Fréttatíminn - 10.12.2010, Side 78
78 bíó Helgin 10.-12. desember 2010
P resturinn Cotton Mar-cus býr með eiginkonu sinni og syni í Baton
Rouge í Louisiana. Hann á
að baki langan feril sem sær-
ingamaður og hefur í gegnum
tíðina hrakið illa anda úr lík-
ömum fjölda fólks. Þrátt fyr-
ir þennan árangur í starfi er
hann efins í trúnni og í tals-
verðri sálarkreppu eftir að
særing hjá samstarfsmanni
hans misheppnaðist með þeim
afleiðingum að ungur drengur
lést í miðjum klíðum.
Hann ákveður því að hætta
baráttunni við útsendara djöf-
ulsins og láta allar særingar
lönd og leið. Hann lætur þó til-
leiðast að fremja eina særingu
þegar kvikmyndagerðarfólk
biður um að fá að gera heim-
ildarmynd um síðustu særingu
hans. Markmiðið með heimild-
armyndinni er að sýna fram á
að særingar séu eintóm blekk-
ing og Cotton er tilbúinn að
taka þátt í þeirri vinnu.
Hann velur af handahófi eitt
af fjölmörgum bréfum sem
honum hafa borist með beiðni
um að flæma burt illa anda.
Fyrir valinu verður Louis
Sweetzer en á bóndabæ hans
er allt í uppnámi vegna þess
að flest bendir til þess að eitt-
hvert annarlegt óféti hafi tekið
sér bólfestu í dóttur hans, Nell,
sem Ashley Bell leikur.
Tilgangurinn helgar með-
alið hjá Marcusi og hann
kemur fyrir tólum og tækjum
til þess að blekkja fjölskyldu
Nell og telja þeim trú um að
særingin sé raunveruleg. Að
loknu góðu dagsverki hverfa
Marcus og kvikmyndatöku-
liðið á braut, þess fullviss að
þeim hafi tekist að laga and-
legt ástand stúlkunnar sem
fjölskylda hennar hafði rang-
túlkað sem andsetningu. En
þá er ballið rétt að byrja þar
sem Nell birtist óvænt á hótel-
herbergi Marcusar og hegðar
sér þannig að ljóst er að ekki
er allt með felldu. Þannig að
Marcus þarf að taka á öllu sínu
til að reyna að bjarga stúlkunni
og sjálfum sér.
Hryllingsundrabarnið Eli
Roth er einn framleiðenda The
Last Exorcism en hann hefur
sýnt og sannað með mynd-
unum Cabin Fever og Hostel
að hann kann bæði að skjóta
fólki skelk í bringu og ganga
fram af því með viðbjóði. Roth
er Íslendingum að góðu kunn-
ur. Þegar hann var unglingur
dvaldi hann sumarlangt á bæn-
um Ingólfshvoli í nágrenni Sel-
foss árið 1991. Þar komst hann
í snertingu við skemmt hey og
fékk í framhaldinu skæðan
húðsjúkdóm sem varð einmitt
kveikjan að Cabin Fever. Þá
heimsfrumsýndi hann, ásamt
vini sínum Quentin Tarantino,
Hostel á Íslandi að viðstaddri
Þorgerði Katrínu Gunnars-
dóttur, þáverandi mennta-
málaráðherra, auk þess sem
forsetinn bauð félögunum á
Bessastaði.
Aðrir miðlar: Imdb: 5,8/10, Rotten
Tomatoes 72%, Metacritic: 63/100
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
the Last exorcism andsetin stúLka gerir Presti Lífið Leitt
Ashley Bell leikur hina andsetnu Nell með miklum tilþrifum en eins og al-
kunna er á andsetið fólk það til að fetta sig, beygja og teygja í allar áttir.
Bell gerði allar sínar leikfimiæfingar sjálf og engar tæknibrellur voru
notaðar þegar hún er sýnd taka beygjur sem flestir telja ómögulegar.
Særingamaður í
vondum málum
Illir andar fara mikinn í kvikmyndahúsum í Reykjavík þessa dagana. Í Paranormal Activity 2
ofsækir púki bandaríska vísitölufjölskyldu og í The Last Exorcism, sem er frumsýnd í dag, tekur
annar álíka andskoti sér bólfestu í líkama ungrar stúlku.
Tilgang-
urinn
helgar
með-
alið hjá
Marcusi
og hann
kemur
fyrir
tólum og
tækjum ...
P aranormal Activity virkaði merkilega vel sem hryllingsmynd
í hráum einfaldleika sínum
og sló óvænt í gegn í fyrra.
Myndin var gerð fyrir lítinn
pening og tekin á stuttum
tíma þannig að hún skilaði
vitaskuld miklum gróða.
Það verður ljóst strax í
upphafi Paranormal Acti-
vity 2 að ætlunin er að feta
örugga slóð fyrri myndar-
innar án þess að brydda upp
á of mörgum nýungum. Hér
eru að vísu líf og limir heillar
fjölskyldu í veði þegar óskil-
greindur og ósýnilegur púki
byrjar að herja á heimilið. Í
fyrri myndinni var aðeins
ungt kærustupar í skotlínu
skrattakollsins. Myndunum
er fléttað ágætlega saman
þar sem húsmóðirin í nýju
myndinni er systir konunnar
sem óværan tók á taugum í
fyrra og sögutími myndanna
rennur saman og í raun eru
það atburðir myndar númer 2
sem hrinda atburðarás fyrri
myndarinnar af stað.
Paranormal Activity 2
byrjar á því að hjónin koma
sæl og glöð heim af fæðingar-
deildinni með nýfæddan son
sinn en fyrir á heimilinu er
unglingsdóttir eiginmanns-
ins frá fyrra sambandi og
roskin, spænskættuð barn-
fóstra sem veit sitt hvað um
illa anda. Ekki líður á löngu
þar til húsið er bókstaflega
lagt í rúst, að því er virðist af
skemmdarvörgum sem hirtu
ekki um að stela neinum
verðmætum. Þá eru öryggis-
myndavélar settar upp úti um
allt hús og við fáum aðallega
að fylgjast með draugagang-
inum í gegnum þær. Fjöldi
myndavélanna er helsta ný-
breytnin síðan síðast og sjón-
arhorn áhorfandans víkkar
talsvert með þeim. Þar fyrir
utan eru möguleg fórnar-
lömb púkans öllu fleiri núna
en þar fyrir utan er um hálf-
gert ljósrit af fyrri myndinni
að ræða með þeim göllum að
spennan ristir ekki nándar
nærri jafn djúpt og það sem
var ferskt og sniðugt fyrir
ári er frekar þreytt í töku tvö.
Þórarinn Þórarinsson
Reikistefna óhreins anda
bíódómur ParanormaL activity 2
Nú ógnar illi andinn litlu barni
en það er vitaskuld skothelt
bragð að stefna börnum í lífs-
hættu.
Ævintýrin í
Narníu halda
áfram og sem
fyrr gengur
mikið á.
Bíómyndirnar um ævintýraferðir krakkanna Lucy, Ed-
mund og Eustace til Narníu hafa notið mikilla vinsælda.
Nú er þriðja myndin komin í bíó á Íslandi og að þessu sinni
eru herlegheitin í þrívídd. Myndirnar byggjast á sígildum
sögum C.S. Lewis og þegar hér er komið sögu slást
krakkarnir í för með Caspían prinsi á skipinu Dagfara.
Á siglingunni, sem endar við endimörk heimsins, verða
á vegi þeirra alls konar furðufyrirbæri og forynjur, þar á
meðal drekar, dvergar og hafmeyjar.
Aðrir miðlar: 7,0/10 Rotten Tomatoes: 63% Metacritic -
Þriðja ferðin til Narníu
Trainspotting 2?
Trainspotting er ein þeirra mynda sem
festu leikstjórann Danny Boyle í sessi.
Af og til hefur umræða um framhalds-
mynd skotið upp kollinum og nú er Boyle
byrjaður að viðra slíkar hugmyndir. Hann
segist telja nokkuð víst að af framhald-
inu verði og hann og hans fólk sé þegar
komið með nokkuð skýra mynd af því
hvernig þau vilji sjá hana. Nokkur óvissa
er þó um það hvort Ewan McGregor
fæst til að endurtaka rullu Rentons en
þeir Boyle hafa verið í fýlu hvor út í
annan í allnokkur ár. Robert Carlyle
segist hins vegar vera til í að leika Begbie
strax í næstu viku og það launalaust.
Clooney spáir í
Enron
George Clooney er ósmeykur við að
takast á við umdeild verkefni, bæði sem
leikari og leikstjóri, og hann er nú sagður
hafa augastað á hinu vinsæla breska
leikriti Enron sem hefur víða verið sýnt
við miklar vinsældir. Clooney mun vilja
koma verkinu á hvíta tjaldið og hefur hug
á að framleiða bíómynd byggða á því og
jafnvel leikstýra henni.
Hryllingsmyndin The Exorcist
frá árinu 1973 markaði ákveðin
tímamót í sínum geira og
óhætt er að segja að hún hafi
komið flatt upp á áhorfendur
sem margir hverjir yfirgáfu
kvikmyndahúsin í rusli. Myndin
gekk nær fólki en það átti að
venjast og sögur komust á
kreik um fólk sem féll í yfirlið
yfir myndinni og gott ef ein-
hverjir köstuðu ekki hreinlega
upp.
The Exorcist stenst tímans tönn
vel og lifir enn á fornri frægð
og er sú mynd sem allar aðrar
særingamyndir lenda óhjá-
kvæmilega í samanburði við.
Leikstjórinn William Friedkin,
sem hafði áður slegið í gegn
með The French Connection,
gerði The Exorcist eftir
samnefndri sögu Williams
Peters Blatty um unglings-
stúlkuna Regan sem gerir líf
einstæðrar móður sinnar að
martröð þegar púkinn Pazuzu
sest að í líkama hennar. Linda
Blair öðlaðist heimsfrægð
fyrir túlkun sína á Regan en
náði ekki að festa sig í sessi í
fremstu röð leikkvenna.
Jesúítapresturinn Damien
Karras er kallaður til. Hann
er veikur í trúnni og púkinn á
auðvelt með að finna á honum
snögga bletti þannig að Karras
sér ekki aðra leið færa en að
leita til hins eina sanna sær-
ingamanns, Lankester Merrin,
sem Max von Sydow lék
eftirminnilega. Leiðir Merrin og
Pazuzu hafa áður legið saman
þannig að fjandinn verður svo
sannarlega laus þegar þessir
andstæðingar mætast á ný.
Merrin mætir til fundar við
gamlan óvin á heimili Regan.
Hinn eini sanni særingamaður
Iron Man háður
félögum sínum
Þótt þegar hafi verið ákveðið að
Iron Man 3 komi í bíó hinn þriðja
maí 2013 hefur enginn hugmynd
um hvernig handritið
kemur til með að líta út.
Ástæðan er einfaldlega
sú að saga Iron Man
kallast á við aðrar Mar-
vel-hetjumyndir sem
munu koma á undan
og eitthvert samræmi
verður að vera á milli
mynda. Járnkallinn er
því háður því sem Þór, Hulk, Captain
America og The Avengers taka sér
fyrir hendur á næstunni.
Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum N1 um land allt
HELGARBLAÐ