Fréttatíminn - 10.12.2010, Síða 58
Kristín Marja Baldursdóttir getur
verið sæl með dóm í Berlingnum
á dögunum þar sem Kathrine
Lilleør hrósar henni í hástert
fyrir Karlsvagninn í danskri
þýðingu Áslaugar Th. Rögnvalds-
dóttur. Hún er raunar ekki síður
að lofa bækurnar um Karítas,
segir Kristínu hafa meistaratök
á sögu norrænna kvenna fyrr og
síðar, mestri furðu sæti að hún
trúi ekki nógu mikið á sögugáfu
sína.
Karlsvagninn
í Danaveldi
Bókadómur Svar við Bréfi Helgu BergSveinn BirgiSSon
r ammi bókar Bergsveins Birgissonar er einfaldur: Höfuðdaginn 1997 sest aldraður maður niður og skrifar
bréf til konunnar sem hann elskaði.
Bergsveinn er merkilegur höfund ur:
Hann hefur áhuga á öðrum sögu sviðum
en flestir samherjar hans á bókmenntaakr-
inum, hann er hugmynda ríkur, sækir sér
stíl út fyrir alfaraleið, hefur styrk tök á stíl,
er næmur fyrir persónum, fyndinn og hikar
ekki við að hella sér í það harmræna ef því
er að skipta.
Í þessari stuttu sögu kemur líka í ljós
að hann leikur sér að skoplegustu hlutum í
bland við djúpan harm. Með Svari við bréfi
Helgu sest hann á fremsta bekk í Rithöf-
undasambandinu og aðrir verða þá að færa
sig aftar í hofinu.
Ástarsagan sem í sögunni er rakin er
okkur þekkt: hún fór suður, hann varð eft-
ir. Hún flutti í hálfbyggða blokk við hliðina
á kampinum, hann hellti sér í nýrækt og
fjárhirðu. Bergsveinn klæðir þessa sígildu
sögu samfélagsbreytinganna, sem gengu
yfir Ísland á síðustu öld, smekklega inn í
safaríka og lífmikla ævisögu þessa aldr-
aða manns. Hún er bundin dásamlegum
lýsingum á horfnum heimi búnaðarhátta,
yndislega kurteisum erótískum köflum í
bland við kátbrosleg tíðindi úr sveitasam-
félagi. Orðskrúð, fyrnska, mergjað málfar
og sprelllifandi andar af síðum sögunnar og
kætir þreyttan lesanda sem situr vonlítill
eftir skáldsöguuppskeru haustsins. Loks-
ins kom eitthvað sem bragð var að.
Bréfritari er alla jafna varasamur les-
anda: Hann vill svo oft leyna og kemur
því gjarna upp um sig. Bréfaformið kallar
á nákvæman lestur, ekkert flaustur, enda
Aldrei fór hann suður
Bergsveinn Birgisson sendi frá sér þriðju bókina fyrir nokkrum vikum, Svar við bréfi Helgu, og
hefur uppskorið mikið lof fyrir þessa nóvellu sem hann skrifar inn í sendibréfsformið.
Svar við bréfi
Helgu
Bergsveinn Birgisson
Kjartan Hallur
myndskreytti
106 bls. Bjartur
58 bækur Helgin 10.-12. desember 2010
Stofustáss á borð við þessa ljósmyndabók Ragnars
Axelssonar, Veiðimenn norðursins, með textum
Marks Nuttall er nú orðið algengt á íslenskum heim-
ilum; sjaldgæfara er að slíkar bækur, of þungar til
lesturs nema borðliggjandi, séu alfarið unnar af ís-
lenskum mönnum. Bók Raxa er stór, 270 bls. 297x320
mm, vandlega saumuð á úrvalspappír en bylgjaði sig
nokkuð í kuldanum í vikunni þá henni var flett. Það
er Kristján B. Jónasson í Crymogea sem gefur út og
er bókin öll hin vandaðasta.
Óþarft er að kynna Rax fyrir íslenskum lesendum;
myndir hans úr Morgunblaðinu hafa um langt árabil
verið helsta stáss þess blaðs. Þá hefur áhugi hans og
vinna á Grænlandi lengi verið á almanna vitorði; ekki
færri en tvær heimildarmyndir eru til um ferðir hans
og vinnu þar norður frá.
Í Veiðimönnum norðursins birtast, ýmist í lit eða
svarthvítu, forkunnar fallega formaðar myndir hans,
ýmist heilar á síðu eða leggjandi sig á opnur sem þess-
um penna þykir jafnan ljóður á myndbirtingum því
myndheimurinn fellur þá í tvennt, sem skaðar yfirlit
upplifunar myndefnisins þótt opnubirting mynda gefi
oft til kynna tígulleik og valdsvið myndar.
Textar bókarinnar eru inngangur um nágranna
okkar, skýra margt í lífsháttum þeirra og gefa um
leið upplýsingar um víðfeðmi byggða þjóðarbrotanna
sem settust að við nyrsta haf, hringinn í kringum
pólinn. Hér má sem sagt fá margan fróðleik um ná-
grannaþjóðir sem íslenski rasisminn, sem er okkur
innbyggður, hefur afgreitt sem skrælingja lengi, lengi.
Þá fer fram í myndunum ýmsum sögum og ef eitthvað
einkennir bókina þá er það ofgnótt. Hér er svo margt
sem una má við að lesandinn verður saddur snemma,
enda bókinni ætlað að kalla lesendur til oft og lengi.
Ragnar er hefur engan einn stíl sem ljósmyndari.
Verk hans í bókinni bera fjölhæfni hans sem mynda-
smiðs gott vitni. Hér eru hreinar landslagsstúdíur,
formstúdíur á ísmyndunum í bland við félagslegar
rannsóknir, seríur af veiðiferðum. Allt ber þetta vott
um áralanga ástundun, ást og virðingu á viðfangsefn-
inu. Og erindið er brýnt í bókarlok: Þessi heimur er
að hverfa og kennir Rax hitanum um. En bók hans er
afrek og hinn merkasti bókgripur. -pbb
Stórvirki RAX
Bókadómur veiðimenn norðurSinS raX
Með Svari
við bréfi
Helgu sest
Berg sveinn á
fremsta bekk
í Rithöfunda
sambandinu
og aðrir
verða þá að
færa sig aftar
í hofinu.
veiðmenn
norðursins
Ragnar Axelsson
Inngangur: Mark Nuttall
Hönnun: Bergdís
Sigurðardóttir
Þýðing: Haraldur
Ólafsson
272 bls. Crymogea.
vinSælt
eldgoS
Ljósmynda- og fræði-
bókin Eyjafjalla jökull
eftir Ari Trausta Guð-
mundsson og Ragnar
Th. Sigurðs son er í
efsta sæti fræði-
bókalista Eymunds-
son og því fjórða á
aðallistanum.
er hér á ferðinni texti sem heimtar að
kjamsað sé á hverjum bita. Nú er Berg-
sveinn menntaður höfundur á sína vísu.
Stíll hans ber vott um ríka þekkingu á
liðnum búnaðarháttum, orðaval hans vís-
ar til þess að hann stendur djúpt báðum
fótum í íslensku máli sem mörgum kann
að sýnast fornlegt. Stundum kemur höf-
undur upp um sig í slíkum stílbrögðum
með dálæti á einu orði – lesanda er látið
eftir að finna það í þessari bók. Sagan er
ekki löng, rétt um hundrað síður. Hún er
fallega frágengin og skrýdd kaflaskreyt-
ingum eftir Kjartan Hall. Þá fylgir bók-
inni stuttur eftirmáli höfundar þar sem
hann þakkar sögumönnum á Ströndum
þann skóla sem hann gekk í sem áheyr-
andi. Í sögunni felst því viðurkenning og
yfirfærsla á fornum arfi munnlegrar frá-
sagnar sem hér hefur tíðkast frá alda öðli
og verður líklega seint útdauð.
Í þessari sögu er hún hafin í annað
veldi, bundin í frábærlega unninn stíl
um sígilt íslenskt söguefni sem teygir
sig lengra því sagan er klassísk í hugsun
sinni, lesanda til ómældrar ánægju og
höfundi til sóma.
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Síðasta hefti þessa árs af tímariti Máls og menningar
er komið til áskrifenda. Það er 146 bls. og fylgir með
efnisyfirlit ársins. Heftið er stútfullt af áhugaverðu
efni: Hrungreinar eftir Ásgeir Friðgeirsson og Hauk
Má Helgason og greining Guðna Elíssonar á nýfrjáls-
hyggjunni.
Prósabrot og ljóð, auk merkilegra ritdóma um
bókina um Snorra Sturluson, verk Gyrðis frá í fyrra,
bókina um Ragnar í Smára, Bankster, ljóðabók
Matthíasar Johannessen og Hermanns Stefánssonar
eru þar helstar.
Ritstjóri TMM er Guðmundur Andri Thorsson.
Nýtt TMM
komið
Bergsveinn Birgisson Stíll hans ber vott um ríka þekkingu á liðnum búnaðarháttum, orðaval hans vísar til þess að hann
stendur djúpt báðum fótum í íslensku máli.