Fréttatíminn - 30.12.2010, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 30.12.2010, Blaðsíða 12
Á rangur Seðlabanka Íslands í baráttunni við verðbólgu hefur verið slakur frá því að verðbólgumarkmið var tekið upp snemma á þessum áratug, segir í nýrri skýrslu bankans þar sem litið er til þeirra kosta sem koma til álita þegar tekin verður ákvörðun um fyrirkomulag gengis- og peningamála hérlendis eftir að efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins lýkur og gjaldeyrishöft hafa verið afnumin. Skýringarnar eru væntanlega margar, segir enn fremur, þar á meðal að gerð íslensks þjóðarbúskapar gerir sjálfstæða peningastefnu erfiða við- fangs, óvenjulegar aðstæður voru bæði í alþjóðlegum og innlendum efnahags- málum og fjármálamörkuðum og ákveðinn misbrestur í framkvæmd peningastefnunnar sem tókst ekki að ávinna sér nægjanlegan trúverðug- leika. Bankinn bendir einnig á að vaxandi alþjóðavæðing innlends fjár- málakerfis og ofvöxtur þess hafi orðið til þess að veikja miðlun peninga- stefnunnar út í efnahagslífið og skaða áhættu í fjármálakerfinu sem magnaði gengissveiflur sem reynd- ust erfiðar viðureignar fyrir peningastefnuna. Í skýrslunni segir líka að stefnan í opin- berum fjármálum hafi verið mjög á skjön við stefnuna í peninga- málum sem hafi aukið neikvæð hliðaráhrif peningalegs aðhalds. Kostir og gallar fastgengisstefnu Ef fallið yrði frá sjálfstæðri peninga- stefnu með fljótandi gjaldmiðil og tekin upp fastgengisstefna, segir Seðlabankinn að heppilegast væri út frá hagrænum sjónarmiðum að festa gengi krónunnar við evruna. Tekið er fram að fastgengisstefnu fylgi bæði kostir og gallar. Meðal kostanna er að óvissa tengd gengissveiflum verður minni, a.m.k. ef tekst að varðveita fast- gengið og forðast spákaupmennsku- árásir. Á móti kemur að sjálfstæðri peningastefnu verður ekki beitt með innlendar efnahagsaðstæður í huga. Aðlögun þjóðarbúskaparins ætti sér því stað í meiri mæli gegnum raun- stærðir líkt og atvinnu og framleiðslu. „Verði fastgengisfyrirkomulag hins vegar tekið upp, eru mismunandi út- færslur mögulegar. Innganga í Mynt- bandalag Evrópu, sem fylgir aðild að Evrópusambandinu, virðist betri kostur en tenging við evruna eða ein- hliða upptaka hennar eða önnur veik- ari form fastgengisstefnunnar,“ segir í skýrslunni. Fleiri tæki en vextir Bent er á að hið hefðbundna vaxtatæki Seðlabankans þurfi ekki endilega að vera besta tækið til að vinna á móti und- irliggjandi ójafnvægi á fjármálamörkuð- um. Fleiri stjórntæki þurfi til og benda skýrsluhöfundar á þau. Slík viðbótar- tæki kallast „þjóðhagsvarúðartæki“ en meðal þeirra má t.d. nefna reglur um breytileg hámarksveð- og eiginfjár- hlutföll og takmarkanir á lausafjár- og gengisáhættu. Til viðbótar við þessar reglur kæmi einnig aukin notkun gjaldeyrisinngripa til að vinna gegn sveiflum í gjald- eyrisinnstreymi sem magna útlánasveiflur og eignaverðs- bólur og draga í leiðinni í ein- hverjum mæli úr óhóflegum gengissveiflum. Þá gæti söfnun gjaldeyrisforða, til nota þegar á bjátar, stuðlað að fjármálastöðguleika. Þá segir að nauðsynlegt sé að bæta um- gjörð stefnunnar í opinberum fjármál- um, t.d. með notkun fjármálareglna. Þörf er kerfisbundnara sam- spils stefnu í peningamálum og stefnu í opinberum fjár- málum. Gjaldeyrishöftin geta ekki varað til lengdar Stjórn peningamála undanfarin tvö ár hefur markast af gjaldeyrishöftum og um hríð af inngripum á gjald- eyrismarkaði auk hins hefðbundna vaxtatækis Seðlabankans. Höftin geta hins vegar ekki varað til lengdar. Þau hafa í för með sér óæskilegan viðskipta- kostnað og eru auk þess á skjön við al- þjóðlegar skuldbindingar Íslands, m.a. samninginn um Evrópska efnahags- svæðið. Ný stefna í peningamálum þarf því að liggja fyrir þegar samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn lýkur. Knýj- andi spurning er því, segir í hinni nýju skýrslu Seðlabankans, hvernig hægt sé að stuðla að sambærilegum peningaleg- um stöðugleika og náðst hefur í flestum öðrum ríkjum, jafnt í þróuðum ríkjum sem og nýmarkaðsríkjum. Ráðherra boðar víðtækt samráð Árni Páll Árnason, efnahags- og við- skiptaráðherra, lagði út af skýrslu Seðlabankans í grein í Frétta- blaðinu síðastliðinn mánu- dag. Þar boðar ráðherrann víðtækt samráð um nýja peningamálastefnu. Hann segir að til skamms tíma þurfi peningamálastefnan að greiða fyrir varkáru afnámi gjaldeyrishaftanna en til lengri tíma þurfi hún að auðvelda Íslendingum upptöku evru, samþykki þjóðin aðild að Evrópu- sambandinu. Evrópusambandsaðild er á stefnu- skrá Samfylkingarinnar en ekki hins stjórnarflokksins, Vinstrihreyfingar- innar – græns framboðs. Fréttatíminn birtir hér á eftir útdrátt úr grein efna- hags- og viðskiptaráðherra um leið og fjórir þingmenn annarra flokka horfa til framtíðar og langþráðs stöðugleika í peninga- og gengismálum þessarar þjóðar, hvort heldur greitt verður með krónum, evrum eða öðrum gjaldmiðli. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Gengi krónu verði fest við evru Seðlabankinn leggur línur verði fallið frá sjálfstæðri peningastefnu með fljótandi gjaldmiðil Ný peningamálastefna þarf að liggja fyrir þegar sam- starfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn lýkur. Ýmsar skýringar eru á slökum árangri Seðlabankans frá því að verðbólgumarkmið var tekið upp. Jónas Haralds- son gluggaði í gögn Seðlabankans og ræddi við stjórn­ málamenn. Innganga í Myntbanda- lag Evrópu, sem fylgir aðild að Evrópusam- bandinu, virðist betri kostur en tenging við evruna eða einhliða upptaka hennar. Árni Páll Boðað til víðtæks samráðs Peningastefnan þarf að auðvelda upp- töku evru ef þjóðin samþykkir ESB-aðild Til skamms tíma litið þarf stefnan að greiða fyrir varkáru afnámi hafta. Meta þarf með raunsæjum hætti tjónið af krónunni til lengri tíma. Árni Páll Árnason, efna- hags- og viðskiptaráðherra, segir að boðað verði til víð- tæks samráðs og umræðu um mörkun nýrrar peninga- málastefnu, að því er fram kom í grein í Fréttablaðinu á mánudaginn. Ráðherrann segir þar að til skamms tíma þurfi peningamálastefnan að greiða fyrir varkáru afnámi gjaldeyrishaftanna, en til lengri tíma litið þurfi hún að auðvelda Íslend- ingum upptöku evrunnar, samþykki þjóðin aðild að Evrópusambandinu. „Við verðum að meta með raunsæjum hætti tjónið af íslenskri krónu til lengri tíma litið og setja okkur raunhæf markmið um afnám hafta, sem ekki leiða til efna- hagslegrar kollsteypu,“ segir Árni Páll og síðan: „Til skemmri tíma munum við búa við krónu í einhvers konar höftum. Upptaka evru verður ekki einföld, en flest bendir til að valið verði milli hennar eða afturhvarfs til einhæfari viðskiptahátta og viðvarandi haftabú- skapar.“ Árni Páll segir í grein sinni að sveigjanleiki krónunnar hafi verið mikilvægur við lausn á efnahagsvanda fortíðarinnar, en hann sé jafnframt ein helsta ástæðan fyrir þeim erfiðleikum sem þjóðin hafi nú ratað í. Jákvæð áhrif gengislækkunar krónunnar séu ofmetin í umræðunni. „Gengisfellingar gátu vissu- lega leyst tiltekin vandamál á fyrri tíð: Þær rýrðu kjör al- mennings og lækkuðu skuldir útflutningsgreina í lokuðu hag- kerfi. Krónan var hins vegar lykilástæða fyrir vanda okkar í aðdraganda hrunsins og geng- islækkun hennar í hruninu hefur búið til alvarlegasta efna- hagsvanda þjóðarinnar, nú um stundir: Skuldavandann,“ segir Árni Páll í blaðagreininni. Úrlausn á ofskuldsetningu atvinnulífs og heimila er stærsta vandamálið, segir hann enn fremur. Vandinn stafi af því að þorri skulda sé annaðhvort tengdur verðbólgu eða gengi krón- unnar. Þetta bendi til þess að krónan sé frekar hluti af vandanum en forsenda lausnarinnar. „Þar við bætist sú staðreynd að traust á íslensku efnahagslífi og gjaldmiðlinum er nú í algeru lágmarki. Engar líkur eru á að fjárfestar vilji efna til áhættu í ís- lenskum krónum í fyrirsjáanlegri fram- tíð og engir munu ótilneyddir vilja lána í íslenskum krónum,“ segir Árni Páll. „Við vitum hvernig hörmungarsaga krónunnar hefur verið hingað til. Er eitthvað sem bendir til að eftirhrunsk- rónan verði betri og veikleikarnir minni?“ spyr efnahags- og viðskipta- ráðherra. -jh Árni Páll Árnason, efnahags­ og við- skiptaráðherra. Krónan var lykil- ástæða fyrir vanda okkar í aðdraganda hrunsins. Knýjandi spurning er hvernig hægt sé að stuðla að sambærilegum peningalegum stöðugleika og náðst hefur í flestum öðrum ríkjum, jafnt í þróuðum ríkjum sem og nýmarkaðsríkjum. Á myndinni er Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Ljósmynd/Hari Tryggvi Þór Peningastefnan aðeins lítill hluti ESB-aðildar Misskilningur að halda að upptaka evru leysi vandamál Íslendinga Lausnin er að búa peningamálastefnu á Íslandi þá umgjörð að krónan geti virkað. Ekki hægt að segja að evran hafi staðið sig vel í fyrsta fjármálaáfallinu. Tryggvi Þór Herbertsson, hag- fræðingur og þingmaður Sjálfstæð- isflokksins, á sæti í efnahags- og skattanefnd Alþingis. Hann segir það hafa legið fyrir árum saman að tveir kostir séu í boði fyrir Ís- lendinga hvað gjaldmiðil varðar, að halda krónunni eða taka upp evru. Til þess að nýta evrukostinn verði þjóðin að ganga í Evrópusamband- ið. Það að ganga í Evrópusamband- ið aðeins til að skipta um peninga- málastefnu sé helst til gassalegt. Það sé eins og að reka lítinn nagla í spýtu með sleggju. Peningastefnan sé aðeins lítill hluti Evrópusam- bandsaðildar. „Lausnin er sú,“ segir Tryggvi Þór, „að búa peningamálastefnu á Íslandi þá umgjörð að krónan geti virkað ef við göngum ekki í Evr- ópusambandið. Það þarf að breyta umgjörð um fjármálastjórnunina, þ.e. ríkisfjármálin. Núna í haust var lögð fram tillaga, unnin á fræðilegri úttekt, um hvernig á að setja fjármálareglu sem dempar hagsveiflurnar, minnkar þrýstinginn. Það kemur því á borð Alþingis og framkvæmdavaldsins að hemja hagsveifluna en peningamálastjórnin var skilin eftir á víðavangi árið 2001. Þeir sem halda að lausnin á vandamálum Ís- lands sé að taka upp evru eru haldnir miklum misskilningi. Það þurfa að vera nákvæmlega sömu skilyrði til að evran virki og að krónan gagnist okkur vel, þ.e. stöðugt efnahagslíf, ekki of mikli eftirspurn í hagkerfinu og stjórn á fjárfestingu. Annars lendum við í sömu stöðu og Írar, Ítalir og Grikkir,“ segir Tryggvi Þór og segir að fremur þurfi að fara að eins og Þjóðverjar og fleiri stór ríki í Norður-Evrópu. Hann segir að engar patentlausnir séu til. Íslend- ingar þurfi að koma ríkisfjármálum í það stand að þau styðji við pen- ingamálastefnuna. Þannig fáum við stöðugri gjaldmiðil. Tryggvi Þór segir að þar sem Seðla- bankinn tali um meira en 99% rýrnun krónunnar miðað við þá dönsku sé látið í veðri vaka að lífskjör á Íslandi hafa versnað svona líka. Það sé fals. Lífskjör hér miðað við í Danmörku hafi batnað gríðarlega. Þau voru ekki nema brot af því sem var í Danmörku fyrir stríð en ef miðað er við landsframleiðslu nú séu lífskjör á Íslandi betri en þar. Rýrnun íslensku krónunnar sé hins vegar mælikvarði á þá óvissu sem verið hefur í íslenska hag- kerfinu, verðbólga og fleira, þ.e. mælikvarði á lélega peningastjórnun. Tryggvi Þór segir enn fremur að ekki sé hægt að segja með góðri samvisku að evran hafi staðið sig vel í fyrsta fjármálaáfallinu eftir að hún var tekin upp, ef litið sé til jaðar- ríkja Evrópusambandsins og þess gríðarlega velferðartaps sem hafi orðið innan Evrópu. „Þeir sem eru tilbúnir að ganga í ESB bara út af peningamálastefnunni ættu að bíða í tvö til fjögur ár og sjá hvað gerist með peningakerf- ið þar. Menn eru ekki að fara að kaupa sama peningakerfi þar og var í upphafi. Það á eftir að breytast vegna þess hvernig það reyndist milljónum manna,“ segir Tryggvi Þór. -jh Tryggvi Þór Her- bertsson. Upptaka evru leysir ekki vandann. Sjá einnig bls. 14 12 úttekt Helgin 30. desember 2010­2. janúar 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.