Læknablaðið - 15.11.1984, Qupperneq 65
LÆKNABLAÐID
317
í lokakafla greinarinnar segir:
»Stjórn Félags íslenskra heimilislækna tekur
undir þá gagnrýni, sem fram kom á ráðstefnunni
á tilvísanir fólks með lítil eða engin sjúkdómsein-
kenni til rannsóknarstofu Hjartaverndar.«
Úrskurðarorð nefndarinnar:
Vegna ummæla stjórnar Félags íslenskra heimil-
islækna í grein hennar í Morgunblaðinu hinn 17.
apríl 1983, þar sem tekið er undir þá gagnrýni,
sem fram kom á ráðstefnu 26. marz 1983 á
tilvísanir fólks með lítil eða engin sjúkdómsein-
kenni til rannsóknarstofu Hjartaverndar, sem
siðanefnd telur hafa, eins og á stóð, verið til þess
fallin að kasta rýrð á störf stéttarbræðra, vekur
siðanefnd L.í. athygli á ákvæðum 1. gr. III. kafla
Codex ethicus og áminnir læknana Eyjólf Þ.
Haraldsson, Guðfinn P. Sigurfinnsson, Þengil
Oddsson, Jóhann Ágúst Siguðsson, Lúðvíg Guð-
mundsson, Katrínu Fjeldsted, Ingþór Friðriksson,
Leif Dungal og Gunnar Helga Guðmundsson um
að halda þau og önnur ákvæði Codex ethicus.
Þann 30. janúar sl. vísaði Siðanefnd frá sér
erindi, sem hún taldi ekki innan starfssviðs
nefndarinnar.
Samkvæmt ábendingu 2ja lækna vísaði
stjórn L.í. til Siðanefndar til athugunar og
afgreiðslu auglýsingu frá Lækningarannsókna-
stofunni, Hverfisgötu 105, sem birtist í Frétta-
bréfi lækna 2/1984. Niðurstaða nefndarinnar
þann 24. apríl sl. var þessi:
»Þegar til þess er litið hvernig auglýsing Lækn-
ingarannsóknastofunnar, Hverfisgötu 105, sem
birtist í Læknablaðinu, er orðuð og hvar hún er
birt, þá telur siðanefnd L.Í. auglýsinguna ekki
vera brot á 12. gr. Codex ethicus, enda heimilar
sú grein Iæknum að auglýsa starfsemi sína með
vissum hætti, sbr. 12. gr. læknalaga nr. 80/1969.
Hér má einnig benda á ákvæði 4. gr. 1. nr. nr.
30/1963, sem leggur algjört bann við auglýsingum
til almennings á lyfjum, en heimilar auglýsingar
til lækna og lyfjafræðinga.«
Útgáfustarfsemi
Læknablaðid kemur út reglulega 10 sinnum á
ári, og er eins og undanfarin ár unnið og
prentað í Danmörku. Á sl. ári var leitað eftir
tilboðum frá íslenzkum prentsmiðjum um að
prenta blaðið, en pað reyndist mjög óhagstætt.
Ákveðið hefur verið að leita eftir tilboðum í
prentun blaðsins frá næstu áramótum hjá fleiri
íslenzkum prentsmiðjum.
Fréttabréf lækna, sem byrjað var að gefa út
í upphafi árs 1983, hefur komið út reglulega
einu sinni í mánuði skv. upphaflegri áætlun.
Útgáfan hefur gengið vel og Fréttabréfið
hlotið góðar undirtektir.
Handbók lækna 1984, 3. árg. er með seinna
móti, er gert er ráð fyrir, að hún berist læknum
í ágústmánuði.
Læknatal. Fyrri hluta vetrar var lokið við að
prenta og binda hluta af Læknatali því, sem
lengi hefur verið í undirbúningi, en þá kom í
ljós, að nokkrar slæmar villur voru í bókinni
og því nauðsynlegt að endurprenta nokkrar
arkir. Bókin er nú í endurvinnslu og talið
líklegt, að hún komi í endanlegu formi á
markaðinn í ágúst eða september.
Ritskrá lækna hefur einnig verið alllengi í
undirbúningi. Fyrir rúmu ári var ákveðið að
tölvusetja skrána, en það mun mjög einfalda
viðbætur og endurútgáfu. Ekki tókst að finna
heppilegt tölvukerfi fyrir skrána fyrr en á sl.
vertri, er náðist samstarf við Norrænu eldfjalla-
stöðina um að nota þeirra tölvu og skrán-
ingarkerfi.
Lífeyrissjóður lækna
Á árinu 1983 voru veitt 156 lán úr sjóðnum að
fjárhæð samtals kr. 20.666.000.00. Vísitölu-
tryggð verðbréf voru keypt af Framkvæmda-
Adalfundafulltrúum gafst kostur á siglingu um ísa-
fjardardjúp med vidkomu í Vigur og hér skoda menn
vindmylluna gömlu.