Læknablaðið - 15.11.1984, Qupperneq 59
LÆKNABLADID
315
3. Nefndin hefur veitt ýmsum sérgreinafé-
lögum styrk til pess að bjóða fyrirlesurum
til landsins. Sem fyrr hefur nefndin greitt
fargjöld fyrir fyrirlesara til fræðslustarfsemi
úti á landi, en aðeins hluti svæðafélaga
hefur nýtt sér pessa styrki.
4. Starfsemi hefur verið með daufara móti og
kvöldverðarfundir legið niðri sl. ár. Nú er í
undirbúningi haustnámskeið, sem haldið
verður í lok september.
5. Tekjustofnar hafa verið peir sömu, en
aðalstekjustofninn er styrkur frá Námssjóði
lækna, sem má nema allt að 10% af
höfuðstóli ársins á undan. Einnig var lyfja-
fyrirtækjum seld sýningaraðstaða á haust-
námskeiði.
Bankaviðskiptanefnd
Nefndin hefur ásamt framkvæmdastjóra m.a.
átt viðræður við forráðamenn Búnaðarbanka
og Iðnaðarbanka. Áformaðar voru auk pess
viðræður við forráðamenn eins eða tveggja
annarra banka, en af pví gat ekki orðið að svo
komnu af ýmsum ástæðum.
Ljóst er, að bankar hafa verulegan áhuga á
viðskiptum við lækna, bæði einstaka lækna og
starfshópa lækna (t.d. um rekstur stofu), við
L.í. og sjóði tengda læknafélögunum. Hins
vegar er ekki líklegt eins og sakir standa, að
einn banki öðrum fremur bjóði læknum sér-
kjör eða betri kosti en almennt gerist á
bankamarkaðnum. Þó er jafnlíklegt, að banki
muni bjóða læknum liprustu pjónustu og
rýmstu útlánskjör, ef stór hópur lækna hæfi
par viðskipti. Að líkindum mundi slíkt fyrir-
komulag að mati bankans tengjast pví, að sjóð-
ir á vegum Iæknafélaganna séu par í viðskipt-
um. Yrði slíkt samkomulag gert í skjóli sjóð-
anna, pyrfti að sjálfsögðu að koma til sam-
pykki stjórna peirra.
Ekki eru að svo stöddu horfur á, að læknafé-
lögin eða sjóðir peirra geri skriflegan, fastan
samning við einstakan banka, enda eru bankar
ekki fúsir til pess. Heldur yrði um að ræða
samkomulag, sem bundið væri fastmælum
með orðum og viðskiptahefð.
Bankar bjóða að hafa »kontaktmann« á
sínum vegum og telja pað fremur kost en
ókost, ef útlán til lækna færu að einhverju eða
öllu leyti í gegnum skrifstofu læknafélaganna.
Nefndin mun halda áfram störfum og vill
benda á, að á síðustu misserum hafa átt sér
stað breytingar á vaxtakjörum, sem vissulega
hafa pýðingu í umræðu um bankaviðskipti
lækna almennt.
Siðanefnd
Þann 21. nóv. sl. kvað Siðanefnd L.Í. upp
úrskurð í 3 kærumálum, sem henni höfðu
borizt, en á 2 peirra er minnst í síðustu
ársskýrslu.
Frá adalfundi L.Í.