Fréttatíminn - 10.12.2010, Blaðsíða 56

Fréttatíminn - 10.12.2010, Blaðsíða 56
56 viðhorf Helgin 10.-12. desember 2010 „Aktu þrjá kílómetra beint áfram og beygðu svo til hægri,“ sagði ljúf kvenmannsrödd, örlítið málm- kennd þó. Ég hlýddi, beygði til hægri þegar þar að kom, að ráði þeirrar málmkenndu. Hún hélt þá áfram leiðsögninni, sagði mér frá hringtorgum á leið minni og benti mér góðfúslega á að taka þriðju rein út frá torginu. Þegar á áfangastað kom tilkynnti konan það með þeim hætti að ekkert fór á milli mála. Ekki verður annað sagt en að kona þessi, eða rödd hennar, sé ágætur ferðafélagi, en ég kynntist henni fyrst á ferð um Danaveldi. Konan vélræna sá langar leiðir fyrir og skjöplaðist ekki, hvað sem á gekk. Sama var hvort valin var leið á Sjálandi, Fjóni eða Jótlandi. Hún leiðbeindi með sama hætti til Þýska- lands. Landamæri voru engin hindrun. Téð kona hefur þó ekkert annað sér til ágætis en röddina enda leiðsögutæki á mælaborði bíls, tæki sem fékkst að láni í ferðina. Kosturinn við hina vél- rænu frú er að hún skiptir aldrei skapi, hækkar aldrei röddina þótt mistök séu gerð heldur leiðréttir kúrsinn vandræðalaust. Fari kona þessi í taugarnar á ökumanni er á henni miðri takki sem þaggar fljótt og örugglega niður í henni. Hún ræðir ekki málin nema ýtt sé á takkann aftur. Ég þarf svo sannarlega á leiðsögn sem þessari að halda enda áttavilltur með afbrigðum. Þar hef ég notið ratvísi eiginkonu minnar alla tíð. Hún er með innbyggt leiðakerfi, hvort heldur er hérlendis eða er- lendis. Í upphafi ferða okkar til annarra landa reyndi ég að hafa skoðun á áttum og lagði jafnvel til að við færum til vinstri þegar konan vildi halda til hægri. Hún lét það svo sem eftir mér þótt ég færi undan- tekningarlaust villur vegar. Mér lærðist því að hafa hægt um mig og lét hana ráða. Það var affarasælast. Þannig höfum við þvælst víða um lönd, ég við stýrið og hún á kortinu. Bílstjórarnir eru sem sagt tveir, rétt eins og í rallakstri þar sem hlutverk leiðsögu- mannsins er síst veigaminna en þess sem undir stýri situr. Eiginkona mín er þrautþjálfaður bílstjóri en þó hafa mál þróast þannig að ég ek frekar en hún þegar við erum saman á ferð. Vandi minn er sá að ég fer oft hugsunarlaust af stað eða að hugurinn er annars staðar en á bein- ustu leið á áfangastað. Konan er hins vegar skipulögð og búin að ákvarða leiðina í huganum áður en við leggjum af stað, jafnvel þótt ég sé við stýrið. Á ferðum okkar ytra er þetta ekkert vandamál. Af langri reynslu hlýði ég orðalaust. Innan borgar og á ferðum okkar um landið horfir þetta svolítið öðruvísi við. Ég tel mig þekkja helstu leiðir á Stór-Kópavogssvæðinu og vita hvort halda skal í austur eða vestur ef aka á í miðbæ kaupstaðarins eða í hin ýmsu hverfi höfuðborgarinnar í norðri. „Hvert erum við að fara, elskan?“ heyrist stundum úr hægra sætinu þegar ég hef ekið um nokkra hríð á styttri innanbæjarleiðum okkar. „Nú, til hennar frænku þinnar í afmælið, en ekki hvert?“ svara ég, heldur staff- írugri en á leið til Slagelse eða Dortmund þar sem ég spyr aðeins hvort konan vilji fara til hægri, vinstri eða beint áfram. „Heldurðu að ég viti ekki hvar hún á heima?“ bæti ég við heldur snúðugt, svona rétt eins og ég hafi efni á því. „Jú, væntanlega veistu það, þess vegna er sérkennilegt að þú skulir velja þessa leið,“ segir konan, „að þú skulir fara hálfhring í kringum borgina í stað þess að fara stystu leið.“ Hún lætur svo gott heita, veit raunar að bóndinn kemst á endanum á áfangastað í þessum heimabunum þótt hann aki tíu kílómetra í stað þeirra fimm sem hún hafði af hyggjuviti sínu plan- lagt. Innra með mér veit ég að hún hefur rétt fyrir sér en á erfitt með að viðurkenna það, svona á heimaslóð. Mér var ratvísin bara ekki gefin, auk þess að vera stundum annars hugar. Fyrir kemur þegar ég er einn á ferð, jafnvel innanbæjar, að ég undrast eigin dellu í áttavalinu. Þar er þó enginn til að gera athugasemdir. Þannig var ég staddur í efri byggðum Kópavogs um helgina og átti þaðan erindi á einn hálsinn í iðnaðarhverfi Reykjavíkur en ekki vildi betur til en svo að ég endaði í blindgötu í hesthúsahverfi Fáks við Elliðaár. Hross og menn horfðu í forundran á þennan áttavillta bjána sem forðaði sér hið bráðasta, konu- og leiðbeiningarlaus, á braut. Ég lét engan vita en hef síðan hugleitt hvort ég ætti að efna mér í vél- ræna konu á mælaborðið þegar eiginkonunnar nýtur ekki við í sætinu við hlið mér, jafnvel þótt aðeins sé um styttri ferðir að ræða á heimaslóð. Sú vélræna gæti varað mig við á villigötum: „Þú ert á leið í hesthús, þú ert á leið í hesthús, þangað áttu ekkert erindi, beygðu hið snarasta til hægri og hættu þessum afglapaakastri – eða hringdu strax í konuna þína og fáðu leiðbeiningar.“ Til hægri, vinstri eða beint áfram?E ins og alþjóð veit eru Íslendingar einhver spilltasta þjóð á jarðríki. Einn liður í þeirri spillingu er misnotkun á fjármunum hins opinbera og er nánast daglega í fréttum. Spurning er hvort það sé bara toppurinn á þeim ísjaka. Auðvelt ætti að vera að ganga úr skugga um það með einu pennastriki, nútíma tækni og beinni þátttöku al- mennings í landinu. Sú hugmynd hefur skotið upp kollinum hér fyrir vestan að beina því til ríkisstjórnarinnar að hún fyrirskipi öllum forstöðumönnum opinberra stofn- ana að birta á vefsíðum þeirra einu sinni í mánuði alla kostnaðarreikninga sem stofnað hefur verið til mánuðinn á undan. Og hverjir það eru sem fá þær greiðslur. Þetta á að sjálfsögðu einnig við öll laun og sporslur sem verið er að greiða hinum og þessum. Nefna má greiðslur til ríkisstarfsmanna fyrir að starfa í nefndum í vinnutíma sínum, dagpeninga, ferðakostnað, þar með taldar utanlandsferðir, kostn- að við sendiráð, símakostnað og svo framvegis. Hér er auðvitað einnig átt við ráðuneytin sjálf og þá sem þeim stjórna. Og ekkert undan dregið! Ekkert. Allir sómakærir forstöðumenn munu fagna þessu aðhaldi, að ekki sé talað um Ríkisendurskoðun. Grunur okkar er sá að ef þessi háttur væri tekinn upp, mundi sjálftökuliðið hugsa sig tvisvar um og sparnaður yrði ómældur. Þetta er sáraeinfalt í framkvæmd og á færi hvaða unglings sem er, ef út í það er farið. Þegar sérfræðingarnir hlæja Sumir sérfræðingar munu að sjálfsögðu hlæja þessa tillögu út af borðinu og finna henni allt til foráttu, en það er einmitt hættumerkið. Alþýða manna getur nokkurn veginn treyst því að þegar sérfræðing- arnir hlæja eða brosa út í annað, þá eru menn í mjög mörgum tilfellum einmitt á réttri leið. Það er öllum til góðs að ekki sé verið að fela neitt í stjórnsýslunni. Margir segja að þar eigi allt að vera opið og gegn- sætt. En eiga það bara að vera merkingarlaus orð til gamans? Upplýsingalög eru ágæt sem slík, en með því fyrirkomulagi sem hér er reifað getur alþýða manna fylgst með jafnóðum og hlutirnir gerast og þeir sem til þekkja lagt fram fyrirspurnir og athugasemdir ef þurfa þykir. Þetta mætti vel kalla sjálfbæra endur- skoðun. Löngu er kominn tími til að hætta endalaus- um feluleik með opinbera fjármuni. Allt upp á borðið! Allt. Fyrr verður engin sátt með þjóðinni. Alþýðlegt álit Jón forseti ráðlagði alþýðu á sínum tíma að hafa gætur á fulltrúum sínum og skapa alþýðlegt álit á málunum. Það á enn frekar við í dag. Það kemur ekk- ert í stað hugrekkis einstaklinganna og að þeir skipti sér af hlutunum. Sagan er óljúgfróð í þeim efnum. Og hér þarf enga skýrslu að útbúa. Við höfum til þessa verks öll tæki og tól. Vilji er allt sem þarf eins og fyrri daginn. Það færi vel á því að gefa Jóni Sigurðssyni þessa afmælisgjöf. Fleiri slíkar gætu komið á eftir. Ef við hefðum vit á að senda spillingu og bruðl út á sextugt djúp, yrði gamli maðurinn örugglega ánægður. Það væri í samræmi við allt hans lífsstarf. Kostnaðarreikninga stofnana á netið Tillaga að afmælisgjöf til Jóns Sigurðssonar Te ik ni ng /H ar i A Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Bjarni Georg Einarsson fyrrum útgerðarstjóri og núverandi ellilífeyrisþegi á Þingeyri. Hallgrímur Sveinsson bókaútgefandi og léttadrengur á Brekku í Dýrafirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.