Fréttatíminn - 30.12.2010, Blaðsíða 4
Gengi krónunnar hefur
styrkst á árinu
12%
styrking á gengis-
vísitölu á árinu 2010
Gildin fóru úr
233 í 208 stig
Greining
Íslandsbanka
Bensínmarkaður Gripdeildir
Þ etta er stórt vandamál sem heggur skarð í rekstur okkar,“ segir Her-mann Guðmundsson, forstjóri N1,
aðspurður um þjófnað á bensínstöðvum.
Hermann segir bensínþjófnað af dælum
hafa aukist mikið eftir hrunið í október
2008 og náð hámarki á síðasta ári. „Við
áætlum að bensínþjófnaður hafi kostað
okkur 25 milljónir á síðasta ári. Upphæðin
er minni í ár og mér sýnist það verða um
15 milljónir. Við höfum líka farið í fyrir-
byggjandi aðgerðir og nánast lokað fyrir
þann möguleika að hægt sé að dæla fyrst
og borga síðan inni. Það hefur skilað sér
en auðvitað er hundfúlt að þurfa að grípa
til aðgerða sem draga úr þjónustunni við
viðskiptavini sem vilja fylla á bílinn áður
en þeir borga. Við eigum bara engan
annan kost,“ segir Hermann.
Aðspurður hverjir standi í þessum
þjófnaði segir Hermann það að
mestu leyti vera fíkniefnaneyt-
endur og annað ólukkufólk.
„Við erum með myndavélar
út og suður á bensínstöðv-
unum okkar og því nást
allir á mynd. Það hefur hins
vegar sýnt sig að það þýðir
lítið fyrir okkur að eltast
við þetta fólk og kæra það.
Lögreglan getur lítið gert
sökum mannfæðar og yfir-
leitt á þetta fólk ekki neitt.
Síðan fáum við líka algjöra
fagmenn sem mæta á stöðv-
arnar á númeralausum bílum
og í hettupeysum,“ segir Hermann.
Einar Örn Ólafsson, forstjóri Skeljungs,
kannast við vandamálið sem Hermann
lýsir þótt búsifjar hans fyrirtækis séu ekki
eins miklar og hjá N1. „Þetta er vandamál.
Það er alveg klárt. Það hefur hins vegar
minnkað að undanförnu. Við höfum tekið
möguleikann á að dæla fyrst og borga
síðan af á dælunum sem eru fjærst stöðv-
unum sjálfum og á flestum hinna þurfa
menn að fá samþykki starfsmanna áður
en þeir geta byrjað að dæla. Við búum það
vel að afgreiðslufólk okkar hefur góða
yfirsýn yfir dælurnar, sem er kannski ekki
alltaf tilfellið hjá til dæmis N1 sem er með
margar gríðarstórar búðir í tengslum við
dælurnar. Síðan er starfsfólkið farið að
þekkja þá sem eru harðastir í þessum
þjófnaði. Það hjálpar til,“ segir Einar
Örn.
Hann giskar á að tap Skeljungs
á þessu ári vegna bensínþjófnaðar
verði um þrjár milljónir. „Við
eltum alla sem við náum á
mynd en það er ekki alltaf
sem okkur tekst að rukka inn
skuldirnar,“ segir Einar.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Þjófar stela bensíni fyrir
tugi milljóna króna á ári
Olíufélögin verða fyrir miklum búsifjum á hverju ári vegna þjófnaðar á bensíni beint af dælum. lítið
þýðir að eltast við þjófana sem eiga í flestum tilfellum lítið undir sér.
Við áætlum
að bensín-
þjófnaður
hafi kostað
okkur 25
milljónir á
síðasta ári.
Upphæðin
er minni í
ár og mér
sýnist það
verða um
15 milljónir
Hermann guðmundsson, forstjóri
n1, segir fyrirtæki sitt verða fyrir
tugmilljóna búsifjum á ári hverju
vegna bensínþjófnaðar.
Bíræfnir þjófar víla ekki fyrir sér að stela bensíni þótt dælurnar sé myndaðar í bak og fyrir.
Botninum náð á
íbúðamarkaði
Allt bendir nú til þess að botninum á
íbúðamarkaði hafi verið náð á þessu ári. Er
þá þriggja ára lægð á íbúðamarkaði senn
að ljúka, en samdráttur hófst á þessum
markaði í ársbyrjun 2008, að því er fram
kemur hjá greiningu íslandsbanka. reynist
botninum vera náð í þessari niðursveiflu
og íbúðaverð lækki ekki meira er ljóst
að íbúðaverð hefur lækkað um 15% að
nafnvirði og tæp 40% að raunvirði í þeirri
kreppu sem ríkt hefur á íbúðamarkaði frá
ársbyrjun 2008. -jh
svartsýnir neytendur
íslenskir neytendur eru allsvartsýnir á
horfur í efnahags- og atvinnumálum nú í
árslok ef marka má væntingavísitölu gallup.
vísitalan lækkaði um rúm 2 stig milli nóvem-
ber og desember og er gildi hennar nú 48,3
stig. á árinu hefur hún mælst að meðaltali
53 stig og er því ljóst að landinn er heldur
svartsýnni nú en hann hefur að jafnaði
verið á þessu ári. vísitalan mælir væntingar
neytenda til efnahags- og atvinnulífsins.
Þegar vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri
neytendur svartsýnir en bjartsýnir. -jh
Gengi krónunnar hefur styrkst þó nokkuð gagn-
vart flestum öðrum gjaldmiðlum á árinu. Gildi
gengisvísitölunnar í lok síðasta árs stóð í tæpum
233 stigum en nú stendur hún í 208 stigum og
jafngildir þetta styrkingu upp á 12%, að því er
fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka. Þessi
þróun hefur meðal annars gert það að verkum
að mun fleiri Íslendingar hafa verið á faraldsfæti
á árinu samanborið við í fyrra, enda hefur kaup-
máttur landans aukist á erlendri grund. -jh
veður Föstudagur gamlaársdagur nýársdagur
Hiti verður ofan frostmarks víðast
Hvar oG veður enn Hlýnandi. strekk-
inGs sv-vindur oG dálítil riGninG
vestantil.
HöfuðborGarsvæðið: ÞungBúið Og
súld eðA rigning með köflum.
snjÓkoma eða slydda verður norðantil
um morGunininn, en síðan rofar Þar til.
annars úrkomulaust oG meinlítið veður
á landinu.
HöfuðborGarsvæðið: Hægviðri Og skýjAð
með köflum, en Heldur léttArA yfir með
kvöldinu. Hiti um frOstmArk.
smá slydda eða riGninG vestan- oG
suðvestanlands, en annars úrkomu-
laust. Heldur Hlýnandi veður.
HöfuðborGarsvæðið: smá rigning eðA
slyddA Og Hiti rétt OfAn frOstmArks.
ákjósanlegt áramótaveður
á höfuðborgarsvæðinu er ekki að sjá annað
en afar gott veður gæti orðið fyrir flugelda
og brennur. ef til vill skýjað, en ekki úrkoma
og það sem mest er um vert, vindur verður
afar hægur ef spár ganga eftir. Annars
staðar á landinu er útlit fyrir ágætasta
veður, nýsvævi verður víða norðanlands, en
náð að rofa til um kvöldið. sama á
suður- og Austurlandi. Helst að
bakki með rigningu geti náð inn
á syðsta hluta landsins. nýárið
virðist síðan ætla að heilsa
með ljúflingsveðri um
land allt.
1
3 11 13
1 3
4 7
5
3
2
5 7
4
1
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is Klæddu þig vel
www.66north.is
Þórsmörk
parka
Þrír vilja kaupa
meirihluta í mP-banka
Þrír hópar fjárfesta hafa lýst áhuga á að
kaupa meirihluta í mP-banka á þrjá til
fjóran og hálfan milljarð króna, að því er
ríkisútvarpið greinir frá. Þar er haft eftir
ragnari guðgeirssyni, stjórnarformanni
bankans, að erlendir aðilar séu meðal
hinna áhugasömu. áreiðanleikakönnun á
bankanum er lokið en gert er ráð fyrir að
viðræður við fjárfestahópana standi fram í
janúar. í fréttinni segir að gert sé ráð fyrir
því að nýtt hlutafé verði greitt út í febrúar.
verði það fjórir og hálfur milljarður muni
nýju fjárfestarnir eignast töluvert sterkan
meirihluta í bankanum. -jh
gengislánalögin í gildi
lánastofnanir hafa nú 60 daga frest til
útreikninga á ólögmætum gengisbundn-
um bíla- og fasteignveðlánum. frumvarp
efnahags- og viðskiptaráðherra um
gengisbundin lán var samþykkt á Alþingi
laugardaginn 18. desember og varð að
lögum síðastliðinn þriðjudag. í tilkynn-
ingu efnahags- og viðskiptaráðuneytisins
segir m.a. að lögin stuðli að sanngirni
gagnvart öllum lántakendum gengis-
bundinna fasteignaveðlána og bílalána,
þrátt fyrir mismunandi gerðir lánanna.
dráttarvextir og vanskilagjöld reiknast
ekki á lánin og lántakendum býðst kostur
á að velja á milli mismunandi vaxtakjara
til framtíðar. -jh
4 fréttir Helgin 30. desember 2010-2. janúar 2011