Fréttatíminn - 10.12.2010, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 10.12.2010, Blaðsíða 40
– Lifið heil www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 5 24 31 1 1/ 10 Jólin eru tími til að gefa. Í Lyfju finnurðu úrval af gjafavöru í pakkana til þeirra sem þér þykir vænst um. Við erum aldrei langt undan. Mundu eftir jólahandbók Lyfju. Kannski er jólagjöfin í Lyfju Lágmúla - Laugavegi - Garðatorgi - Smáralind - Smáratorgi - Setbergi - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Patreksfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Blönduósi - Hvammstanga Skagaströnd - Sauðárkróki - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstöðum - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Fáskrúðsfirði - Höfn - Laugarási - Selfossi - Grindavík - Keflavík LYFJA STYÐUR LANDSLIÐ KVENNA Í HANDBOLTA kemur í kvöld til mín“. Hún hummar aldrei – en þetta var eina lagið sem Sæmi kunni að syngja. Spákonan fékk gæsahúð! Við höfðum ekki talað mikið saman eftir að við skildum, en höfum gert upp okkar mál eftir andlát hans. Við verðum að kunna að loka á mál sem angra okkur. Við erum of mikið með hugann við framtíðina eða fortíðina, en gleymum nútíðinni. Það er engin framtíð því hún skapast af því sem gerist núna.” Sannur vinur vina sinna Fyrir tveimur árum kom Sigríður fram í fjölmiðl- um til varnar vini sínum, Þorsteini Kragh, sem ásakaður var um stærsta innflutning á fíkniefnum sem til landsins hafa borist. Þorsteinn var dæmd- ur í níu ára fangelsi. „Það var gríðarlegt áfall fyrir mig og okkur öll í fjölskyldunni. Við Þorsteinn, Denni, höfðum verið mjög góðir vinir í fjölda ára, hist nánast daglega, og ég trúi ekki enn að hann hafi verið sekur. Ég er mjög góður vinur vina minna og mér er í raun- inni alveg sama hvað aðrir segja, ég gerði allt sem í mínu valdi stóð fyrir Þorstein. Ég hafði þekkt hann í mörg ár og aldrei séð neitt sem benti til þess að hann neytti sjálfur fíkniefna eða væri óheiðarlegur á nokkurn hátt. Ég vona að honum takist að sanna að hann sé saklaus. Ég er líklega slæm spákona ef hann er sekur. Ég hef tengingu við hann eins og hann sé bróðir minn. Hann hefur sýnt öllum hér góðsemi og ég hef aldrei séð hann í neinu annarlegu ástandi. Eftir að dómurinn féll urðu til alls konar sögur, en miðað við hversu mik- ið við umgengumst finnst mér sérkennilegt að allt það fólk sem hann hefur átt að þekkja svona vel og umgangast, hafi gjörsamlega farið fram hjá mér.“ Sigríður hefur síðustu árin unnið mikið við að halda námskeið og fyrirlestra. Hún fer í skóla og talar við börn og unglinga um það hvernig hægt er að líða betur og hvernig við stjórnum líðan okkar. „Það gerum við með því að lifa í núinu. Ein setning getur breytt lífi þínu – eða brennt það. Þess vegna segi ég að orð séu álög. Við eigum að tala við börn af virðingu, horfa í augun á þeim og nenna að tala við þau. Ég man bara eftir því fólki sem nennti að tala við mig þegar ég var barn. Mín kynslóð ólst svolítið upp við það að börn væru fyrir. Þau áttu að þegja við matarborðið og fara inn í herbergi ef þau voru óþekk. Við vorum svo- lítið eins og hundar sem beini er kastað til og svo þegar við eldumst erum við alltaf að bíða eftir beininu – bíða eftir viðurkenningu.“ Sigríður segist oft verða hugfangin, en hafi ekki oft á sínum fimmtíu árum orðið ástfangin. Ástin hitti hana þó ekki alls fyrir löngu og í bókinni er að finna ástarljóð til manns – sem veit ekki af því sjálfur: Ég vaki og vaki og birtan mig blessar ég elska sumarnæturnar þessar. Fuglasöngur mig fagur knúsar og fátæklegur hugur blúsar. Ég hlusta á lag og minningarnar sveima ég hugsa um þig og mig fer að dreyma. Um dálitla stund er dvaldir þú hér þá dásemd og hlýju er sýndirðu mér. Ég brosi ávallt er ég mynd þína sé en bið svo að heilsa eftir Inga T... „Ég byrjaði að yrkja ljóð mjög ung og ég er al- þýðuskáld. Ég á hundruð ljóða og á mjög auðvelt með að ná tengingu við sálina og hjartað. Ég byrj- aði í raun og veru ekki að koma ljóðunum mínum á framfæri fyrr en Facebook byrjaði. Ég á fimm þús- und vini á Facebook en vildi eiga hundrað þúsund því ég vil að allir séu vinir. Við erum ein heild. Við eigum að taka öllum opnum örmum.“ Og þar með veit maðurinn að Sigríður Klingen- berg elskar hann. Óvanaleg leið, en ekta Siggu- leið! Bara ein dauðasynd Í bókinni býður Sigga líka upp á uppskrift að ástarævintýri. „Við þurfum alltaf að skrifa óskirnar okkar á blað, og helst gult eða appelsínugult blað því hug- urinn nemur sterkast þá liti. Dóttir mín skrifaði óskalista að ævintýri sem ég birti í bókinni. Allt gekk eftir – nema hvað að þegar hún fór að kynn- ast manninum betur, kom í ljós að hann reykir og drekkur, nokkuð sem hún sættir sig ekki við. Við fórum að furða okkur á þessu og litum betur á listann. Þá hafði hún skrifað orðið „reglusamur“ með smá stafarugli! Þar með rústaðist listinn. Þú verður að gjöra svo vel að skrifa óskirnar þínar rétt. Ég er núna búin að vera að kalla á ástina og það eru rosalega margir karlmenn í kringum mig þessa dagana! Orð eru álög – það sem þú segir að morgni myndar daginn. Hebreska orðið yfir Guð þýðir „Ég er“ og ef við segjum „ég er frísk“, „ég er glöð“ og svo framvegis þá verður það þannig.“ Á stóran spegil í stofunni hjá Siggu hefur hún látið rita þessi orð: Ég er frábær – ég elska þig – þú ert svo mjó. „Já, vegna þess að þeir sem horfa á sig og segja „ég er svo feit“, þeir verða bara feitari. Það er svo auðvelt að vera með niðurrifsstarfsemi á sjálfan sig. Við myndum aldrei tala svona við börnin okk- ar eða vini og vinkonur! Fyrir mér er bara ein dauðasynd. Hún er sú að vera leiðinlegur. Þetta sagði Oscar Wilde og líka það að maður á ekki að taka lífið of alvarlega því við komumst hvort sem er ekki lifandi frá því. Svo tek ég undir orð hans „ég er svo geðveikt klár að ég skil mig stundum ekki!“ segir hún og skellihlær. „Við eigum að varpa spurningum okkar út í alheiminn því þar er svörin að finna. Það sem hugurinn fer, lífið er,“ segir spámiðillinn Sigríður Klingenberg. Anna Kristine ritstjorn@frettabladid.is Fyrir mér er bara ein dauðasynd. Hún er sú að vera leiðinlegur Hættir að spá „Ég verð í Kringlunni fram til jóla þar sem hægt verður að kaupa gjafabréf á spádóm sem að sjálfsögðu er hægt að nota á nýju ári. Meira verður það ekki. Af öllu mínu hjarta þakka ég því fólki sem lagt hefur leið sína til mín í spá og ég vona að ég hafi með örlitlu orði getað hjálpað eitthvað til!“ segir Sigríður. Sigríður sést hér ásamt börnum sínum þremur Sigrúnu Erlu, Guðbirni Alexander og Pétri Ásbirni við mynd af föður þeirra Sæmundi Sæmundssyni sem lést í fyrra. 40 viðtal Helgin 10.-12. desember 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.