Fréttatíminn - 10.12.2010, Page 66
66 jólabaksturinn Helgin 10.-12. desember 2010
linis
Ómissandi með laxinum
Vörur frá Ópal Sjávarfangi fást í: Fjarðakaupum, Hagkaupum, Inspired by Iceland, Kaskó, Krónunni,
Melabúðinni, Nettó, Nóatúni, Samkaupum Strax, Samkaupum Úrval, Sparversluninni og 10-11.
B
Borgartúni 24
105 Reykjavík
Sími: 585 8700
Hæðarsmára 6
201 Kópavogur
Sími: 585 8710
Hafnarborg
220 Hafnarfirði
Sími: 585 8720
www.madurlifandi.is
Hátíðleg
Ljúffengur, hollur og næringarríkur veislumatur fyrir alvöru sælkera.
Okkar margrómaða hnetusteik er til sölu í verslunum Maður lifandi
allan desember.
hnetusteik
800 gr. | óbreytt verð frá því í fyrra
kr. 2.800.-
Hentugt
í jólaboðið
Inniheldur hvorki
mjólkuafurðir
né egg
É
g man alltaf þegar ég var unglingur
og við vorum nokkrar stelpur staddar
heima hjá einni vinkonu okkar snemma á
aðventunni, sátum í eldhúsinu og vorum
að spjalla saman. Allt í einu spurði hún:
„Stelpur, hverju safna mömmur ykkar?“ Það varð eitt-
hvað fátt um svör, engin kannaðist við að eiga móður
sem safnaði einhverju sérstöku. Hún opnaði þá ís-
skápinn og sagði: „Mamma mín safnar eggjum.“
Þetta var á þeim árum þegar eggjaskortur var
algengt vandamál, ekki síst fyrir jólin. Húsmæður
höfðu allar klær úti við að útvega sér egg í jólabakst-
urinn og þegar egg komu í einhverja búð barst fréttin
eins og eldur í sinu – þótt þetta væri löngu fyrir daga
netsins og Facebook. Eggin voru þá oft skömmtuð,
einn bakki á mann og sums staðar voru þau einungis
seld ef annað var keypt með. Það var því reynt að nota
eins lítið af eggjum og hægt var og það var ekki fyrr
en eftir að þessu tímabili lauk sem marenstertur og
marens-smákökur náðu þeim vinsældum sem þær
hafa haft síðan, þótt þær væru vissulega þekktar áður.
Flestir vita að þegar marens er búinn til þarf að
þeyta eggjahvíturnar vel og lengi en færri átta sig á
því að það er hægt að þeyta þær of mikið. Ofþeyttur
marens lyftir sér minna en sá sem er hæfilega þeyttur
og er óstöðugri; það er búið að þeyta of miklu lofti
inn í hann og loftbólurnar sem myndast í honum og
valda því að hann þenst út eru byrjaðar að springa.
Marensinn er hæfilega þeyttur þegar topparnir sem
myndast þegar maður lyftir þeytaranum halda vel
lögun. Marensinn á líka að vera fallega gljáandi; ef
gljáinn hverfur og marensinn verður mattari er hann
ofþeyttur.
Það eru nokkur fleiri atriði sem gott er að hafa í
huga: Eggin eiga ekki að vera ísköld, það er best að
taka þau úr kæli a.m.k. hálftíma áður en hvíturnar eru
þeyttar. Það er samt auðveldara að aðskilja köld egg
og því mætti byrja á að gera það og breiða svo plast-
filmu yfir skálina með hvítunum og láta hana standa
nokkra stund. Þá þeytast þær miklu betur en ef þær
eru ískaldar.
Skálin þarf að vera tandurhrein og þeytararnir líka.
Best er að nota ekki plastskál því það gæti setið ósýni-
leg fitufilma innan á henni og truflað þeytinguna.
Sama er að segja um raka og því er um að gera að
þerra skálina og þeytarana vel.
Best er að hálfþeyta hvíturnar áður en byrjað er
að bæta sykri út í smátt og smátt. Ef sykur er settur
út í strax í upphafi getur það lengt þeytingartímann
mikið. Þær þeytast betur ef svolítið salt er sett út í og
verða stöðugri ef ögn af vínsteini (cream of tartar) er
bætt út í. Hvorugt er þó nauðsynlegt.
Marensinn „grætur“, það er vatnsdropar
myndast á yfirborðinu þegar marensinn
er bakaður: Hann er sennilega ofbakaður,
annaðhvort of lengi eða við of háan hita.
Sennilega er hann líka seigur. Styttu
bökunartímann eða lækkaðu hitann.
Marensinn springur í ofninum eða þegar
hann kólnar: Sennilega er hlutfall sykurs
of lágt. Hæfilegt sykurmagn er gjarna
talið 50-60 g fyrir hverja eggjahvítu.
Marensinn festist við bökunarpappírinn:
Hann ætti að losna sjálfkrafa þegar hann
er fullbakaður, þá er botninn orðinn þurr
og loðir ekki lengur við. Bakaðu hann
aðeins lengur.
S arah Bernhardt fæddist í París árið 1844. Hún
var frægasta leikkona
heims á sínum tíma,
lék mörg þekktustu
hlutverk heims-
bókmenntanna og
lék meira að segja
Hamlet í stuttmynd
árið 1900. Hún var
geysilega vinsæl um
alla Evrópu og raunar
víðar.
Árið 1907 komu
endurminningar
hennar út og fjórum
árum síðar voru þær
þýddar á dönsku og
gefnar út í Danmörku. Af því tilefni heimsótti leikkonan Danmörku. Hún
var þá komin hátt á sjötugsaldur. Danir vildu gera eitthvað sérstakt til að
fagna leikkonunni og bakaranum Johannes Steen var falið að skapa nýja
köku. Hann brást vel við og bjó til súkkulaðiþaktar möndlumakrónur
með súkkulaðitrufflufyllingu – kökurnar sem við þekkjum nú sem Söru
Bernhardt-kökur eða sörur.
Oft er sagt að Ástríður Guðmundsdóttir hafi fyrst birt uppskrift að
sörum á íslensku, í Gestgjafanum 1987. Það var áreiðanlega þessi upp-
skrift sem varð til þess að breiða út söru-fagnaðarerindið um landið,
enda var hún í köku- eða jólablaðinu, þegar fólk er í smákökustuði. En
fyrsta uppskriftin sem ég hef fundið (Sarah Bernhardt Lúxus smákök-
ur) birtist þó í Morgunblaðinu 3. júní 1980. Sennilega hafa fáir freistast
til að baka sörur í júní og uppskriftin sló ekki í gegn fyrr en Ástríður
birti hana nokkrum árum síðar.
Nokkur algeng marensvandamál
Marensbakstur
og eggjaþeyting
Flestir vita
að þegar
marens
er búinn
til þarf að
þeyta eggja
hvít urnar vel
og lengi en
færri átta sig
á því að það
er hægt að
þeyta þær of
mikið.
Hver var Sarah
Bernhardt og
af hverju heita
sörur eftir henni?