Fréttatíminn - 30.12.2010, Page 13
Eignastýring Íslandsbanka 440 4900
eignastyring@islandsbanki.is
www.islandsbanki.is/fjarfestingar
Eignastýring
Íslandsbanka
mun heita VÍB
á nýju ári
VÍB verður öflug eining með skýra aðgreiningu
eignastýringar frá annarri starfsemi Íslandsbanka.
Eignastýring Íslandsbanka mun starfa aftur
undir merkjum VÍB á nýju ári. Þessi breyting
er gerð til að skerpa enn frekar á aðgreiningu
eigna stýr ingar starfsemi frá annarri banka
starf semi. Á sama tíma verður starfsemi og
þjónusta einingarinnar efld enn frekar.
Áhrif á þjónustu
Eigna stýring verður sem fyrr stað sett á Kirkju
sandi og engin röskun verður á þjónustu við
við skipta vini vegna nafna breyt ingar.
Undir merkjum VÍB leitast eignastýringin við að
veita við skipta vinum aurða þjónustu á sviði
sparnaðar, eignastýringar, verðbréfaviðskipta
og lífeyrisþjónustu með langtímaárangur að
leiðar ljósi. VÍB verður einn stærsti og öflugasti
aðilinn á markaðnum á sviði eignastýringar þar
sem áhersla verður lögð á fagleg vinnubrögð og
fræðslu til fjárfesta.
Endurvakið vörumerki
Eignastýringarstarfsemi Íslandsbanka var
rekin undir merkjum VÍB á árunum 1986–2001.
VÍB var frumherji á sviði eignastýringar og þekkt
fyrir fag lega nálgun með áherslu á fræðslu.
VÍB og síðar Eigna stýring Íslandsbanka gaf
meðal annars út bækur og önnur rit um eigna
stýr ingu, verð bréf og líf eyris mál sem var
dreift meðal við skipta vina og voru auk þess
notaðar við kennslu í háskólum. Starfsemi VÍB
einkenndist alla tíð af vönduðum vinnubrögðum
í fjármálastarfsemi.
Aðgreining frá annarri starfsemi bankans
Tímasetning breytingarinnar er ekki tilviljun.
Á síðastliðnum tveimur árum hafa verið stigin
fjöl mörg skref í því að styrkja undir stöður
eigna stýr ingar starf semi Íslandsbanka og byggja
þannig umgjörð að traust geti ríkt um sjálf
stæði og fag mennsku á hverjum tíma. Sam hliða
því hefur mikil áhersla verið lögð á að styrkja
skipu lag, verk ferli, viðskiptakerfi, innra eftir lit og
áhættu stýringu. Skýrari aðgreining eigna stýr
ingar starfsemi Íslandsbanka frá annarri banka
starf semi er enn eitt skrefið í þessari þróun.
Við hvetjum þig til að hafa samband við
Eignastýringu í síma 440 4900 eða senda
okkur tölvupóst á eignastyring@islandsbanki.is
ef spurningar vakna.