Læknablaðið - 15.11.1984, Blaðsíða 39
LÆKNABLADIÐ 1984;70:303-22
303
ARSSKYRSLA LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS
starfsárið 1983-1984
Inngangur
Skýrsla þessi nær yfir tímabilið frá 1. ágúst
1983 til 15. júlí 1984.
Alls greiddu 624 læknar árgjald árið 1983.
Þar af greidddu 478 fullt árgjald, en 146 hluta
árgjalds. Læknar á skrá komnir yfir sjötugt
og/eða hættir störfum voru 55 í árslok 1983,
en þeir greiða ekki árgjöld.
Af árgjaldinu, sem var kr. 6.800, var hluti
svæðafélags óbreyttur þriðja árið í röð, kr.
600. Innheimt árgjöld samsvöruðu 557 heilum
árgjöldum og skiptust þannig milli svæðafé-
laga:
Læknafélag Reykjavíkur 425, Læknafélag
Vesturlands 24, Læknafélag Vestfjarða 11,
Læknafélag Norðvesturlands 13, Læknafélag
Akureyrar 47, Læknafélag Norðausturlands 9,
Læknafélag Austurlands 12 og Læknafélag
Suðurlands 16.
Vorið 1983 útskrifuðust 46 kandídatar frá
læknadeild Háskóla íslands og einn um haust-
ið.
Eftirtaldir læknar hafa látizt frá síðustu
ársskýrslu:
Aðalsteinn Ásgeirsson
Bragi Ólafsson.......
Brynjar Valdimarsson .
Egill Jónsson........
Gísli Ólafsson.......
Guðmundur Árnason .
Helgi Skúlason.......
Ingólfur Blöndal ....
Kristbjörn Tryggvason
Valtýr Albertsson....
f. 06.08.49 d. 19.05.84
f. 18.11.03 d. 19.12.83
f. 19.06.30 d. 26.05.84
f. 17.07.94 d. 09.12.83
f. 20.07.18 d. 17.03.84
f. 28.11.25 d. 19.10.83
f. 22.06.92 d. 07.11.83
f. 21.06.12 d. 20.04.84
f. 29.07.09 d. 23.08.83
f. 16.01.96 d. 18.01.84
Aðalfundur L.í. 1983
Aðalfundur Læknafélags íslands árið 1983 var
haldinn í Domus Medica, Reykjavík, dagana
19. og 20. september.
Auk stjórnar, varamanna í stjórn og fram-
kvæmdastjóra félagsins sátu fundinn fulltrúar
eftirtalinna svæðafélaga: Læknafélags Reykja-
víkur allir 13, svo og einn varafulltrúanna,
Læknafélags Vesturlands 2, Læknafélags
Norðvesturlands. Læknafélags Akureyrar 3,
Læknafélags Norðausturlands, Læknafélags
Austurlands, Læknafélags Suðurlands, F.
Í.L.Í.S. og F.Í.L.B. Félög íslenzkra lækna í
Norður- Ameríku og Vestur-Þýzkalandi sendu
ekki fulltrúa á fundinn.
Gestir fundarins voru: Björn Önundarson,
tryggingayfirlæknir, Skúli G. Johnsen, borgar-
læknir, Arinbjörn Kolbeinsson, formaður Sér-
fræðingafélags íslenzkra lækna, Eyjólfur P.
Haraldsson, formaður Félags íslenzkra heimil-
islækna og Sigmundur Magnússon frá Domus
Medica.
Formaður flutti skýrslu stjórnar og urðu um
hana nokkra umræður. Gjaldkeri lagði fram
reikninga félagsins.
Sigmundur Magnússon flutti skýrslu stjórn-
ar Domus Medica og kynnti reikninga stofn-
unarinnar.
Eftir hádegi fyrri fundardag var fundurinn
opinn öllum læknum. Á dagskrá var efnið
»Kostnaður við rekstur heilsugæzlustöðva.
Framsögu höfðu Skúli G. Johnsen, borgar-
læknir, og dr. Jón Sæmundur Sigurjónsson,
deildarstjóri í heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneyti. Allmiklar umræður urðu að lokn-
um framsögurindum og svöruðu frummælend-
ur gagnrýni og fyrirspurnum, sem fram komu.
Síðari fundardagur hófst með því, að fimm
starfshópar, sem skipaðir voru daginn áður,
skiluðu áliti um framlagðar tillögur til laga-
breytinga og ályktana, og voru þær teknar
til afgreiðslu.
Tillögur stjórnar L.í. um breytingar á lögum
félagsins komu óbreyttar frá starfshópi og
voru samþykktar samhljóða þannig:
9. grein
Aðalfundur kýs átta manna stjórn úr hópi
félagsmanna: Formann, ritara, varaformann
og féhirði til 2ja ára í senn. Skulu þeir kosnir
hver fyrir sig. Annað árið skal kjósa formann
og féhirði, en hitt árið ritara og varaformann.
Þá skulu kosnir 4 meðstjórnendur til eins árs í
senn. Stjórnarmenn skulu vera frá a.m.k. 2