Fréttatíminn - 10.12.2010, Síða 14
Gjafasett.
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is
NIKE gjafsett fyrir dömur og herra
Jólatilboð kr. 3.942
Tony&GUY
Gjafasett
Jólatilboð kr. 3.965,-
Jólatilboð
3.965 kr.
Góð jólagjöf!
Talsverð launahækkun
Þó nokkur hækkun varð á launum á milli
annars og þriðja ársfjórðungs í ár, að því
er Hagstofan greinir frá. Regluleg laun
voru að jafnaði 2,0% hærri á þriðja en á
öðrum ársfjórðungi en svo mikil hækkun
hefur ekki átt sér stað á milli ársfjórðunga
síðan á sama tíma árið 2008, að því er
fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka.
Þessa miklu hækkun má rekja til samn-
ingsbundinna launahækkana á almennum
vinnumarkaði sem komu til framkvæmda
undir lok annars ársfjórðungs. Þannig
hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði
um 2,6% á milli fjórðunganna á sama tíma
og laun opinberra starfsmanna hækkuðu
um 0,7%. Milli þriðja ársfjórðungs í ár og
sama tímabils í fyrra hafa laun hækkað
um 6,0%. Á þann mælikvarða hefur svo
mikil hækkun launa ekki mælst síðan á
fyrsta ársfjórðungi 2009. -jh
Líflegt haust á
íbúðamarkaði
Veltan á íbúðamarkaði hefur aukist
umtalsvert undanfarið. Gerður var 281
kaupsamningur um íbúðarhúsnæði á
höfuðborgarsvæðinu í nóvembermánuði
samanborið við 207 samninga í sama
mánuði í fyrra og hefur veltan því
aukist um 36% milli ára. Heildarveltan í
nóvember nam 7,4 milljörðum króna og
var því meðalupphæð hvers samnings
sem gerður var í nóvember 26,4 milljónir
króna. Endurspeglar það að veltan var
langmest með íbúðir í fjölbýli, segir
Greining Íslandsbanka og metur það svo
að botninum sé náð á íbúðamarkaði og
ekki sé langt í að viðsnúnings sé að vænta.
Makaskiptasamningum hefur fækkað
verulega upp á síðkastið en þeim fjölgaði
mjög eftir hrun. -jh
Vaxtalækkun
Seðlabankans
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands
lækkaði vexti bankans á miðvikudag.
Vextir á viðskiptareikningum innláns-
stofnana lækkuðu um 0,5 prósent í 3,5%
og hámarksvextir á 28 daga innistæðu-
bréfum og á lánum gegn veði til sjö daga
lækkuðu um 1,0 prósent í 4,25% og 4,5%.
Þá lækkuðu daglánavextir um 1,5 prósent
í 5,5%.-jh
Fimmtán milljóna króna
innistæður tryggðar
Um hámarksgreiðslu er að ræða miðað við innistæður hjá sömu innlánsstofnunum óháð fjölda
reikninga. Verulegar takmarkanir verða á tryggingarverndinni.
Tryggingarsjóður ný lög vænTanleg um áramóT
Tryggingar-
verndin nær til
allra sparireikn-
inga sem inn-
lánsstofnanir
bjóða upp á. T ryggingarsjóður innstæðu-eigenda mun frá áramótum, verði frumvarp um inni-
stæðutryggingar og tryggingakerfi
fyrir fjárfesta að lögum, tryggja
innistæður í hlutaðeigandi inn-
lánsstofnun að fjárhæð sem nemur
jafnvirði 100.000 evra í íslenskum
krónum, um 15,2 milljónum. Um há-
marksgreiðslu er að ræða og miðast
hún við innistæður innistæðueig-
enda hjá sömu innlánsstofnun óháð
fjölda innlánsreikninga. Áður var
gert ráð fyrir 20.800 evra lágmarks-
tryggingu, eða sem svarar tæplega
3,2 milljónum króna, eins og fram
kom í síðasta tölublaði Fréttatím-
ans.
Verulegar takmarkanir verða á
tryggingarverndinni samkvæmt
nýju reglunum. Eftirfarandi inni-
stæður njóta ekki verndarinnar:
1. Innistæður í eigu fjármálafyrir-
tækja. 2. Innistæður sem tengjast
málum þar sem sakfellt hefur verið
fyrir peningaþvætti. 3. Innistæður
fyrirtækis þar sem innlánsstofnun
fer með virkan eignarhlut sam-
kvæmt lögum um fjármálafyrir-
tæki. 4. Innistæður ríkis, sveitar-
félaga, stofnana þeirra og fyrirtækja
að meirihluta í eigu opinberra að-
ila. 5. Innistæður rekstrarfélaga
verðbréfasjóða og annarra sjóða
um sameiginlega fjárfestingu sam-
kvæmt lögum um verðbréfasjóði
og fjárfestingarsjóði. 6. Innistæður
annarra félaga í sömu samsteypu.
7. Innistæður sem ekki eru skráðar
á nafn.
Hámarksgreiðsla úr verðbréfa-
deild tryggingarsjóðsins til hvers
fjárfestis vegna tryggðra verðbréfa
eða reiðufjár nemur 20 þúsund evr-
um og gilda sömu takmarkanir og
hjá innistæðueigendum.
Innistæða er í væntanlegum
lögum skilgreind tiltölulega rúmt,
þ.e. sem innistæða vegna innláns
eða millifærslu í hefðbundinni al-
mennri bankastarfsemi. Í því felst
að tryggingarverndin nær til allra
sparireikninga sem innlánsstofn-
anir bjóða upp á, allt frá óbundn-
um, óverðtryggðum reikningum til
bundinna, verðtryggðra reikninga,
t.d. til hlaupareikninga og spari-
reikninga. Þó er tekið sérstaklega
fram að lántökur innlánsstofn-
ana, eiginfjárreikningar, peninga-
markaðsinnlán, heildsöluinnlán
og safnreikningar, aðrir en reikn-
ingar innlánsleiða vörsluaðila líf-
eyrissparnaðar, teljast ekki til inni-
stæðna.
Hvað varðar séreignasparnað eða
viðbótarlífeyrissparnað er þannig
lagt til að tryggingarsjóðurinn
tryggi innistæður á safnreikning-
um, þar sem félagar sjóðs geta ekki
verið skráðir fyrir reikningum pers-
ónulega, hvort sem vörsluaðili er líf-
eyrissjóður eða fjármálafyrirtæki.
Hið sama á við um safnreikninga
sem bankar og önnur fjármálafyrir-
tæki starfrækja til að halda utan um
séreignasparnað í eigu viðskipta-
manna.
Allar innistæður í innlendum
bönkum og sparisjóðum hafa verið
með ríkisábyrgð frá bankahruni.
Eins og fram kom í Fréttatímanum
á föstudaginn verður ekki fallið frá
ríkisábyrgð á innlánum strax heldur
verður hún afnumin í þrepum þegar
traust á bönkum og fjármálafyrir-
tækjum hefur verið endurheimt.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Tryggingarsjóður innstæðu-
eigenda mun tryggja rúmlega
15 milljóna króna innistæðu
hjá sömu innlánsstofnun
óháð fjölda innlánsreikninga.
Getur þú verið heimilisvinur
Abigale?
www.soleyogfelagar.is
HELGARBLAÐ
Sími 531 3300
14 fréttir Helgin 10.-12. desember 2010