Fréttatíminn - 10.12.2010, Blaðsíða 44
1. 20. október 1990
(Arsenal vann 1-0)
Allt varð vitlaust í síðari hálfleik þegar
Nigel Winterburn, bakvörður Arsenal,
tæklaði United-leikmanninn Denis Irwin.
Í kjölfarið réðust Irwin og Brian McClair
að Winterburn og Andres Limpar og
sparkaði McClair til að mynda margoft
í Winterburn. Alls tók 21 leikmaður þátt
í slagsmálunum sem fylgdu í kjölfarið.
Sá eini sem hélt sig fyrir utan var David
Seaman, markvörður Arsenal.
2. 21. september 2003
(Leikurinn endaði 0-0)
Hollendingurinn Ruud Van Nistelrooy
braut illilega á Patrick Vieira sem reyndi í
kjölfarið að sparka til hans. Sparkið mis-
heppnaðist en vegna leikaraskapar Van
Nistelrooys var Vieira rekinn af velli. Það
sauð upp úr milli félaganna og ekki síður
eftir leikinn þar sem Martin Keown og
fleiri leikmenn Arsenal létu Hollendinginn
hafa það óþvegið.
3. 24. október 2004
(United vann 2-0)
Þessi leikur var kallaður „Bardaginn um
hlaðborðið“ vegna þess sem gerðist eftir
að honum lauk. Sol Campbell, varnarmað-
ur Arsenal, neitaði að taka í hönd Waynes
Rooney eftir leikinn þar sem hann sakaði
Rooney um leikaraskap þegar hann fékk
víti í leiknum. Í göngunum eftir leikinn
fór allt í háaloft og bárust fréttir af því
að pitsur, kaffi, te, tómat- og baunasúpa
hefðu flogið á milli á leikmanna með þeim
afleiðingum að Alex Ferguson lenti í milli.
Hjörvar Hafliðason
um Manchester United
Hvernig hefur
Manchester United
spilað í vetur?
United hefur ekki þótt spila skemmti-
legan bolta í vetur en samt hefur liðið
skorað mest af öllum liðum í deildinni.
Það vantar svolítið flæði í leik liðsins og
mér finnst vanta skapandi miðjumann
eða vængmann til að leysa Valencia
af hólmi. Ferguson virðist aftur vera
kominn með trúna á 4-4-2-kerfinu en
undanfarin ár hefur hann leikið 4-5-
1(4-3-3) í stærri leikjum.
Styrkleiki og veikleiki
Manchester United,
bestu leikmenn og
þeir sem hafa valdið
mestum vonbrigðum?
Helsti styrkleiki liðsins liggur í mið-
vörðunum Ferdinand og Vidic. Þá hef-
ur Nani verið frábær og skorað mörg
mörk, auk þess sem hann hefur lagt
fjölmörg mörk upp fyrir samherja
sína. Berbatov hefur verið drjúgur
í upphafi móts en hingað til hefur
hann ekki verið maður stórleikjanna.
Hann hefur til dæmis aldrei skorað
fyrir United á móti Arsenal. Í upphafi
móts var Ferdinand meiddur og
Jonny Evans leysti hann af og gerði
það í raun og veru mjög illa. Þá
var liðið að gefa mikið af mörkum
en síðan Ferdinand kom til baka
hefur leikur liðsins verið allt annar.
Ég veit ekki hvort það er hægt að
tala um veikleika hjá liði sem enn
er ósigrað en þó er það á vissan
hátt veikleiki að Ferguson er ekki
með neitt fast byrjunarlið.
Arsenal – styrkleiki
og veikleiki?
Styrkleiki liðins finnst mér felast
í mögnuðum sóknarleik liðsins og
þeirri breidd sem Wenger hefur þar
yfir að ráða. Samir Nasri er orðinn
furstinn á Emirates-vellinum. Hann
hefur verið meiriháttar það sem af
er vetri. Nú þegar van Persie er
kominn á fulla ferð eftir meiðsl
hefur liðið aukna breidd fram á
við. Þá hafa Chamakh og Wilks-
hire verið góðir. Veikleikar
liðsins eru að sjálfsögðu
vörnin og markvarslan.
Vermahlen, besti miðvörður
liðsins, er meiddur og
leikur ekki aftur fyrr en
á nýju ári. Þeir Koscielny
og Squillachi eru ekki
nógu öflugir og gera mörg
mistök. Þá er Fabianski
ekki nógu sterkur á milli
stanganna. Hann hefur ekki gert mörg
mistök en tapaði leik fyrir Arsenal í
síðasta mánuði gegn Newcastle.
Hverjir vinna
þennan leik?
Ég ætla að spá 2-0 sigri Manchester
United. Nú veit ég ekkert hvernig
staðan á Fabregas verður á mánudag-
inn en ef hann verður ekki með er það
mikið högg fyrir Arsenal. Vörn Arsenal-
liðsins hefur verið slök að undanförnu
og ég held að varnarleikurinn verði
munurinn á liðunum.
H
verjir eru lykilmenn Manc-
hester United og Arsenal?
Ef þessarar spurningar hefði
verið spurt í sumar hefði svar-
ið verið Wayne Rooney, fram-
herji Manchester United, og Cesc Fabregas,
fyrirliði Arsenal. Frammistaða tveggja leik-
manna það sem af er þessari leiktíð hefur þó
breytt svarinu hjá báðum liðum. Búlgarinn
Dimitar Berbatov, sem skoraði fimm mörk í
síðasta leik Manchester United, hefur án nokk-
urs vafa fest sig í sessi sem einn af betri
mönnum Manchester United.
Berbatov hvarf hins vegar
allan októbermánuð,
ól íkt por túgalska
kantmanninum Luis
Nani sem hefur farið
hamförum á hægri vængnum hjá
United, leik eftir leik, mánuð eftir
mánuð. Sömu sögu er að segja af
öðrum hægri kantmanni hjá Arse-
nal, hinum 23 ára Samir Nasri.
Hann hefur skyggt á stjörnur á borð
við Cesc Fabregas, Robin Van Per-
sie og Andryi Arshavin með stór-
kostlegri frammistöðu það sem af
er tímabilinu.
Nani og Nasri hafa báðir tekið
gífurlegum framförum á þessu
tímabili og skipað sér á bekk með
bestu leikmönnum ensku úrvals-
deildarinnar. Það nægir að nefna
að Nani hefur skorað fimm mörk
í ensku úrvalsdeildinni á þessu
tímabili og lagt upp átta fyrir sam-
herja sína. Hann hefur bæði skorað
og lagt upp fleiri mörk það sem af
er yfirstandandi tímabili heldur en á
heilu tímabili frá því að hann kom til
United árið 2007. Þegar hann er í ham
geta fáir varnarmenn í ensku úrvalsdeild-
inni stöðvað hann. Hann er áræðinn, ótrú-
lega fljótur og nánast jafnfættur. Spyrjið bara
Pascal Chimbonda, bakvörð Blackburn, sem
hringsnerist í kringum Portúgalann fyrir
tveimur vikum.
Þótt Nasri sé kantmaður er hann marka-
hæsti leikmaður Arsenal á tímabilinu.
Hann hefur skorað alls ellefu mörk; átta
í deildinni, tvö í
deildarbik-
arnum
og
e i t t í
meistara-
deildinni. Hann
hefur aðeins átt eina
stoðsendingu enda
verið iðnari við kol-
ann í markaskorun.
Athyglisverð stað-
reynd er að hann
hefur skorað jafn-
mörg mörk í þrett-
án deildarleikjum
á þessu tímabili
og í 55 leikjum
tímabilin tvö á
undan. Tækni
hans, leikskiln-
ingur og sú stað-
reynd að hann er
jafnfættur hafa gert
þennan unga Frakka
að einum marksæk-
nasta leikmanni ensku
úrvalsdeildarinnar.
Stórleikur Manchester
United og Arsenal fer fram á
Old Trafford, heimavelli Manc-
hester United, næstkomandi
mánudag og hefst klukkan 20.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Innbyrðisviðureignir í tíð
Fergusons og Wengers
Manchester United og Arsenal hafa mæst 37 sinnum frá því að
Arsene Wenger tók við sem knattspyrnustjóri Arsenal árið 1996.
Arsenal hefur unnið 15 sinnum.
Manchester United hefur unnið 14 sinnum.
Liðin hafa átta sinnum gert jafntefli.
Markatalan er 46:46.
Þrír eFtIrmInnIlegIr leIkIr
Spáð í Spilin
Einn af stórleikjum vetrarins í enska boltanum fer fram á mánudagskvöldið
þegar Manchester United og Arsenal mætast á Old Trafford. Kantmennirnir Nani
og Nasri hafa farið á kostum hjá sínum liðum það sem af er tímabilinu.
&N N
2-0
fyrir
United
44 fótbolti Helgin 10.-12. desember 2010