Fréttatíminn - 10.12.2010, Page 23

Fréttatíminn - 10.12.2010, Page 23
Hvernig líður starfsfólkinu þínu í vinnunni? F í t o n / S Í A VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Virðing Réttlæti Öll fyrirtæki geta tekið þátt í könnun VR, Fyrirtæki ársins. Stjórnendur þeirra geta svo nýtt sér niðurstöðurnar og fengið skýra mynd af aðbúnaði og ánægju starfsfólksins. Þessar upplýsingar koma sér vel í daglegum rekstri. Það er því allra hagur að sem flestir segi hvað þeim finnst. Hvetjum samstarfsfólk okkar til að taka þátt í könnuninni! Athugið að skila þarf inn þátttökulistum í síðasta lagi 6. janúar 2011. Allar nánari upplýsingar fást á heimasíðu VR, www.vr.is, eða með því að senda póst á vr@vr.is Fyrirtæki ársins 2011 sérhæfði sig í fjárfestingum í tískugeiranum. Á þessum tíma kom hún að fjölbreyttum verkefnum með mörgum af þekktustu hönnuðum New York og Bandaríkjanna. Þar á meðal voru Matthew William- son, Rachel Roy, Waris Ahlu- walia frá skartgripafyrirtækinu House of Waris og tónlistar- manninum Andre Benjamin úr Outkast þegar hann var að undir- búa eigin fatalínu. „Ég vann líka að ýmsum smærri verkefnum med öðrum fata-, skartgripa- og töskufyrir- tækjum,“ segir Áslaug en í gegn- um þessa vinnu byggði hún upp öflugt tengslanet í tískuheimi New York, þar á meðal kynnt- ist hún samstarfskonu sinni í Moda Operandi, Lauren Santo Domingo, sem vinnur fyrir bandarísku útgáfuna af tímarit- inu Vogue. Spurð hvernig það kom til að hún ákvað að stofna eigið fyrir- tæki, segir Áslaug að hún hafi fengið hugmyndina fyrir um það bil ári. „Eftir því sem tíminn leið varð ég spenntari og spenntari fyrir henni. Það sérhæfir sig enginn annar í að selja tísku með þess- um hætti. Ég sá mjög stórt tæki- færi og mikla þörf fyrir fyrirtæki af þessu tagi. Ég var alls ekkert á leiðinni að stofna nýtt fyrir- tæki en svo varð ég algjörlega heltekin af hugmyndinni og þá varð ekki aftur snúið.“ Varfærnir milliliðir fjar- lægðir Áslaug segir að einn af helstu kostum Moda Operandi sé að konur fái tækifæri til að velja sjálfar það sem þeim líst best á úr línum tískuhönnuða. Eins og staðan er núna ráða innkaupa- stjórar stærstu tískuverslana gríðarlega miklu um hvað fer í framleiðslu úr hverri línu. Til- heiging innkaupastjóranna er gjarna að velja þá hluti sem þeir telja sig tiltölulega örugga um að muni seljast. Fyrir vikið er algengt að heyra hönnuði kvarta yfir því að þeirra eftirlætishlutir séu aldrei framleiddir. Þessa hindrun ætlar Moda Operandi að fjarlægja og hönnuðurnir hafa fagnað því. Áslaug útskýrir að þrátt fyrir að hver hlutur sé nánast sér- framleiddur fyrir viðskiptavini síðunnar geti þeir skilað fatnaði sem ekki passar eða þeir eru ekki ánægðir með af öðrum orsökum. Moda Operandi verður opnuð samhliða tískuvikunni í New York í febrúar. Áherslan verður fyrst um sinn lögð á kvenfatnað og fylgihluti en stefnt er að því að víkka út sviðið og bæta við vörum fyrir karlmenn síðar. Gerast þarf félagi til að versla á síðunni og reiknar Áslaug með að þeir verðir um hundrað þús- und talsins í lok 2011. Hún segir að Íslendingar séu velkomnir í þann hóp. -jk Waris Ahluwalia Bandarískur skartgripahönn- uður af indverskum ættum og leikari í hjáverkum. Hannar undir eigin vörumerki House of Waris og rekur verslun undir sama nafni í New York. Var í 15. sæti lista tímaritsins Vanity Fair yfir best klæddu menn heims. Áslaug Magnúsdóttir hefur starfað í tískuheimi New York undanfarin ár. Matthew Williamson Enskur tískuhönnuður. Var um tíma hönn- unarstjóri lúxusvöru- framleiðandans LVMH en hannar nú fatnað, fylgihluti og fleira undir eigin nafni. Er með verslanir í mörgum af stærstu borgum heims. Rachel Roy Bandarískur tískuhönnuður með eigið merki. Meðal fastra viðskiptavina eru Michelle Obama, Diane Sawyer, Kate Hudson, Jennifer Garner, Iman, Lucy Liu, Sharon Stone og Penelope Cruz. viðtal 23 Helgin 10.-12. desember 2010

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.