Fréttatíminn - 10.12.2010, Blaðsíða 81
bíó 81 Helgin 10.-12. desember 2010
Í síma 575 7575
og á fabrikkan@fabrikkan.is
BORÐAPANTANIR
× Mættu á Fabrikkuna og pantaðu
× Taktu matinn með
× Hámarksbiðtími 15 mín.
Meðalbiðtími eftir mat á
Fabrikkunni er aðeins 8 mínútur
frá því að pöntun er tekin.
TAKE AWAY FLJÓTLEGT Í HÁDEGINU
Tónleikaröðinni lýkur á Þorláksmessukvöld
þegar JÓN JÓNSSON stígur á svið kl. 22.00 og heldur
uppi gleðinni á Jóla Happy-Hour kvöldi.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
A
F
5
25
65
1
1/
10
HÁDEGISTÓNLEIKAR Á FABRIKKUNNI Í DESEMBER!
LANDSLIÐ TÓNLISTARMANNA KYNNIR JÓLAPLÖTUR SÍNAR Á FABRIKKUNNI Í HÁDEGINU Í DESEMBER
Mánudagur 6. des. – klukkan 12
JÓNAS SIGURÐSSON
Þriðjudagur 7. des. – klukkan 12
VALGERÐUR GUÐNADÓTTIR
Miðvikudagur 8. des. – klukkan 12
GISSUR PÁLL
Mánudagur 13. des. – klukkan 12
SELMA BJÖRNS
Þriðjudagur 14. des. – klukkan 12
PÁLL ÓSKAR
Miðvikudagur 15. des. – klukkan 12
BJARTMAR OG BERGRISARNIR
Mánudagur 20. des. – klukkan 12
BLAZ ROCA
Þriðjudagur 21. des. – klukkan 12
FRIÐRIK DÓR
Miðvikudagur 22. des. – klukkan 12
LIFUN
Fimmtudagur 23. des. – klukkan 12
KLASSART
TÓNLEIKARNIR HEFJAST KL. 12 Á HÁDEGI OG ER DAGSKRÁIN SEM HÉR SEGIR:
L öngu fyrir daga Internetsins og 3G -farsíma, þegar tölvur voru svo miklir hlunkar að
þær fylltu heilu herbergin, bauð
Disney upp á tölvufantasíuna
TRON árið 1982. Í þessari mynd,
sem allir almennilegir nördar
flokka sem klassík, tókust sjálf-
lýsandi neon-kallar á upp á líf og
dauða að hætti skylmingaþræla
inni í tölvuleik. Jeff Bridges lék
forritarann Kevin Flynn sem var
bókstaflega dreginn inn í heim
tölvuleiksins þar sem hans eina
von um að sleppa til baka í heilu
lagi var hugdjarft öryggisforrit,
sjálfsagt eitthvað sem væri kallað
vírusvörn í dag.
Það er fyrst nú 28 árum síðar
sem langþráð framhald, TRON:
Legacy, lítur dagsins ljós. Þar
mætir til leiks Sam nokkur Flynn,
sonur Kevins úr fyrri myndinni.
Kevin hvarf sporlaust fyrir tuttugu
árum þegar Sam var sjö ára og alla
tíð síðan hefur drengurinn verið
heltekinn af ráðgátunni um hvað
orðið hafi um föður hans. Eplið
féll heldur ekki langt frá eplatrénu
þar sem Sam hefur sérhæft sig í
forritun og tölvuleikjum rétt eins
og sá gamli. Þegar hann fær óvænt
vísbendingu um afdrif pabba síns
endar hann í tölvuleikjasal föður-
ins sem hefur staðið auður í tvo
áratugi. Á bak við tölvuleikinn
TRON finnur hann leyniherbergi
sem dregur hann inn í heim leiks-
ins. Þar finnur hann föður sinn
sem hefur mátt dúsa í stafrænni
veröldinni í tuttugu ár og þá verða
þeir feðgar að snúa bökum saman
til þess að komast til baka.
TRON verður frumsýnd á annan
í jólum.
Fjórir góðir saman; Robert De Niro,
Owen Wilson, Ben Stiller og Harvey
Keitel.
Þriðja lota með
tengdapabba
Fjölskyldugrínið Meet the Parents
með þeim Robert De Niro og Ben
Stiller hitti í mark árið 2000 en
þar lék De Niro Jack Byrnes sem
leist ekkert á aulalegan tilvonandi
tengdason sinn, Greg Focker, sem
Stiller lék. Þeir tóku því annan
snúning Í Meet the Parents þar
sem Dustin Hoffman og Barbra
Streisand bættust í hópinn í hlut-
verkum óþolandi foreldra Gregs
sem reyndu verulega á þolrifin í
tengdapabbanum stífa.
Og nú er liðið samankomið í
þriðja sinn í Little Fockers. Nú hafa
tvíburar bæst í hópinn þar sem
Greg hefur tekist að gera Jack að
tvöföldum afa. Barnalánið virðist
þó ekki ætla að duga til þess að
sannfæra Jack um að Greg sé sá
eini rétti fyrir dótturina. Sá gamli,
sem er fyrrverandi leyniþjónustu-
maður, grunar Greg ennþá um
græsku og hefur nánar gætur á
tengdasyninum með ófyrirsjáan-
legum afleiðingum.
Jessica Alba, Owen Wilson og
Harvey Keitel koma ný inn og lífga
upp á þennan þriðja fjölskyldufund
Fockeranna og Byrnes-hjónanna.
Little Fockers verður frumsýnd á
annan í jólum.
Megamind kemst í hann krappan þegar
áætlun hans um að búa sér til andstæðing
snýst í höndunum á honum.
Ofurskúrkur þráir
óvin
Teiknimyndin Megamind ætti að
tryggja að ungviðið fari ekki í
jólaköttinn en hér er boðið upp
á hressilegt grín sem byggist að
miklu leyti á sögunni um Super-
man. Megamind er ofurgreind
geimvera sem er send til Jarðar
þegar hætta steðjar að heima-
plánetunni. Sveitungi hans, Metro
Man, hafnar líka á Jörðinni og slær
í gegn sem ofurhetja þannig að
Megamind, sem er byggður á Lex
Luthor, erkifjanda Supermans,
húkir í skugga hans og gerist því
rakið illmenni.
Sá ferill er frekar brösóttur þar
sem Metro Man tekst alltaf að
klekkja á honum allt þar til Mega-
mind losar sig við andstæðinginn
góða í eitt skipti fyrir öll. Án óvinar
verður tilveran Megamind hins
vegar ósköp fátækleg þannig að
hann reynir að breyta lúðanum Hal
í ofurhetju. Sá ákveður aftur á móti
að ráðast á mannkynið og þá eru
góð ráð dýr fyrir Megamind.
Megamind verður frumsýnd 17.
desember.
tRON
28 ára bið á enda
Þegar Disney lét loks
verða af því að gera
framhald af TRON var
ekkert til sparað og
búningarnir í myndinni,
einir og sér, kostuðu 13
milljónir dollara.
megamiNd
LittLe FOckeRs