Fréttatíminn - 30.12.2010, Blaðsíða 44

Fréttatíminn - 30.12.2010, Blaðsíða 44
44 áramót Helgin 30. desember 2010-2. janúar 2011 Þ að eru fyrst og fremst þrjár aðferðir við að búa til freyðandi vín. Sú einfald-asta er þegar koltvísýringi er sprautað í vínið en það gefur ekki mikil gæði. Önnur er charmat-aðferðin, einnig þekkt sem ítalska aðferðin, þar sem vínið er látið gerjast í annað sinn í stórum tönkum áður en það er sett á flöskur. Hin þriðja, og jafnframt sú dýrasta, er kampavínsaðferðin, einnig kölluð hefð- bundna aðferðin, þar sem vínið er látið gerj- ast í annað sinn í flöskunni sjálfri. Einungis vín frá Champagne mega bera nafnið kampa- vín. Freyðvín annars staðar frá, sem þó eru framleidd með sömu aðferð, mega því ekki bera það nafn. Annars staðar í Frakklandi kallast þau Crémant, á Spáni heita þau Cava og á Ítalíu Franciacorta, svo nokkur dæmi séu nefnd. Þess ber að geta að mismunandi þrúgur eru notaðar eftir svæðum og löndum en í Champagne eru aðal- lega notaðar Chardonnay, Pinot Noir og Pinot Meunier og þó svo að vín annars staðar frá séu framleidd með kampa- vínsaðferðinni geta þau innihaldið allt aðrar þrúgur.  Fréttatíminn smakkar Freyðivín Freyðandi gleði veuve Clicquot Ponsardin Brut Verð: 6.698 kr. Þurrt með mildum sítrus- keimi sem sker í gegn en þó gott jafnvægi á tungunni milli beiskju og sætu. Þegar á líður kemur pera og meiri ávöxtur í gegn. Mjög gott kampavín. moët & Chandon Brut imperial Verð: 6.599 kr. Tiltölulega flókið og bragðmikið kampavín, þurrt og með ágætri fyllingu. Jarðtónað með smá möndlu í bland við ávöxt og léttan sítrus. Gott kampavín með mat. mumm Gordon rouge Brut Verð: 5.999 kr. Bragðmikið og ferskt í mjög góðu jafnvægi milli sætu og beiskju. Grænn ávöxtur og sítrus- keimur. Virkilega gott kampavín á ágætu verði miðað við önnur kampavín. Bollinger Brut special Cuvee Verð: 7.494 kr. Allt öðruvísi en hinar þrjár tegundirnar og meira krefjandi. Dauf sérrílykt, greinileg epli, mandla og hneta sem er í ágætu jafnvægi við sítrusávöxtinn. Teitur Jónasson og Kristinn Grétarsson matur@frettatiminn.is Bæði námskeiðin hefjast 10. janúar Fyrirlestur 8. janúar Verð kr. 34.900 Skráning er hafin í síma 444-5090 eða nordicaspa@nordicaspa.is Fimm tímar í viku – hreinsun, liðleiki og styrkur 3 tímar – jóga, liðleiki og öndun 2 tímar – léttar styrktaræfingar í tækjasal Tímar: 17:20 mán/mið/fös. Þjálfari er Sigríður Guðjohnsen NORDICASPA 28 daga hreinsun með mataræði og hreyfingu WWW.NORDICASPA.IS Hjá okkur nærðu árangri! Fimm tímar í viku – Brennsla og styrkur 3 öflugir brennslutímar 2 styrktartímar í sal Vikulegar mælingar Ítarleg næringarráðgjöf Fyrirlestur – Borðaðu til að léttast og auka orkuna Slökun og herðanudd eftir hverja æfingu Takmarkaður fjöldi 6:30, 7:30, 10:00, 16:30 og 18:30 Þjálfari er Gunnar Már Sigfússon 1. vika – Orkuhleðsla Í fyrstu vikunni byggir þú upp orku og kemur líkamanum í jafnvægi. 2. vika – Öflug melting – Aukin brennsla Í viku tvö er verið að efla og bæta meltinguna til að þú fáir sem mest út úr holla matnum sem þú ert að borða. 3. vika – Hormóna jafnvægi – Hreinsun Þriðja vikan mun koma jafnvægi á hormónaflæði líkamanns sem mun hafa áhrif á skap þitt, lífsorku og kraft. 4. vika – Ónæmiskerfi eflt – Jafnvægi Í viku fjögur byggjum við upp ónæmiskerfið og hjálpum því að verja líkamann á náttúrulegan hátt. Lúxusnámskeið NORDICASPA fyrir konur og karla 4 vikna Á námskeiðinu hreinsum við líkamann af óæskilegum eiturefnum, aukum getu hans til að vinna rétt úr fæðunni, aukum liðleika og styrk og komum þér af stað í nýjan lífsstíl! Ertu að glíma við: • Mataróþol • Matarfíkn og sykurlöngun • Maga- og ristilvandamál • Verki og bólgur í liðum • Streitu, þreytu og svefnleysi • Þunglyndi • Aðra lífsstílssjúkdóma Kampavín Humarsúpa Humarhússins Humarsúpa er vinsæl um áramót. Fréttatíminn fékk þá Guðmund Gunnars- son og Ottó Magnússon á Humarhúsinu til að gauka að lesendum uppskrift að sinni frábæru og einföldu humarsúpu. 1 kg humar í skel 2-3 msk. tómatmauk 6 hvítlauksgeirar 2 gulrætur 1 skalottlaukur 1 l rjómi 50 g smjör fiskkraftur svartur pipar Aðferð: Skelin brúnuð í vel heitum potti ásamt grænmeti og tómatmauki (að sjálfsögðu búið að taka humarinn úr skelinni). Vatni bætt út í svo fljóti yfir skelina og soðið í 25 mínútur. Sigtað, krafti bætt út í og soðið niður í 2/3, rjómanum bætt út í. Að lokum er humarinn steiktur á pönnu, settur í diskinn og súpunni hellt yfir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.