Læknablaðið - 15.11.1984, Síða 60
316
LÆKNABLAÐIÐ
A. Kæra frá læknum Hjartaverndar, dags. 18.
apríl 1983, vegna fréttatilkynningar tveggja
stjórnarmanna í Félagi íslenzkra heimilis-
lækna um þing félagsins um faraldsfræðirann-
sóknir og kerfisbundnar hópskoðanir, laugar-
daginn 26. marz 1983 að Hótel Loftleiðum,
sem send var fjölmiðlum fyrir pingið. Kæru-
atriði voru fimm:
1. Fréttatilkynning, undirrituð af Jóhanni Agústi
Sigurðssyni og Gunnari Heiga Guðmundssyni og
pá sérstaklega pessi ummæli: »Tími er kominn til
að nýta sér pá þekkingu sem fengist hefur úr
þessum skoðunum og gera þær hópskoðanir sem
gerðar eru á ungbörnum, í skólum og á fullorðn-
um, markvissari og ódýrari. Ástæðulaust er að
senda fólk í umfangsmiklar rannsóknir t.d. hjarta-
rafrit, öndunarpróf, röntgenmynd af hjarta og
lungum, sykurþolspróf eða blóðrannsóknir. Engu
að síður eru um 1.500 manns sendir með tilvísanir
til Hjartaverndar í slíkar rannsóknir; rannsóknir,
sem koma ekki að neinum vísindalegum notum
og eru ekki til neins gagns fyrir einstaklinginn
sjálfan. Hér er því eytt miklum fjármunum,
lauslega áætlað 4-5 milljónum króna á ári, án
gildra læknisfræðilegra raka.«
2. Frétt lesin í fréttatíma hljóðvarps 25. marz 1983,
en hún hefst á þessum orðum: »Heimilislæknar
senda árlega fimmtán hundruð manns 1 umfangs-
miklar rannsóknir til Hjartaverndar, sem koma
ekki að neinum vísindalegum notum og eru ekki
til neins gagns fyrir einstaklingana sjálfa. Laus-
lega áætlað kosta þessar rannsóknir fjórar til
fimm milljónir króna á ári. Þetta kemur meðal
annars fram í frétt frá Félagi íslenzkra heimilis-
Iækna.«
3. Frétt og viðtal við dr. Jóhann Ágúst Sigurðsson í
sjónvarpi 26. marz 1983.
4. Grein 1 dagblaðinu Pjódviljanum 26. marz 1983,
þar sem tekið er orðrétt úr fyrrgreindri fréttatil-
kynningu kærðu, síðari ummæli í lið 1 hér að
framan.
5. Viðtal við Jóhann Ágúst Sigurðsson í dagblaðinu
Tímanum 6. apríl 1983. í viðtali þessu eru
eftirfarandi ummæli:
»Ég vil þó taka skýrt fram, að við erum ekki að
deila á Hjartavernd sem vísindastofnun, hins
vegar deilum við á að Hjartavernd taki að sér að
verða einhvers konar heilsuverndarstöð eða lækn-
ingamiðstöð. t stuttu máli erum við að reyna að
koma því á framfæri, að það sem maður getur
komist að hjá einkennalausum manni er hægt að
gera á svo einfaldan hátt að allt þetta umstang er
nánast ónauðsynlegt.«
Úrskurðarorð nefndarinnar:
Siðanefnd L.í. telur að dr. Jóhann Ágúst Sigurðs-
son, héraðslæknir, og Gunnar Helgi Guðmunds-
son, læknir, hafi með fréttatilkynningu til fjöl-
miðla og ummælum um starfsemi Hjartaverndar
þar, sem urðu tilefni fréttar í útvarpi 25. mars
1983 og sjónvarpi og dagblaðinu Pjódviljanum
26. mars, svo og ummælum dr. Jóhanns Ágústar í
dagblaðinu Tímanum 6. apríl, gerst brotlegir við
10. gr. I. kafla og 1. gr. III. kafla Codex ethicus, og
áminnir þá um að halda ákvæði þessi og önnur
ákvæði Codex ethicus.
B. Kæra frá stjórn F.Í.H. vegna blaðagreinar
eftir Sigurð Samúelsson, prófessor og for-
mann Hjartaverndar, sem birtist í Morgun-
blaðinu 23. apríl 1983. Eftirfarandi ummæli
eru kærð:
1. »Undir niðri er þó allt annað uppi á teningnum.
Hér er fyrst og fremst um peningasjónarmið að
ræða og »hin nýja læknastétt« mundi gleypa við
öllum þeim hópskoðunum sem þeir gætu fengið.«
2. »Fyrirgangur sérfræðinga í heimilislækningum er
mikill og vilja þeir auðsjáanlega fá yfirráð yfir
allri heilsugæslu. M.a. krefjast þeir að fá að
annast barnaverndarstarf hér í Reykjavík, sem
verið hefur I höndum sérfræðinga um áratuga-
skeið með þeim ágætum, sem allir þekkja. Pað er
eðlilegt að fólk verði hissa og spyrji hvernig
sérnámi þessara heimilislækna sé farið. Víst er að
ekki hafa þeir langt nám í hinum ýmsu sérgrein-
um læknisfræðinnar samkvæmt þeirri reglu-
gerð, er þeir fá viðurkenningu eftir. Sumir myndu
segja að hér væri verið að snúa þróun læknis-
þjónustu til hins verra.«
3. »Slíkar »halleluja« samkomur sannfæra ekki
lækna um að hér sé samviskulega að málum
staðið, enda stóð ekki á siðlausri framkomu
tveggja nýliða í heimilislækningum, sem auglýstu
í fjölmiðlum daginn fyrir málþingið og án þess að
stjórn Félags íslenskra heimilislækna væri höfð
með 1 ráðum, hve mikið væri gert af óþarfa
rannsóknum við hópskoðanir hér á landi og
höfðu þar með í frammi ósæmilegar aðdróttanir
um störf margra sérfræðinga og sérgreina þeirra
innan læknisfræðinnar.«
Úrskurðarorð nefndarinnar:
Siðanefnd L.Í. telur að Sigurður Samúelsson,
prófessor, hafi með ummælum sínum í grein 1
Morgunbladinu hinn 23. apríl 1983, sem greind er
hér að ofan 1 liðum 1. og 2., gerst brotlegur við 1.
gr. III. kafla Codex ethicus, og áminnir siðanefnd
hann um að halda ákvæði þessi og önnur ákvæði
Codex ethicus.
C. Kæra frá Sigurði Samúelssyni, prófessor
og formanni Hjartaverndar, dags. 4. ágúst
1983, vegna fréttar frá þáverandi stjórn Félags
íslenzkra heimilislækna, sem birtist í Morgun-
bladinu hinn 17. apríl 1983 undir fyrirsögninni:
»Hópskoðanir of dýrar og brýnt að gera þær
markvissari en nú er.«