Læknablaðið - 15.11.1984, Síða 40
304
LÆKNABLADID
svæðafélögum. Stjórnarkosning er skrifleg,
óski einhver aðalfundarfulltrúi þess. Verði
atkvæði jöfn við stjórnarkjör skal hlutkesti
ráða. Kjósa skal einn endurskoðanda og
annan til vara úr hópi félagsmanna til eins árs í
senn.
15. grein
Niður falli 6. töluliður greinarinnar »kosnir
fulltrúar í B.H.M. og varamenn«. Aðrir tölu-
liðir breytist til samræmis.
Alls voru lagðar fram 17 tillögur til ályktunar.
Ýmsar þeirra tóku miklum breytingum við
endanlega afgreiðslu sem ályktanir aðalfund-
arins. Tvær tillögur voru sameinaðar í eina
ályktun og þrem var vísað til stjórnar L.í. til
frekari athugunar. Samþykktar ályktanir urðu
þannig 13 og fara þær hér á eftir:
I. Aðalfundur L.t. 1983 telur nauðsynlegt, að
stjórn félagsins láti semja reglur um, með
hvaða hætti læknum skuli heimilt að kynna sig
og starfsemi sína fyrir kollegum. Reglur þessar
verði skoðaðar sem nánari útfærsla á 12. gr. I.
kafla Codex Ethicus. Verði þær kynntar á
næstu formannaráðstefnu og síðan lagðar
fyrir aðalfund til samþykktar, enda greiði
a.m.k. 3A fulltrúa atkvæði.
II. Aðalfundur L.í. haldinn í Reykjavík 19.-20.
sept 1983 felur stjórn L.Í. að kanna, hvort
koma eigi á sjúklingatryggingum hér á landi,
sem bæti sjúklingum ófyrirséðan skaða af
læknisaðgerðum eða lyfjagjöf.
III. Aðalfundur L.í. haldinn í Reykjavík 19.-20.
sept. 1983 skorar á heilbrigðismáiaráðherra að
láta gera áætlun um læknaþörf á íslandi til
aldamóta. í henni komi fram heildarfjöldi
læknislærðra, fjöldi starfandi lækna á landinu
og skipting þeirra eftir sérgreinum. Ennfremur
skorar fundurinn á stjórn L.í. að ljúka við þá
könnun um atvinnuhorfur íslenzkra lækna,
sem þegar er í gangi á vegum L.Í. og beita sér
fyrir ráðstefnu um þau mál.
IV. Aðalfundur L.í. haldinn í Reykjavík 19.-20.
sept. 1983 felur stjórn L.Í. að beita sér fyrir
ráðstefnu um skipulag og samræmingu sér-
fræðináms íslenzkra lækna heima og erlendis
með þátttöku læknadeildar Háskóla íslands,
menntamálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis,
sjúkrahúsa og annarra heilbrigðisstofnana.
V. Aðalfundur L.í. haldinn í Reykjavík 19.-20.
sept. 1983 felur stjórn L.í. að beita sér fyrir
stofnun starfshóps til undirbúnings samræm-
ingar á sérfræðinámi íslenzkra lækna með til-
liti til sameiginlegs vinnumarkaðar á Norður-
löndum og fyrirhugaðra breytinga á reglugerð
um sérfræðileyfi.
VI. Aðalfundur L.í. haldinn í Reykjavík 19.-20.
sept. 1983 vill vekja athygli á, að ekki er til
miðbókasafn í læknisfræði í landinu. Beinir
fundurinn því til stjórnar L.Í., að hún hlutist til
um, að slíkt bókasafn fái aðstöðu í Þjóðar-
bókhlöðunni, sem nú er í byggingu. Hafi hún
um það samráð við þá aðila, sem nú þegar
veita þjónustu á þessu sviði.
VII. Aðalfundur L.í. haldinn í Reykjavík 19.-
20. sept. 1983 lýsir því yfir, að hinn stöðugi
kjarnorkuvopnavígbúnaður þjóða heims sé
ógn við mannkynið og auki hættuna á gjöreyð-
ingu nútíma menningar og mannlegs lífs.
Læknum er skylt að vinna gegn sífelldri hættu
á notkun kjarnorkuvopna, þar sem kjarnorku-
hernaður stríðir gegn öllum þeim viðhorfum,
er marka starf þeirra. Læknafélag íslands telur
rétt að auka fræðslu heilbrigðisstétta og al-
mennings um læknisfræðilegar afleiðingar
kjarnorkustríðs, enda getur heilbrigðisþjón-
ustan alls ekki veitt þá hjálp, sem að gagni
kæmi í kjarnorkustríði. Læknastéttin bendir á,
að eina raunhæfa leiðin til árangursríkra
almannavarna á þessu sviði er að vinna að
stöðvun kjarnorkuvígbúnaðar og síðan að
eyðileggingu allra kjarnorkuvopna. Skorar
Læknafélag íslands á íslenzka ríkið að vinna
eftir þessari meginreglu á alþjóðavettvangi.
Jafnframt fagnar fundurinn stofnun Samtaka
íslenzkra lækna gegn kjarnorkuvá.
VIII. Aðalfundur L.í. haldinn í Reykjavík 19.-
20. sept. 1983 felur stjórn L.í. að sjá til þess, að
ávallt séu fyrir hendi upplýsingar um sundur-
liðaðan kostnað við heilbrigðisþjónustu á ís-
landi ásamt samanburði við kostnað ná-
grannaþjóðanna. Upplýsingar þessar verði
kynntar læknum og almenningi reglulega og
þegar tilefni gefst.
IX. Aðalfundur L.í. haldinn í Reykjavík 19.-20.
sept. 1983 felur stjórn L.í. að beita sér fyrir
könnun og umræðum um kosti og galla
mismunandi kerfa 1 rekstri sjúkrahúsa á sama
hátt og verið er að kanna mismunandi rekstr-
arform heilsugæzlustöðva. Könnun þessari
verði lokið fyrir 1. maí 1984.
X. Aðalfundur L.í. haldinn í Domus Medica
dagana 19.-20. sept. 1983 ályktar, að fjölgun