Fréttatíminn - 10.12.2010, Page 82

Fréttatíminn - 10.12.2010, Page 82
82 tíska Helgin 10.-12. desember 2010 Mánudagur Skór: GS skór Buxur: Kultur Bolur: Sautján Jakki: Centrum Armband: Frakkland Hringur: Sautján Þriðjudagur Buxur: Sautján skór: GS skór Jakki: Sautján Bolur: Sautján Miðvikudagur Skór: GS skór Buxur: Sautján jakki: H&M Loð: Sautján Arrogant Cat er draumabúðin Guðlaug Elísa Einarsdóttir, eða Gulla eins og hún er kölluð, er 28 ára og hefur mikinn áhuga á fötum og lestri og finnst ekkert betra en að verja tíma með fjöl- skyldu og vinum. „Mér finnst ég ekki hafa neinn ákveðinn stíl. Yfirleitt fer ég í það sem mér finnst flott og þægilegt. Erfitt að afmarka hann,“ segir Gulla eftir umhugsun. „Ég skoða mikið tískublöð og fæ mikinn innblástur þaðan. Reyni alltaf að komast í nýjasta Vogue eða Cosmopolitan. Svo er fatasíðan lookbook.nu alltaf áhugaverð. Fólk alls staðar úr heiminum hendir myndum af fatnaði dagsins þangað inn.“ Fatn- aður hennar kemur alls staðar að og hún hefur greinilega mikið vit á tísku. „Ég versla svona helst í Gallerí Sautján, Cultur, Aftur og H&M þegar færi gefst á. Svo er draumabúðin mín Arrogant Cat í London. Væri til í að eiga alla verslunina.“ tíska Kolbrún Pálsdóttir skrifar Ljósabekkja­ stofur fara seint á hausinn Ég horfi í spegilinn og finnst eitthvað vanta. Þreytan leynir sér ekki í augunum en það virðist ekki vera vandamálið. Pottþétt ekki. Heillengi stend ég í sömu sporum og reyni að átta mig á aðstæðunum. Ég strýk í gegnum hárið. Og þá kviknar á perunni. Það er kominn desember og sólin hefur ekki sést í margar vikur. Fölvinn. Það sem einkennir húðlit okkar, sérstaklega á þessum tíma árs, er fölvinn. Sólin nær ekki eins mikið til okkar og óskandi væri og við bíðum í örvæntingu eftir sumrinu. Smá alhæfing. Við höfum mismiklar áhyggjur af þessu. Sumir kunna betur við sig föla og njóta þeirrar tilhugsunar að sleppa við hrukkurnar næstu árin. Aðrir bíða í örvæntingu eftir sólinni, sem ætti helst að skína allan sólarhringinn, og gera sér ef til vill ferð á ljósabekkjastofurnar nokkrum sinnum í mánuði. Stytta aðeins biðina og fá smá lit í kinnarnar – eða ekki. Stunda þetta af kappi þar til roðinn í kinn- unum er löngu horfinn og súkkulaðibrúnn líkam- inn tilbúinn að takast á við veturinn. Það er sama hvaða forvarnir eru notaðar gegn þessari notkun: hræðslan við krabbamein, hættulegu geislana eða aðra leiðinlega fylgikvilla dugar ekki til. Ljósa- bekkjastofurnar munu seint fara á hausinn. Við gætum alveg eins kallað þetta vandamál hjá sumum. Tanorexia. Hópur af fólki er háður brúna litnum. Annars er þetta kannski yfirleitt þörfin fyrir að líta vel út. Flestir telja það hraustlegra og fallegra að hafa smá lit í andlitinu. Þá er kannski rétta leiðin að nota brúnkukrem. Úrvalið er orðið svo mikið af þessum kremum að það ætti ekki að vera flókið að verða sér úti um slíkt. Mæli ein- dregið með notkun þeirra og takmarkaðri notkun ljósabekkja. Naglalakk fyrir hátíðarnar Deborah Lippmann er meðal þekktustu og færustu nagla- fræðinga um þessar mundir og hefur meðal annars unnið með stærstu tískutímaritum heims á borð við Vogue, InStyle og Vanity Fair. Um langt skeið hefur hún framleitt naglalakkslínu sem ber sama nafn og hún sjálf og er þetta bæði frumlegt og flott naglalakk. Stöðugt berast ný afbrigði frá henni en það allra nýjasta er alveg einstakt. Í lok nóvember kynnti hún nýtt gulllakk á markað sem inniheldur 24 karata gullryk. Naglalakk sem hannað er fyrir hátíðarnar. Hin kynþokkafulla Dita Von Teese lætur sig dreyma um margt. Á óskalistanum hennar í ár er að fá að hanna sína eigin snyrtivörulínu. Í kjölfar þess væri hún til í að gefa út bók með ábendingum um fegurð. Henni finnst vanta fyrir konur útskýringar á því hvernig eigi að snyrta sig og fegra. Hún er tilbúin að ganga enn lengra og blanda sína eigin ilmvatnslykt. Heimurinn þarf að búa sig undir gyðjuna. Nafn hennar verður brátt ógleymanlegt. Blómvöndur á hendi Flóra er nafnið á hringum sem sækja form sitt í íslenska náttúru en form þeirra eru hvönn, baldursbrá og reynir. Hringana má bera staka eða jafnvel raða nokkrum saman og mynda blómvönd á hendi. Efniviðurinn er náttúrulegur en hringarnir eru unnir úr þremur tegundum af sérgerðum krossviði, mahóní, hnotu og birki. Verkefnið á uppruna sinn í námskeiði við Listaháskóla Íslands en hönnuður hringanna, Bylgja Svans- dóttir, útskrifaðist af vöruhönnunar- braut síðastliðið vor. Hringarnir fást í SPARK design space á Klapparstíg 33 og verðið á þeim er 2.900 krónur. Þar er opið alla daga, nema sunnudaga, kl. 10-18. Dita í snyrtivörurnar Fimmtudagur Skór: GS skór Leggings: Aftur Kjóll: Monki Föstudagur Skór: GS skór Pels: Sautján Buxur: Kultur 5 dagar dress Allt að 40% afsláttur á haust og vetarlistanum. Útsala Jólafötin á frábæru verði.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.