Fréttatíminn - 10.12.2010, Side 54

Fréttatíminn - 10.12.2010, Side 54
54 viðhorf Helgin 10.-12. desember 2010 Í apríl 2008 bauð ríkið út tvo af átta þráðum NATO-ljósleiðarans og fékk Vodafone einn þráð til umráða. Vodafone hefur ekki enn fengið aðgang að þræðinum. Nú hefur Míla kært útboðið til ESA og var viðtal við Pál Á. Jónsson, forstjóra Mílu, af því tilefni í síðasta tölublaði Fréttatímans. Rétt er að gera athuga- semdir við fullyrðingar Páls. Í viðtalinu gerir Páll meðal annars að um- talsefni að Vodafone sleppi „við allt sem kall- ast kostnaður við lagningu, endurnýjun og afskriftir sem hlaupi á hundruðum milljóna“. Fróðlegt væri að fá upplýsingar frá Páli um hversu stór hluti upprunalega NATO-ljósleiðar- ans hefur verið endurnýjaður. Kverkatak á fjarskiptum Páll segir að það sé rugl að Vodafone þurfi að- eins að greiða kostnað við reksturinn en ekki hluta af uppbyggingunni. Á sama hátt má segja að það sé rugl að Míla hafi kverkatak á fjar- skiptum í landinu með yfirráðum yfir fimm af átta ljósleiðaraþráðum NATO-ljósleiðarans sem nær hringinn í kringum landið. Sú stað- reynd sýnir að fyrirtækið hefur yfirburðastöðu á fjarskiptamarkaði. Þessa stöðu nýtir fyrir- tækið til að spyrna við allri samkeppni, sérstak- lega í dreifbýli. Það hljómar því vægast sagt hlálega þegar „Míla ... telur að með útboðinu hafi ríkið skekkt samkeppnisstöðu á fjarskipta- markaði alvarlega.“ Staðreyndin er sú að með þessu var ríkið að laga samkeppnisstöðu á fjar- skiptamarkaði, ekki að skekkja hana. Útboðið „skekkti“ hins vegar einokunaraðstöðu Mílu „alvarlega“. Míla hefur þráast við að afhenda Vodafone þann þráð í NATO-leiðaranum sem fyrirtæk- inu ber en þar hefur Míla barist um á hæl og hnakka og beitt öllum brögðum til að tefja af- hendingu hans. Þar hefur Míla sýnt sitt rétta einokunarandlit. Þegar Míla gat ekki lengur komið í veg fyrir afhendingu þráðarsins til Vodafone sendi fyrirtækið kæru til ESA til að reyna að tefja enn frekar fyrir afhendingu hans. Reynsla Öræfinga Síðastliðið sumar tók Fjarskiptafélag Öræfinga (FÖ) í notkun fullkomið (1 Gbits) ljósleiðara- kerfi. Í undirbúningi þess höfðu fulltrúar FÖ samband við Símann og Vodafone til að kanna hvort fyrirtækin væru reiðubúin að þjónusta íbúa þessarar fyrrum afskekktustu sveitar landsins. Ítrekað var reynt að hafa samband við Símann og fá fund, án ár- angurs. Viðtökur Vodafone voru hins vegar þær að fyrirtækið tók þetta litla fjarskiptafélag undir sinn verndarvæng og þjónustar nú íbúa Öræfa og hluta Suður- sveitar á sömu kjörum og með sömu gæðum og íbúum býðst á höfuðborgarsvæðinu. Í ljósi þessa er því hægt að vísa þeim orðum Páls heim til föðurhúsa að Vodafone geti „... valið úr þau landsvæði sem skila mestum tekjum“. Reynsla Öræfinga er sú að Vodafone er reiðubúið að veita góða þjón- ustu þegar eftir henni er leitað, hvort sem við- komandi landsvæði skilar miklum tekjum eða litlum (þess skal getið að tengd hús á svæði FÖ eru 45 talsins). Ef stuðningur Vodafone við Öræfinga hefði ekki komið til er ekki víst að ljósleiðarakerfi Öræfinga hefði orðið að veru- leika. Míla spyrnir við fótum Í stað þess að nýta sér yfirburðastöðu á mark- aði og bjóða bestu þjónustu sem völ er á til hags- bóta fyrir viðskiptavini fyrirtækisins spyrnir Míla við fótum hvar sem hún getur til að drepa samkeppni og vera dragbítur á framfarir í fjarskiptum, að minnsta kosti í dreifbýli. Fyrirtækið lítur á ljósleiðarakerfi sitt sem heilaga kú sem enginn megi snerta eða komast inn á. Dæmi eru um að einstaklingar á landsbyggðinni hafi verið reiðubúnir að leggja ljósleiðara á eigin kostnað heim að húsum sínum og óskað eftir því að tengjast ljósleiðarakerfi Mílu. Í stað þess að verða við þessum sjálf- sögðu óskum hefur Míla hafnað slíkum beiðn- um. Íbúum í dreifbýli er nauðsynlegra að hafa aðgang að fullkomnum fjarskiptum en íbúum í þéttbýli. Í stað þess að barma sér undan sam- keppni Vodafone ætti Míla að einbeita sér að því að leggja ljósleiðara í öll hús í dreifbýli þar sem því er ekki þegar lokið. Í ljósi kæru Mílu til ESA tel ég rétt að Voda- fone kæri Mílu til samkeppnisyfirvalda og til ESA fyrir að hagnýta sér einokunaraðstöðu og yfirburði á markaði og koma þannig í veg fyrir eðlilega samkeppni (og raunar einnig framþróun) á fjarskiptamarkaði. Ingólfur Bruun hugmyndasmiður Fjarskiptafélags Öræfinga Um kæru Mílu til ESA vegna útboðs ríkisins á ljósleiðaraþráðum í eigu NATO Barist um á hæl og hnakka Vertu með! Þú getur komið með þína gjöf í útibú okkar og við komum henni til skila svo allir geti haldið gleðileg jól. Starfsfólk Íslandsbanka safnar gjöfum fyrir Jólaaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar, Mæðrastyrksnefndar, Rauða krossins í Reykjavík og Hjálpræðishersins. Söfnum jólagjöfum fyrir Jólaaðstoðina H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 1 0 - 1 9 6 3

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.