Fréttatíminn - 30.12.2010, Síða 28

Fréttatíminn - 30.12.2010, Síða 28
Gosið í Eyjafjallajökli Ísland komst í heimsfréttirnar í apríl þegar gos hófst í Eyjafjallajökli. Það byrjaði reyndar sem minna gos á Fimmvörðuhálsi rétt fyrir miðnætti 20. mars. Því gosi lauk 12. apríl. Einum og hálfum sólarhring seinna, aðfaranótt miðvikudagsins 14. apríl hófst gos að nýju í jöklinum og kom kvikan upp í suðvestanverðum topp- gíg jökulsins. Gosið var mjög kröftugt og hafði gífur- leg áhrif. Aska úr gosinu gerði búsetuskilyrði á Suður- landi erfið og rýma þurfti marga bæi vegna ofanfalls úr gosinu. Hún dreifðist einnig um alla Evrópu og raskaði flugumferð svo vikum skipti. Jarðhræringum lauk 23. maí en öskunnar varð vart lengi á eftir. Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis kom út 12. apríl. Óhætt er að segja að fárra skýrslna hafi verið beðið með jafn mikilli eftirvæntingu enda hafði nefndin verið að störfum í tæpt eitt og hálft ár. Skýrslan var mikil að vöxtum, heil níu bindi, en það kom þó ekki í veg fyrir að hún væri mest selda bókin í landinu fram í nóvember. Skýrslan var kynnt á blaðamannafundi að morgni 12. apríl þar sem nefndarfólkið Páll Hreins- son hæstaréttardómari, Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, og Sigríður Benediktsdótt- ir, kennari við hagfræðideild Yale-háskóla í Banda- ríkjunum, skýrðu frá helstu niðurstöðum hennar. Mikil ánægja ríkti meðal almennings með skýrsluna enda þótti hún sýna skýrt ábyrgð bæði ráðamanna og viðskiptamanna á hruninu. Í kjölfarið var skipuð þingmannanefnd til að vinna úr niðurstöðum hennar. Starfi þeirrar nefndar lauk með því að Alþingi sam- þykkti með naumum meirihluta að kæra Geir H. Ha- arde, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir landsdómi. Icesave-höfnun forsetans Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, neitaði að skrifa undir lög um nýjan Icesave-samning 5. janú- ar og vísaði samningnum til þjóðar- atkvæðagreiðslu. Hátt í fjörutíu þúsund Íslendingar höfðu skrifað undir yfirlýsingu þar sem skorað var á Ólaf Ragnar að synja lögunum staðfestingar. Lögin höfðu verið samþykkt á Alþingi 28. desember 2009 með naumum meirihluta, 33-30. Stjórnvöld drógu frumvarpið til baka en engu að síður fór fram þjóðar- atkvæðagreiðsla um málið í mars. Þar var samningur- inn kolfelldur. Samninganefnd Íslands, undir forystu Lee C. Bucheit, kom heim í byrjun desember með nýjan Icesave-samning sem verður tekinn til umfjöll- unar á Alþingi strax eftir áramót. Sigur Besta flokksins Besti flokkurinn, undir forystu leikarans og grínistans Jóns Gnarr, kom sá og sigraði í sveitarstjórnarkosn- ingunum í Reykjavík í maí. Flokkurinn, sem álitinn var grínframboð lengi fram eftir vetri, fékk rétt tæplega 35% atkvæða í kosningunum og stóð uppi sem stærsti stjórnmálaflokkurinn í Reykjavík og með sex borgarfulltrúa. Í kjölfar kosninganna myndaði Besti flokkurinn meirihluta með Samfylkingunni og Jón Gnarr varð borgarstjóri. Rústabjörgunarsveitin fyrst til Haítí Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin var kölluð út til hjálp- arstarfa á Haítí 13. janúar eftir að öflugur jarðskjálfti reið yfir landið og lagði höfuðborgina Port au Prince nánast í rúst. Sveitin varð fyrst allra björgunarsveita á svæðið og tók að sér svæðisstjórn fyrir Sameinuðu þjóðirnar meðan dvöl hennar stóð. Við komuna til Haítí hélt sveitin strax í leiðangur og bjargaði þremur einstaklingum út úr eyðilagðri verslunarmistöð. Sveit- in dvaldi á Haítí í átta daga og skildi meðal annars eft- ir hluta af tækjum sínum og búnaði við brottför. Ljóst var, eftir dvölina á Haítí, að íslenska rústabjörgunar- sveitin var á heimsmælikvarða og kepptust erlendir björgunaraðilar við að hlaða hana lofi. Morðið á Hannesi Þór Helgasyni Hannes Þór Helgason fannst myrtur á heimili sínu í Hafnarfirði 15. ágúst. Hannes Þór, sem var sonur athafnamannsins Helga Vilhjálmssonar í Góu, var stunginn mörgum sinnum með hníf og lést af sárum sínum. Nokkru eftir morðið játaði Gunnar Rúnar Sigurþórsson, vinur unnustu Hannesar, að hafa myrt Hannes í afbrýðisemikasti. Hann vísaði á morðvopnið sem kom í leitirnar þegar tveir ungir drengir skiluðu til lögreglu hníf sem þeir höfðu fundið í smábátahöfn- Tíu hápunktar ársins 2010 Fréttatíminn fer yfir þá atburði sem stóðu upp úr í íslensku samfélagi árið 2010 G ylfi Þór Sigurðsson hefur átt magnað ár á vellinum. Hann boðaði komu sína á stóra svið fótboltans með stæl strax í ársbyrjun þegar hann jafnaði með marki af víta- punktinum í blálokin í leik Liverpool og Reading í ensku FA-bikarkeppninni. Með markinu knúðu liðs- menn Reading fram fram- lengingu og stóðu uppi í leikslok sem sigurveg- arar á sjálfum heimavelli Liverpool. Gylfi var valinn leikamaður mánaðarins í næstefstu deildinni ensku í mars og leikmaður árs- ins hjá Reading undir lok tímabilsins. Hann skor- aði 21 mark í 44 leikjum fyrir liðið og fastlega var reiknað með að hann yrði seldur til liðs í ensku úr- valsdeildinni. Gylfi skrif- aði hins vegar undir nýjan samning við Reading í maí. Hann hóf keppnistímabilið 2010 til 2011 af sama krafti og hann lauk því fyrra og skoraði tvö mörk fyrir Reading í ágúst en var svo seldur til þýska Bundes- ligu-liðsins 1899 Hoffen- heim í lok mánaðarins fyrir um sjö milljónir punda eða ríflega 1,2 milljarða króna. Varð hann þar með dýrasti leikmaður sem seldur hef- ur verið frá Reading. Gylfi hefur byrjað vel í sterkustu deild Þýskalands; skoraði í sínum öðrum leik með Hof- fenheim og er kominn með sex mörk þrátt fyrir að hafa verið sjaldnar í byrjunarliði en reiknað var með. En Gylfi hefur ekki að- eins átt frábært ár með félagsliðum sínum. Hann er líka hluti af feikiöflugu U-21 árs landsliði Íslands og skoraði stórbrotin mörk fyrir liðið þegar það tryggði sér þátttökurétt í Evrópukeppni U-21 árs liða sem fram fer í Danmörku næsta sumar. Aðeins 21 árs að aldri er Gylfi orðinn besti fótboltamaður lands- ins.  bestur á vellinum Gylfi þór siGurðsson Sá skotfastasti Ljósmynd/Örvar Þorgeirsson Nordic Photos Lj ós m yn d/ N or di c Ph ot os 28 annáll Helgin 30. desember 2010-2. janúar 2011

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.