Fréttatíminn - 30.12.2010, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 30.12.2010, Blaðsíða 18
É g er náttúrlega óskaplega feginn því ef svona veikburða maður í pólitík getur komið þessari ágætu ríkis- stjórn að einhverju liði því að ég get ekki betur séð en að það nálgist að vera krafta- verk hvernig þessari ríkisstjórn hefur tekist að snúa ástandinu hér á betri veg eftir það hræðilega hrun og þær ömurlegu rústir sem Sjálfstæðisflokkurinn skildi eftir sig. Mér finnst þetta neikvæða tuð um ríkisstjórnina svipað því að segja að Lionel Messi sé ekki nógu góður í fótbolta. Hann gæti verið miklu betri ef hann væri allt öðruvísi. Ég er búinn að fá alveg upp í kok af þessu neikvæða tuði og barlómi vegna þess að það er alveg sama hversu ríkur einhver maður er og býr við góðar að- stæður; ef hann hefur ekki jákvæðni, von og vilja þá er mjög illa fyrir honum komið. Það er ekki í verkahring ríkisstjórna að gera borgarana hamingjusama. Sú ábyrgð hvílir á okkur öllum. Hverjum og einum. Það sem ríkisstjórnir eiga að gera er að koma í veg fyrir að fólk búi við óöryggi og ófrið og ég get ekki betur séð en að þau mál séu í sæmilegu lagi hérna. Ef menn eru alveg uppfullir af sorg og sút þá er það varla Jóhönnu og Steingrími að kenna.“ Ríkisstjórnin kemst á leiðarenda Þráinn segist ekki vera gæddur spádóms- gáfu en hann hafi trú á að stjórnin muni halda velli. „Ég hef ekki tilfinningu fyrir öðru en að stjórnin muni lifa. Þjóðar- skútan er komin í gegnum brimgarðinn og stjórnin mun sigla sína ferð á enda nema einhverjir í áhöfninni taki upp á því að skrúfa botnlokann úr skipinu. Ég hef ekki trú á því að það gerist.“ Hinir svokölluðu villikettir eða órólega deildin í flokki Þráins, Vinstri-grænum, þykja þó stundum líklegir til þess einmitt að sökkva skútunni og óvissan um lífdaga stjórnarinnar magnaðist fyrir jól þegar þingmennirnir Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason studdu ekki fjárlagafrumvarpið. „Ég held nú að þetta síðasta upphlaup hafi verið vanhugsað og á misskilningi byggt en örugglega í bestu meiningu,“ segir Þráinn. „Ég held að með smá yfirvegun sjái menn að villikettirnir hafi breimað full hátt og þótt þeir vera full kvaldir.“ Mín tilfinning er sú að stjórnin muni seiglast í gegnum þetta og smátt og smátt muni fleiri og fleiri átta sig á hvílíkt þrekvirki hefur verið unnið hérna. Ég verð náttúrlega að segja að fyrir mína parta finnst mér Steingrímur J. Sigfússon hafa verið aflgjafinn í þessari ríkisstjórn. Ég hef bara aldrei á ævi minni séð nokkurn mann vinna jafn mikið og vel og hann hefur gert. Mér finnst það bara ganga kraftaverki næst og vera mikil heppni að svona maraþonmaður skyldi taka þetta á sínar herðar.“ Sér til betra lands Góðir hlutir gerast hægt og Þráinn hefur trú á því að hrunið muni, þegar upp er staðið, skila Íslendingum heilbrigðara og betra samfélagi. Hann segist verða var við breytt gildismat sem hugnist honum betur en það sem var við lýði síðustu árin fyrir hrun. „Jájá. Það sést til nýs Íslands úti við ystu sjónarrönd. Mér finnst mikil stefnu- breyting hafa orðið. Þjóðfélag er stórt skip, jafnvel svona dvergþjóðfélag eins og okkar, og það tekur töluverðan tíma að snúa því og breyta um stefnu. Áður var talað um gróða, hlutabréf og yfirburði Íslendinga umfram aðrar þjóðir. Nú er talað um afla- brögð, gæftir, gegnsæi í stjórnsýslu og lýð- ræðisleg vinnubrögð. Þetta er mér miklu meira að skapi. Ef þetta er ekki stefnu- breyting þá veit ég ekki hvað. Í nýju Ís- landi felst ekki að loftslagið hérna breytist eða að allir fallist í faðma þegar þeir sjást á götum vegna þess að mannleg náttúra er, að ég held, alveg óbreytt og ósnortin af þessu. En kannski hefur lítil þjóð hugsað ráð sitt og komist að þeirri niðurstöðu að þau gildi sem voru talin eftirsóknarverð síðustu árin fyrir hrun hafi verið hrævar- eldur og að önnur gildi séu líklegri til að vera grundvöllur farsæls lífs hérna á eyj- unni. Þannig að ég er hóflega bjartsýnn og þótt ég sé sem betur fer aldrei mjög bjart- sýnn þá er ég alls ekki svartsýnn á fram- tíðina. Þessi geðveika þjóðremba hefur minnkað og hana er kannski helst að finna í einhverjum taugabiluðum fjandskap við Evrópusambandið eða eitthvað svoleiðis. En það er bara eins og gengur. Við verðum aldrei sammála um alla hluti en ég held að það stefni í að við getum verið sammála um fleira og fleira og þá kannski ákveðin grundvallargildi sem eru þá forsenda þess að framtíðin geti verið farsæl. Alþingi er ekki skemmtilegasti vinnu- staðurinn Þráinn var ekki á leið í stjórnmál fyrir hrun enda kominn á virðulegan aldur og hefur verið að gera það gott á bókamarkaði á liðnum árum bæði með sjálfsævisögum sínum og glæpasögum. Hann segir það því að sjálfsögðu hafa verið mikil viðbrigði að vera allt í einu kominn í atið á Alþingi. „Það er gífurlegur munur á því að hafa áhuga á stjórnmálum og að taka þátt í þeim. Munurinn er eiginlega svipaður því að skrifa bók og gagnrýna hana. Og ég held að það sé nú miklu erfiðara að skrifa bókina en gagnrýna en mér finnst þetta ákaflega spennandi og skemmtilegt. Það sem kom mér á óvart var að sjá að í lýðræð- inu okkar eru áhrif og völd einstaklinga miklu minni en ég hélt að þau væru. Ég hélt að einstakir þingmenn gætu fengið miklu meira áorkað og svo framvegis heldur en raunin er. Og það er bara gott. Það er alveg prýðilegt að breytingar og lagasetningar þurfi að fara í gegnum þessa mulningsvél sem 63 þingmenn eru. Það er bara alveg nauðsynlegt. Ég vildi bara óska að ég gæti látið meira gott af mér leiða en ég er ánægður með að mér finnst vera hlustað á sumt af því sem ég segi sem telja má skynsamlegt.“ Þráinn segir þingstörfin geta orðið þreytandi á köflum. „Ég hef fengist við margt í lífinu en aldrei fundið neitt sem er eingöngu skemmtilegt. Það koma leiðin- legir tímar þegar maður er að skrifa. Það er líka stundum gaman að gera kvikmynd- ir en mestur tíminn fer í bið og einhver vandræði. Þetta er eins í stjórnmálunum. Það er stórkostlega gaman að geta stuðlað að framfaramálum en síðan er mikið um leiðinlegt tuð sem skilar litlu. Þetta er bara eins og annað í lífinu. Stundum er gaman og stundum ekki. Ég geri ekkert tilkall til þess að lífið sé eins og samfelld full- næging. Þetta er ekkert skemmtilegasti vinnustaður sem ég hef verið á en þarna er margt af bæði góðu og skemmtilegu fólki. Og eins og víðast hvar þá er nú góða fólkið heldur skemmtilegra.“ Kominn með upp í kok af neikvæðu tuði Alþingismaðurinn, rithöfundurinn og kvikmyndaleikstjórinn Þráinn Bertelsson er nokkuð bjartsýnn á framtíð Íslands. Undanfarið hefur verið talað um hann sem bláþráðinn sem líf ríkisstjórnarinnar hangi á og hann telur að stjórnin muni þrauka út kjörtímabilið. Þórarinn Þórarinsson talaði við Þráin um pólitíkina, réttlæt- ið og lífið innan veggja þinghússins. 18 viðtal Helgin 30. desember 2010-2. janúar 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.