Læknablaðið - 15.10.1983, Síða 53
LÆKNABLAÐIÐ
269
sjúklingum af félagslegum ástæöum til
skemmri dvalar. Síðan 1980 hefur St. Jósefs-
spítalinn í Hafnarfirði lagt inn sjúklinga úr
heimahúsum vegna félagslegra aðstæðna með-
an á sumarleyfum lækna stendur. í Reykjavík
hafa 3-4 legurúm í Hafnarbúðum verið ætluð
til félagslegra innlagna og vistfólki boðin eins
mánaðar dvöl í senn. Vísir er einnig að slíku
fyrirkomulagi við Öldrunardeild Hvítabands-
ins, Geðdeild. f>á hefur sjúkrahótel Rauða
kross íslands sinnt fólki, sem er sjálfbjarga að
mestu leyti og hefur á pví sviði tekist sam-
vinna við Öldrunarlækningadeild Landspítal-
ans, sem vísað hefur pangað fólki sem taldist
fært um að dveljast par eftir að mat hafði leitt
í ljós færni til pess.
Um margar pessar innlagnir af félagslegum
ástæðum var haft sarnráð við heimapjónustu
Reykjavíkurborgar, og völdust til Öldrunar-
lækningadeildarinnar peir sjúklingar, sem voru
meira fatlaðir og purftu mest á virkri endur-
hæfingu að halda. Gera má einnig ráð fyrir að
sjúklingar hafi verið lagðir inn á aðrar sjúkra-
deildir í Reykjavík á árinu af læknisfræði-
legum ástæðum, pótt félagslegar ástæður hafi
í rauninni verið brýnastar.
Því hefur verið haldið fram, að að baki hvers
félagslegs vandamáls sé annað læknisfræði-
legt. Geta má könnunar prófessors Brockle-
hurst í Manchester, sem framkvæmdi læknis-
fræðilegt mat á 100 einstaklingum, öldruðu
fólki, sem sampykkt hafði verið til vistunar á
elliheimili. Könnun hans leiddi í ljós að 32
Tafla 10. Útskriftartími.
Sjúklingar
Heim innan 3 mánaða*) 40
Dvelja lengur en 3 mánuði .... 11
Útskrifaðir á elliheimili*) 6
Dóu*) 3
Alls 60
*) Meðallegutími 48.6 dagar
Tafla 11. Ástand vid brottför.
Betra 32 sjúklingar 53 %
Óbreytt 25 sjúkiingar 41 %
Verra 3 sjúklingar 5 %
Alls 60 sjúklingar
Tafla 12. Medferdarflokkar.
Sjúklingar
Virk endurhæfing 30
Viðhaldsendurhæfing 17
Mat (rannsókn) 13
Alls 60
einstaklingar purftu á annars konar aðstoð að
halda og par af 16 sem purftu að Ieggjast inn á
sjúkrahús (3). í grein sinni bendir hann á að
róttækustu breytingar í lífi aldraðs einstak-
lings eru að hverfa frá sjálfstæðu lífi á heimili
sínu til stofnunar og bendir á, að sjúkdóms-