Fréttatíminn - 30.12.2010, Side 6
★
★★
★
★★★
★
★
Sjá opnunartíma verslana Krónunnar
á www.kronan.is
★★
★
★
★
★
★
★
★
★
Frábært
í áramóta-
veiSluna
★★
★
Stjörnu Partý-mix
og lorenz saltstangir
Ö
ll
ve
rð
e
ru
b
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r
og
/e
ða
m
yn
da
br
en
gl
X-ray orkudrykkur
kr.
stk.49
KauPtu2 POKa aF PartÝ-miXiOG ÞÚ FærÐ 1 PaKKa aF SaltStÖnGum meÐ!
Rúmlega eitt hundrað manns skuld-
batt sig um síðustu áramót til þess
að ganga á 52 fjöll á árinu með
Ferðafélagi Íslands, eða eitt fjall á
viku. Flest smærri og stærri fjöll í
nágrenni Reykjavíkur, auk margra
annarra, voru á verkefnaskrá hóps-
ins og Hvannadalshnúkur var tek-
inn með trompi í byrjun maí.
Hópurinn mun hittast í síðasta
sinn á gamlársdag í Perlunni á
Öskjuhlíð eftir að hafa gengið á
Öskjuhlíðina úr Nauthólsvík.
Á nýju ári verður verkefnið, Eitt
fjall á viku, sett af stað að nýju.
Kynningarfundur verður haldinn
í sal FÍ í Mörkinni kl. 20 hinn 5.
janúar. Þybbnar sófakartöflur eru,
að því er fram kemur í tilkynningu,
orðnar að grannvöxnum og stælt-
um fjallagörpum með blik í auga og
fjaðurmagn í spori. -jh
FerðaFélagið Hundrað gekk á 52 Fjöll
Sófakartöflur að
stæltum fjallagörpum
Flutti milljóna-
viðskipti Lands
bankans til LEX
Gunnar Viðar, fyrrverandi yfirmaður lögfræðisviðs Landsbanka
Íslands, varð nýverið einn af eigendum lögmannsstofunnar LEX.
Hann kom inn á stofuna með milljónasamning við bankann upp
á vasann.
l ögfræðingurinn Gunnar Viðar sagði nýverið upp störfum sem yfirmaður lög-
fræðisviðs Landsbankans og gekk
til liðs við lögmannsstofuna LEX.
Á sama tíma gerði Landsbankinn
milljónsamning við LEX um kaup
á lögfræðiþjónustu. Sá samningur
var gerður stuttu eftir að Gunnar
hætti eftir tólf ára starf hjá bank-
anum, fyrst sem forstöðumaður
lögfræðiráðgjafar bankans og
síðan sem yfirmaður lögfræðisviðs
frá því skömmu eftir hrun árið
2008.
„Þetta er rétt. Við gerðum
samning við LEX um það leyti
sem Gunnar Viðar hvarf héðan
og til starfa hjá LEX. Hann var,
sem fyrrverandi framkvæmda-
stjóri lögfræðisviðs, með mjög
mikla þekkingu á mörgum mikil-
vægum málum og eðlilegt að hægt
væri að leita til hans vegna þeirra.
Því var gerður fastur samningur
sem er þess eðlis að tímafjöldinn
minnkar eftir því sem lengra líður.
Við kaupum lögfræðiþjónustu af
mörgum lögfræðistofum, meðal
annars af Lex sem við höfum skipt
við lengi, rétt eins og marga aðra,“
sagði Kristján Kristjánsson, upp-
lýsingafulltrúi Landsbankans, í
samtali við Fréttatímann.
Aðspurður hvort ekkert óeðlilegt
væri að gera milljónasamning við
mann á útleið úr bankanum sagði
Kristján svo ekki vera. „Við töldum
mikilvægt að halda í ákveðna mála-
þekkingu sem væri verðmæt fyrst
um sinn,“ sagði Kristján.
Eftir því sem Fréttatíminn
kemst næst hljóðar samningurinn
á milli Landsbankans og LEX upp
á kaup á tvö hundruð tímum af lög-
mannsþjónustu á mánuði. Miðað
við útselda vinnu lögmanna má
gera ráð fyrir að samningurinn sé
fimm milljóna króna virði á mán-
uði fyrir LEX og þá sextíu milljónir
á ársgrundvelli.
Gunnar Viðar er einn af eigend-
um LEX í dag. Hann hefur setið í
ótal nefndum á vegum viðskipta-
ráðuneytisins. Hann sérhæfir sig í
löggjöf á fjármálamarkaði, félaga-
rétti og samninga- og kröfurétti.
Afi hans og nafni var bankastjóri
Landsbankans um miðbik síðustu
aldar.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
lögmennska Vistaskipti
Gunnar Viðar flutti sig sig um set frá Landsbankanum yfir á eina stærstu lögmanns-
stofu landsins LEX. Ljósmynd/Hari
Miðað við
útselda vinnu
lögmanna má
gera ráð fyrir að
samningurinn sé
fimm milljóna
króna virði á
mánuði fyrir
LEX og þá sextíu
milljónir á árs-
grundvelli.
Helgin 30. desember 2010-2. janúar 2011