Fréttatíminn - 30.12.2010, Blaðsíða 22
É g hef búið meira og minna úti síðan ég var átján ára. Ég eign-aðist börnin mín fjögur í Bret-landi og ber því sterkar taugar
til þess lands,“ segir Helga Lind Björg-
vinsdóttir sem er næstelst fjögurra systk-
ina og alin upp á Akranesi. Þar býr hún
nú þröngt í lítilli íbúð með knattspyrnu-
manninum Gylfa Einarssyni og börn-
unum. Mosfellsbær heillar hana, þótt
hún útiloki ekki að flytjast annað. „En
þar náum við í angann af smábæjarand-
anum sem ég vil og Gylfi fær að vera ná-
lægt höfuðborginni,“ segir hún þar sem
hún situr í Álafoss-úlpunni og með soja-
mjólkur kaffi latte í höndunum á Kaffitári
í Borgartúni snemma morguns.
Asinn á fjölskyldunni er mikill en ró og
slökun finnur Helga Lind í vinnunni. Hún
er fyrst Íslendinga, svo vitað sé, með rétt-
indi til að kenna Body Control Pilates þar
sem einblínt er á líkamsbeitingu og teygj-
ur. „Þessar æfingar styrkja alla helstu
vöðva líkamans án þess að stækka þá.
Pilates er samt ekkert dútl heldur frábær
blanda af styrktaræfingum, liðleikaæf-
ingum og hreyfingu. Leikmenn úrvals-
deildarliðs Chelsea stunda til dæmis
þessar æfingar samhliða öðrum til að
ná betri stjórn á líkamsbeitingunni og
til að minnka líkurnar á vöðvatengdum
meiðslum.“ Hún býður nú þegar upp á
Krossgötur Helgu Lindar
Hraðinn hefur einkennt samband þeirra Helgu Lindar
Björgvinsdóttur og Gylfa Einarssonar frá því þau kynntust
vorið 2005. Ári eftir voru þau gift og í lok árs 2007 eignuð-
ust þau tvíbura. Þau hafa flutt milli þriggja landa og leita
nú að framtíðarheimili á höfuðborgarsvæðinu vegna þess
að atvinnumannaferli hans í knattspyrnu er að ljúka. Helga
Lind og fjölskylda hennar standa á krossgötum og það ekki
í fyrsta sinn. Hún segir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur sögu
sína. Ljósmyndir/Hari
námskeið á Akranesi, einkatíma og
á nýju ári fyrir tveggja manna og tólf
manna hópa í líkamsræktarstöðinni
Hreyfingu.
Kemur nú heim frá Noregi
„Body Control Pilates hentar svo vel
bæði konum og körlum, hvort sem þau
eru í formi eða ekki,“ segir hún. „Svo
margt fólk er hokið í dag. Það húkir
við tölvur og hugar ekki að stoðgrind-
inni. Í Pilates vinnur maður með djúp-
vöðvana, þá sérstaklega kjarnavöðva
í baki, mitti og kviði og iðkendur fá
langa og fallega vöðva sem eru svo
eftirsóttir.“
Hún hóf að stunda Pilates á Eng-
landi árið 2006 og henni að óvörum,
keppnis- og fótboltastelpunni af Skag-
anum, heilluðu æfingarnar hana upp
úr skónum. „Í Pilates tengist líkami
og hugur. Æfingarnar snúast um að
hreyfa sig lið fyrir lið út frá anatóm-
ísku sjónarmiði,“ segir hún.
Helga Lind og Gylfi eru að koma frá
Noregi, þar sem hann sparkaði bolta
hjá Brann frá því í janúar 2008. „Þar
er afskaplega gott að búa, og líkara því
sem er hér heima,“ segir hún, þótt þar
finnist ekki íslenska kreppan og nei-
kvæðnin sem henni fylgi. „Ég reyni að
sneiða hjá þessu neikvæða tali þótt ég
fylgist með því helsta. Meira að segja
börnin finna þetta andrúmsloft í sam-
félaginu og elsti sonur minn spurði
mig, þegar ég reyndi að svara spurn-
ingum hans um kreppuna, Icesave og
að peningar yxu ekki á trjánum, hvers
vegna við fluttum aftur til Íslands. En
það er þó ekki eins og þetta velkist um
í kollinum á honum alla daga. Hann
er alveg í skýjunum yfir því að vera
fluttur heim.“
Alex, elsti sonur Helgu Lindar, verð-
ur ellefu ára nú í desemberlok. Hún
var nítján ára þegar hún eignaðist
hann með fyrri manni sínum, Arnari
Gunnlaugssyni, sem er knattspyrnu-
maður rétt eins og Gylfi.
Vildi verða ung móðir
„Ég ætlaði alltaf að verða móðir ung,“
segir Helga Lind nú ellefu árum og
fjórum börnum síðar, en þau Arnar
eiga einnig Ísabellu átta ára. Ung og
sjálf á kafi í fótbolta með ÍA fylgdist
hún úr fjarska með Arnari og bróður
hans Bjarka. Þeir voru hetjur Skagans
og sjö árum eldri. Þegar Arnar hringdi
og bauð henni á stefnumót sló hún til.
„Hlutirnir gerðust hratt. Hann bjó er-
lendis og ég hér heima. Við ákváðum
að ef við ætluðum að láta reyna á sam-
bandið yrði ég að flytja út. Ég gerði
það og hefði ekki viljað breyta því í
dag,“ segir hún.
„Ég viðurkenni að mér bregður
stundum við þegar ég hitti átján ára
ungar stúlkur. Bíddu, var ég svona?
Mér fannst ég svo þroskuð,“ segir hún
kímin en bætir við að mesta þroskann
hafi hún tekið út með búsetu sinni úti.
„Það var frábær skóli, og ekki bara
fyrir mig því eldri börnin mín tvö tala
til dæmis bæði ensku og norsku reip-
rennandi.“ Nú stunda þau nám á Skag-
anum og þau Gylfi stefna á að leyfa
þeim að klára veturinn áður en þau
flytja til borgarinnar.
Helga Lind hefur ekki alltaf fengið
að halda einkalífinu fyrir sig. Skiln-
aður hennar og Arnars fyrir næstum
sjö árum rataði á síður Séð og heyrt,
Hér og nú og DV. „Skilnaðir eru alltaf
erfiðir,“ segir Helga, og að umfjöll-
unin hafi aukið á álagið. „Við skilnað
leitar sú tilfinning á mann að finnast
maður hafa brugðist börnum sínum.
Fjölskyldan er það mikilvægasta í lífi
hvers og eins og þarna var mín brotin.
En að sama skapi, þegar ég lít til baka,
tel ég að skilnaðurinn hefði ekki getað
gengið betur,“ segir hún og að málið
sé í raun einfalt þegar öllu sé á botninn
hvolft. „Hver og einn þarf að fylgja eig-
in sannfæringu, það er bara þannig.“
Leyndi sambandinu við Gylfa
Til að forðast umfjöllun blaðanna fór
mikið leynimakk í gang þegar hún
kynntist Gylfa. Hún þáði hvorki boð
um að fara út að borða þegar þau voru
að draga sig saman né að láta sjá sig
með honum á öðrum opinberum stöð-
um, enda ekki með hugann við að
kynnast stóru ástinni á þeim tíma; ári
eftir skilnaðinn.
„Ég var varla búin að sleppa setning-
unni að ég ætlaði ekki í samband í bráð
þegar ég kynntist honum. Segja má að
Gylfi hafi staðið við hliðina á mér þeg-
ar ég sneri mér frá vinkonu minni á
kaffihúsi og setningin dó á vörum mér.
Ég hafði þá einnig fullyrt við vinkonu
mína að ég ætlaði aldrei aftur í sam-
band með knattspyrnumanni; ég hafði
búið erlendis, farið víða og ekki náð að
festa rætur á einum stað,“ segir Helga
Lind en á þessum tíma var Gylfi ný-
genginn í raðir Leeds í Englandi eftir
að hafa spilað með Lilleström í Noregi
og mjög spennandi tímar fram undan
hjá honum.
„Ég hélt að hann væri óttalegur
tappi og upptekinn af sjálfum sér. Það
er hann alls ekki. Hann er fjölskyldu-
maður, vinur vina sinna og traustur.
Ég vissi strax og við fórum að hittast
að hann væri maðurinn fyrir mig. Það
var eins með hann,“ segir Helga Lind.
Leiðin hafi því verið mörkuð eftir að
þau hittust fyrst. Tilhugalífið fór að
miklu leyti fram á Skype-netsímakerf-
inu, enda hann úti og hún hér heima;
aðstæður sem hún þekkti úr fyrra
sambandi sínu.
Fjölskyldan er
það mikilvæg-
asta í lífi hvers
og eins og
þarna var mín
brotin. En að
sama skapi,
þegar ég lít til
baka, tel ég að
skilnaðurinn
hefði ekki
getað gengið
betur.
Framhald á bls. 24
22 viðtal Helgin 30. desember 2010-2. janúar 2011