Fréttatíminn - 10.12.2010, Blaðsíða 87
Brautryðjandaverk um íslenska sveppi.
Nauðsynleg bók fyrir alla áhugamenn
um sveppi og íslenska náttúru.
Hin fræga draumabók Freuds. Allar
draumaráðningabækur sem mark er á
takandi eiga rætur að rekja til þessarar
bókar. Grundvallarrit við draumaráðningar
og sjálfskoðun.
Lára Sjöfn er 13 ára unglingsstelpa sem tekst
á við lífið eftir mikinn sorgarvetur. Hún flækist
inn í dularfulla atburðarás og þarf að bregða sér
í hlutverk leikara, spæjara og hetju til þess að
leysa úr málunum. Hörkuspennandi saga handa
börnum og unglingum.
Kvikmyndin
verður frumsýnd
í febrúar 2011!
SKRUDDA.IS
Heildarsafn íslenskra tröllasagna úr
íslenskum þjóðsagnaarfi. Öll íslensk
tröll á einum stað.
Glæsilegt þjóðsagnasafn.
dægurmál 87 Helgin 10.-12. desember 2010
Þýska útgáfan BTB ætlar að veðja á
krimmahöfundinn Ævar Örn Jós-
epsson á næsta ári, að því er Kristján
Kristjánsson, útgefandi hans hjá
Uppheimum, segir. Að sögn Kristjáns
ætlar þýska útgáfan að dreifa fimm
þúsund eintökum af fjórðu bók Ævars
Arnar, Sá yðar sem syndlaus er, í
þýskar bókabúðir þegar hún kemur
út í júlí á næsta ári undir nafninu Wer
ohne Sünde ist. „Þetta er frábært fyrir
Ævar Örn og sýnir að útgáfan ætlar að
veðja á hann sem þeirra mann,“ segir
Kristján. Áður hafa Svartir englar og
Blóðberg komið út í Þýskalandi.
Og það er ekki bara í Þýskalandi
sem Ævar Örn vekur athygli. Á bóka-
messunni í Frankfurt gekk Kristján
frá samningi við hið virta franska
forlag Gallimard um útgáfu á Svörtum
englum fyrir franskan markað. Þar
með bættist Frakkland í hóp með Dan-
mörku, Svíþjóð og Hollandi varðandi
útgáfu á Svörtum englum. -óhþ
bókmenntir Útrás
Þýsk útgáfa veðjar á Ævar Örn
BTB setur fimm þúsund kynningareintök af Sá yðar sem syndlaus er í þýskar bókabúðir á næsta ári.
... útgáfan ætlar
að veðja á hann
sem þeirra
mann.“
Lj
ós
m
yn
d/
Fr
ið
þj
óf
ur
H
el
ga
so
n
Kristilegur
mynddiskur
Sunnudagaskólinn er kominn út á DVD-
diskinum Dagurinn í dag sem er ætlaður
börnum frá þriggja ára aldri og allt upp
í tíu ára. Á diskinum eru fjórir þættir þar
sem fjórar dæmisögur Jesú eru sagðar á
líflegan hátt. Þá inniheldur diskurinn tutt-
ugu sunnudaga-
skólalög og barna-
sálma. Þorleifur
Einarsson, 21 árs
leiklistarnemi,
leikstýrir þátt-
unum auk þess
sem hann tók þá
upp, klippti og
gerði brúðurnar
sem taka þátt
í að miðla
boðskapnum.
Þorleifur skrifaði einnig handritið ásamt
Guðna Má Harðarsyni, Eddu Möller og
sóknarpresti í Lindakirkju. Aðalhlutverk
leika Jóel Ingi Sæmundsson og Hafdís
María Matsdóttir.
Dagurinn í dag færir
börnum Sunnudaga-
skólann heim í stofu.
Úlfar Finnbjörnsson og Sigríður
Björk Bragadóttir eiga flestar upp-
skriftirnar í bókinni. Þau eru hér
ásamt Ólöfu Jakobínu Ernudóttur
stílista.
Afmæli fagnað með
uppskriftabók
Á næsta ári verða 30 ár liðin frá því
að matartímaritið Gestgjafinn kom
fyrst út og af því tilefni hefur ritstjórn
blaðsins tekið saman vel yfir hundrað
uppskriftir á bók sem er nýkomin út.
„Gestgjafinn verður 30 ára á næsta
ári og við ákváðum að taka smá forskot
á sæluna og fagna áfanganum með
þessari bók,“ segir Guðrún Hrund
Sigurðardóttir sem ritstýrir Gestgjaf-
anum ásamt Sólveigu Baldursdóttur.
„Það hefði verið fullmikið verk að
fara yfir öll blöð síðustu áratuga
þannig að við völdum í bókina þær
uppskriftir sem okkur finnst standa
upp úr á síðustu tveimur árum eða
svo.“
Úlfar Finnbjörnsson og Sigríður
Björk Bragadóttir eiga heiðurinn af
langflestum uppskriftunum í bókinni
og ritstjórnin miðaði val sitt við það að
uppskriftirnar væru einfaldar þannig
að allir ættu að geta farið eftir þeim.