Fréttatíminn - 30.12.2010, Síða 55

Fréttatíminn - 30.12.2010, Síða 55
tíska 55Helgin 30. desember 2010-2. janúar 2011 Höfum varann á Við konur höfum alltaf verið svolítið þrjóskar þegar kemur að snyrtivörum. Við höldum okkur alltaf við uppáhalds vörumerkin okkar og notum hvern einasta dropa sem eftir er þangað til varan klárast. Stanslaust heyrum við að það sé fremur óhentugt að nota snyrti- vörur lengi því hver vara hafi sín tímamörk. Við þurfum að gæta okkur sérstaklega á maskar- anum. Því meira sem við notum hann því fleiri bakteríur safnast saman. Talið er að gott sé að skipta á tveggja til þriggja mánaða fresti til þess að koma í veg fyrir gerla sem valda roða, kláða eða jafnvel bólgu. Sólarpúður getur enst allt að tvö ár. Þó er nú mikil- vægt að hreinsa reglulega burstann sem notaður er og geyma púðrið á dimmum, þurrum stað því raki getur stuðlað að bakteríuvexti. Varalitur eru almennt öruggur til geymslu því hann inniheldur yfir- leitt ekki vatn. En þar sem hann er notaður í kringum munninn teljum við skynsamlegast að henda honum eftir ár. Naglalakk endist misjafnlega lengi. Bakteríur komast sjaldnast í snertingu við lakkið en eftir langan nýtingartíma þornar það upp á endanum, þykkist til muna og liturinn sest á botninn. Hvort sem við notum þurran eða blautan augnblýant er skynsamlegast að nota hann ekki lengur en í þrjá mánuði. Blýantarnir geta þó enst lengur ef skerpt er stöðugt á þeim. Höfum þó gát á því að ef okkur er farið að klæja í augun, bólga myndast eða roði, er tímabært að fleygja honum. Góðir förðunarburstar geta enst í mörg ár, svo lengi sem þeir eru hreinsaðir og geymdir á réttan hátt. Gott er að þurrka þá með votu klæði eftir hverja notkun. Rækileg hreinsun á tveggja vikna fresti er einnig mikilvæg og jafnvel að þvo hárin upp úr sjampói. -kp Á stralska ofurfyrirsætan Elle Macpherson, sem sneri sér að hönnun undirfata fyrir tuttugu árum, hefur kynnt nýja línu undir merkinu Bare and Bold eða Nakin og frökk. Undirfatalínan kemur í verslanir 3. janúar og samanstend- ur af einföldum buxum og brjóstahöldum í mörgum og snilld- arlega mótuðum skálum – fylltum, push-up og með spöngum – með eða án banda um háls eða axlir. Nærbuxurnar eru tví- laga til að koma í veg fyrir að línurnar sjáist í gegnum fötin. „Ég vildi vera viss um að línan virkaði og væri þægileg en einnig girnileg,“ segir Macpherson. „Konur kasta ekki til hendinni þegar þær kaupa undirföt heldur velja af kostgæfni. Sniðið, stíllinn og útlitið verða að vera fullkomin.“ Lagerfeld auglýsir Volkswagen Roskni tískumógúllinn Karl Lagerfeld hefur ákveðið að lána Volkswagen ímynd sína fyrir nýja auglýsingu bílafram- leiðandans. Í þrjátíu sekúndna myndbandi kynnir hann aukahlutapakka fyrir bæði Golf og Póló; málmteinafelgur og dökkar rúður – svo að tískudrósir geti hulið sig fyrir grámyglulegum hversdagsleikanum. Pakkinn nefnist á ensku Style, en kappinn er ekki þekktur fyrir annað en stíl. Sá þýski rómar bílana fyrir flottan franskan stíl en er snarlega leiðréttur – þeir eru jú þýskir. Framleiðendurnir leika sér þar með þann algenga misskilning svo margra að Lagerfeld sé Frakki. Ljósmynd/gettyimages Macpherson með nýja undirfatalínu

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.