradeildinni við að rannsaka bjöllur af öllum stærðum og gerðum. Þaðan fór hún á Rothamsted Research, sem er rannsóknarstöð landbúnaðar í Eng- landi, og stundaði þar doktorsnám í líf- fræði í samvinnu við Imperial College í London. Þar vann hún við að rannsaka blaðlýs sem nærast á trjám sem ætluð eru til að framleiða orku. Blaðlýsnar geta dregið úr vexti trjáa og er því mikilvægt að stemma stigu við þeim. Guðbjörg Inga sækir ekki beint í störf sem við Íslendingar eigum að venjast. „Það eru ekki margir sem vinna sem skordýrafræðingar,“ segir hún hlæjandi. Guðbjörg segist vera efnavistfræðingur og hennar helsta sérsvið er að skoða hegðun skor- dýra og hvernig þau nota lyktarskyn sitt til að finna mat og maka. „Þetta nýtist vel við þjálfun býflugnanna. Við notum sömu tækni og Pavlov notaði á hundana sína. Í hvert skipti sem hann hringdi bjöllu gaf hann hundunum mat. Eftir nokkrar endurtekningar tengdu hundarnir áreitið við mat og byrjuðu að slefa um leið og þeir heyrðu í bjöllunni. Í okkar tilfelli notum við náttúrlega hegðun býflugna, sem hafa háþróað lyktarskyn, til að kenna þeim að þekkja lykt af efnum sem notuð eru í sprengjur. Við blásum lykt af þessum efnum yfir fálmara flugnanna og í kjölfarið gefum við þeim sykurvatn. Eftir nokkur skipti taka flugurnar við sér og stinga út tungunni um leið og þær finna lyktina af efnunum,“ segir Guðbjörg. Það er ekki einfalt að láta býflugur vera kyrrar og lykta af spengiefni. „Við erum með þær í sérstökum höldurum sem eru minni en eldspýtustokkar. Þegar búið er að þjálfa býflugurnar eru þær settar inn í tæki sem er svipað að stærð og handryksuga, svo það er engin hætta á að þær sleppi. Við setjum þær síðan aftur í býflugnabúin þar sem þær lifa góðu lífi eftir að hafa unnið gott starf.“ Guðbjörg er með nokkur býflugnabú innandyra í stórum búrum og eru tug- þúsundir býflugna tilbúnar í þjálfun. Hún hefur tröllatrú á því að býflugur muni starfa við sprengjuleit í nánustu framtíð. „Þetta gengur vel. Tæknin er enn á þróunarstigi en menn binda vonir við að innan tveggja ára verði hægt að nota þessa tækni til að mynda á flug- völlum við leit að sprengjum eða jafnvel á stríðssvæðum,“ segir Guðbjörg Inga. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Guðbjörg inga skemmtir sér konunglega við að þjálfa býflugur til sprengjuleitar. Býflugurnar komast ekki langt í þjálfuninni. Við blásum lykt af þess- um efnum yfir fálmara flugnanna og í kjölfarið gefum við þeim sykur- vatn. „Hún er ennþá fjarræn eftir svæf- inguna og ekki alveg komin til baka en mér skilst af læknum að það sé eðlilegt fyrir þá sem hafa fengið svo mikið af lyfjum,“ segir María Egilsdóttir, móðir Helgu Sigríðar Sigurðardóttur sem var flutt heim með sjúkraflugvél frá Gautaborg í gær og dvelur nú á Landspítalanum. Helga Sigríður, sem er tólf ára, hneig niður í búningsklefa í skólasundi á Akureyri 24. nóvember síðastliðinn vegna hjartaáfalls. Við rannsóknir kom í ljós að um alvarlega kransæða- stíflu var að ræða. Haft var eftir Hróðmari Helgasyni hjartalækni í sjónvarpsfréttum að slíkt væri afar fátítt hjá svo ungum ein- staklingi. Helga Sigríður var flutt með hraði á Landspítalann og þaðan til Gautaborgar í mikilli lífshættu því talið var að hún þyrfti nýtt hjarta. Eftir mikið óvissuástand breyttist líðan hennar til batn- aðar, hjarta og lungu komu til svo ekki kom til líffæraskipta. For- eldrar stúlkunnar hafa dvalið hjá henni ytra. María segir að Helga Sigríður sé ósköp lúin og orkulaus og þurfi því að styrkja sig en allt líti vel út með líffæri hennar. Það geti hins vegar tekið marga daga að ná lyfjunum úr líkama hennar. Eins og Fréttatíminn greindi frá á föstudaginn var hefur verið stofnaður söfnunarreikningur fyrir Helgu Sigríði og fjölskyldu hennar. Hægt er að leggja inn á reikning Maríu Egilsdóttur 0565–26–110378, kennitala 180470–3449.  Sjúkraflug Helga Sigríður komin Heim Allt lítur vel út með líffæri hennar Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is Helga Sigríður Sigurðardóttir var flutt heim með sjúkra- flugi flugfélagsins Ernis frá Gautaborg í gær. Í skýrslu franska fyrirtækisins Cofisys um Glitni, sem unnin var fyrir embætti sérstaks saksóknara og Fréttatíminn hefur undir höndum, er gerð athugasemd við lánveitingar bankans til Björgólfs Guðmundssonar, formanns bankaráðs og annars af stærstu eigendum Landsbankans, í maí 2007. Björgólfur fékk lánaða 21 milljón punda eða um 2,6 milljarða á gengi þess tíma, að því er virðist án nokkurra trygginga eða veða. lánið var til tveggja mánaða en virðist hafa verið framlengt sex sinnum. Björgólfur Guðmundsson er gjaldþrota og Glitnir hefur gert 5,4 milljarða kröfu í þrotabú hans. -óhþ Glitnir og landsbankinn gjaldþrota 2007 Það er sameiginleg niðurstaða norska fyrirtækisins lynx Advokatfirma, sem vann skýrslu um Landsbankann, og franska fyrir- tækisins Cofisys, sem vann skýrslu um Glitni fyrir embætti sérstaks saksóknara, að báðir bankarnir hafi í raun verið gjaldþrota í árslok 2007. Það hefði komið í ljós ef endurskoðendur, sem í báðum tilvikum voru PwC, hefðu farið rétt að við endurskoðun ársreikninga. Þetta kemur fram í skýrslum fyrirtækjanna um bankana sem Fréttatíminn hefur undir höndum. Hvorugur bankanna færði nógu mikið af lánum áhættusamra viðskiptavina sinna niður í ársreikningi, falin eign á eigin bréfum hefði átt að lækka eigið fé þeirra og hvorugur bankinn skilgreindi tengda aðila rétt, sem hefðu þá farið yfir löglegar áhættuskuldbindingar bankanna gagnvart einstökum aðila. -óhþ Eigendur pressuðu á Sigurjón um lán Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi banka- stjóri Landsbankans, kvartaði yfir því við starfsmenn endurskoðendafyrirtækisins PwC, sem voru endurskoðendur Lands- bankans, að eigendur bankans pressuðu mjög á hann um að fá lán til handa sjálfum sér. Hann bætti því þó við að þetta hefði ekki áhrif á starfsemi bankans. Þetta stangast á við orð Björgólfs Thors Björgólfssonar, annars aðaleiganda bankans, sem hefur ítrekað lýst því yfir að hann hafi aldrei skipt sér af nokkrum hlut í bankanum. Upp- lýsingar um þetta er að finna í skýrslu norska fyrirtækisins lynx advokat- firma um Landsbankann sem unnin var fyrir embætti sérstaks saksóknara og Fréttatíminn hefur undir höndum. -óhþ Knattspyrnukappi vann Kaupþing Knattspyrnukappinn fyrrverandi, Ríkharð- ur Daðason, vann í gær dómsmál gegn Kaupþingi sem neyðist til að viðurkenna kröfu hans upp á rúma 21 milljón sem forgangskröfu í bú bankans. Deilan snerist um það hvort munnlegur samningur rík- harðs við Ingvar Vilhjálmsson, yfirmann hans á markaðsviðskiptasviði bankans, um 2,4 milljóna króna lágmarkslaun á mánuði hefði eingöngu gilt fyrir árið 2007 en ekki árið 2008, líkt og bankinn hélt fram. Héraðsdómur komst að þeirri niður- stöðu að ekki yrði séð að hinn munnlegi samningur væri tímabundinn og því verður krafa ríkharðs um vangoldin laun á árinu 2008 forgangskrafa í búið. -óhþ                           GLITNIR BANKI hf  INVESTIGATION INTO THE ACCOUNTS A ND THE AUDITOR’S FILES      REPORT TO THE SPECIAL PROSECUTOR          November 2010                            GLITNIR BANKI hf  INVESTIGATION INTO THE ACCOUNTS A ND THE AUDITOR’S FILES      REPORT TO THE SPECIAL PROSECUTOR          November 2010                            GLITNIR BANKI hf  INVESTIGATION INTO THE ACCOUNTS A ND THE AUDITOR’S FILES      REPORT TO THE SPECIAL PROSECUTOR          November 2010  2 fréttir Helgin 10.-12. desember 2010

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.