Fréttatíminn - 10.12.2010, Side 94
94 dægurmál Helgin 10.-12. desember 2010
B ækurnar mínar hafa notið vin-sælda núna í tíu ár bæði hér heima og erlendis og ég er mjög
þakklátur fyrir það. Þess vegna kemur
kannski ekki á óvart þótt Furðustrand-
ir geri það líka. Lesandinn kemst nær
kviku lögreglumannsins Erlendar en
nokkru sinni fyrr og það er gaman að
heyra mismunandi sjónarhorn sem fólk
hefur á sögu hans,“ segir metsöluhöfund-
urinn Arnaldur Indriðason í samtali
við Fréttatímann um ótrúlega velgengni
nýjustu bókar hans, Furðustranda, sem
selst hraðar en nokkur önnur bóka hans
hefur gert – og er það ekki lítið afrek í
ljósi þess að síðustu bækur hans hafa
selst í hátt í þrjátíu þúsund eintökum
hver.
Egill Örn Jóhannsson hjá Forlaginu,
útgáfu Arnaldar, segir að þegar hafi ver-
ið prentuð hátt í þrjátíu þúsund eintök
af Furðuströndum og ekki sé ólíklegt
að endurprenta þurfi annað risaupp-
lag. „Það stefnir í að Furðustrandir slái
öll fyrri sölumet en Myrká, sem kom út
2008, er söluhæsta bókin hans til þessa
með rúmlega þrjátíu þúsund seld eintök,“
segir Egill.
Í haust bárust fréttir af því að Arnaldur
hefði selt sjö milljónir eintaka af bókum
sínum út um allan heim en hann segist
lítið velta því fyrir sér og finni ekki fyrir
neinni pressu vegna velgengninnar.
„Ég hef aldrei fundið fyrir sérstakri
pressu þegar ég er að skrifa. Ég skrifa
mínar bækur ár frá ári án þess að hugsa
of mikið um það sem er að gerast í kring-
um þær. Ég held ekki að höfundar eigi að
eltast við velgengni, hún verður yfirleitt
til þar sem síst er von,“ segir Arnaldur.
Furðustrandir er fjórtánda glæpasaga
Arnaldar og hann hefur ekki hugsað sér
að skipta um vettvang á næstunni. „Ég
hef ekki velt því neitt fyrir mér. Ég er að
vinna við nýja spennuskáldsögu, sem ég
á von á að komi út 1. nóvember að ári,“
segir Arnaldur.
oskar@frettatiminn.is
arnaldur IndrIðason ný metsöluBók
meIstarakokkar ÁhugamÁl
„Velgengnin verður til þar
sem hennar er síst von“
Furðustrandir, nýjasta bók Arnaldar Indriðasonar, hefur farið betur af stað en nokkur önnur
bóka hans, að sögn útgefanda. Arnaldur segist sjálfur vera þakklátur fyrir vinsældir hennar.
m eistarakokkarnir Kjartan Gíslason, Eyþór Rúnarsson
og Gunnar Karl Gíslason
komust heldur betur til himna
þegar þeir heimsóttu New York
á dögunum. Tilgangur ferðar-
innar var að kynna íslenska mat-
reiðslu en þeir notuðu tækifærið
til að snæða hádegisverð á veit-
ingastaðnum Per Se sem þykir
einn sá flottasti í veröldinni, með
þrjár Michelin-stjörnur.
Kjartan segir í samtali við
Fréttatímann að þetta sé áhuga-
mál þeirra félaga og þeir reyni
alltaf, hafi þeir tíma og fjármagn,
að borða á flottum stöðum þegar
þeir eru erlendis. „Þetta var óað-
finnanlegt. Matreiðslan frábær
og bragðið sömuleiðis,“ segir
Kjartan en þeir félagar fengu sér
níu rétta hádegisverð og eyddu
þremur og hálfum tíma í matinn.
„Við fengum meðal annars foie
gras, dádýr, sæeyru og hörpu-
skel. Þetta var veisla,“ segir
Kjartan. Svona ferðir á flottustu
veitingastaði heims eru þó ekki
eingöngu til að kitla bragðlauk-
ana því menn eru líka á hött-
unum eftir lærdómi og meiri
þekkingu. „Það komu margar
hugmyndir upp þarna og eitt-
hvað situr eftir.“
Og málsverðurinn var ekki
ókeypis því hver þeirra borgaði
400 dollara. „Vel þess virði,“ seg-
ir Kjartan og bætir við að Per Se
sé örugglega á topp fimm listan-
um yfir bestu veitingahús sem
hann hefur komið á. óhþ
Borðuðu sæeyru í New York
Sænska veðmálafyrirtækið Betsson hefur enga trú á íslenska landsliðinu í hand-
bolta á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Svíþjóð í næsta mánuði. Betsson telur
líkurnar á að silfurliðið frá Ólympíuleikunum í Peking 2008 og bronsliðið á EM í
Austurríki verði heimsmeistari séu 1/20. Alls telja sænsku veðmálasérfræðingarnir
sjö lið líklegri til að vinna titilinn. Frakkar, Ólympíu- og Evrópumeistarar, eru efstir á
blaði en síðan koma Danmörk, Spánn, Króatía, Þýskaland, Pólland og Svíþjóð.
Betsson hefur ekki trú á Íslandi
Þreytandi lögregluheimsóknir
Jón Hallgrímsson, betur þekktur sem Jón stóri,
er orðinn leiður á tíðum húsleitum sem lögreglan
gerir hjá honum, ef marka má Facebook-síðu hans.
Lögreglan hefur einu sinni tekið hús á Jóni svo
eftir var tekið en það var fyrir rúmu ári þegar lög-
reglumenn mættu gráir fyrir járnum heim til Jóns
þar sem sést hafði til vopnaðs manns í garðinum.
Síðar kom í ljós að þar var á ferðinni meindýraeyðir
með stórt vasaljós. Löggan virðist hafa bankað upp
á hjá Jóni á miðvikudag en þá skrifaði hann eftir-
farandi á Facebook: „Lögreglan að ljúka en einni
húsleit hjá kallinum sem stóðst með prýði eins og
venjulega ;)................ orðið frekar þreyttandi samt
sem áður...“
Eineygður köttur á
Eyjafjallajökli
Gosinu í Eyjafjallajökli hafa
verið gerð ágæt skil í bókum en
sú sem hlýtur að teljast þeirra
skemmtilegust er hin nýútkomna
Eineygði kötturinn Kisi og
leyndardómar Eyjafjallajökuls
eftir fjöllistamanninn Hug-
leik Dagsson. Þetta er fyrsta
bókin um Kisa sem Hugleikur
teiknar ekki sjálfur en hann
leggur til textann við myndir
Péturs Antonssonar sem býr í
San Francisco þar sem hann er
eftirsóttur teiknari. Annars er
það helst að frétta af Hugleiki
að eftir helgi fer glænýtt lag um
Kisa, eftir Hugleik og Þormóð
bróður hans, í spilun á útvarps-
stöðvum.
Það stefnir í að Furðustrandir slái öll fyrri sölumet ... “
Arnaldur Indriðason hefur sjaldan eða aldrei fengið jafngóða dóma fyrir bækur sínar eins og fyrir Furðustrandir nú. Hún fékk
meðal annars fjórar stjörnur frá Páli Baldvini Baldvinssyni, bókmenntagagnrýnanda Fréttatímans. Ljósmynd/Ralf Baumgarten
Bækur Arnaldar
Synir duftsins 1997
Dauðarósir 1998
Napóleonsskjölin 1999
Mýrin 2000
Grafarþögn 2001
Röddin 2002
Bettý 2003
Kleifarvatn 2004
Vetrarborgin 2005
Konungsbók 2006
Harðskafi 2007
Myrká 2008
Svörtuloft 2009
Furðustrandir 2010
Eyþór Rúnarsson og Gunnar Karl Gíslason sjást hér skála í kampavíni á Per Se í
New York. Ljósmyndari: Kjartan Gíslason
Þetta
var
veisla.“
Bær
Rúnar S. Gíslason
Lögg. fasteignasali.
Við bjóðum Davíð Ólafsson
söngvara velkominn til starfa
david@remax.is - 897 1533
Hann er jákvæður og
kraftmikill sölufulltrúi
sem lætur verkin tala ...
.... og syngja
Ókeypis verðmat
án skuldbindinga