Læknablaðið - 15.08.1985, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ
203
%
Fig. 1. Estimatedincidenceof hew open-angleglaucoma
patients in Iceland. Cf. Table V ad Census 1975. Both
sexes by age-groups per 1000 pop.
augnþrýsting í hærra lagi þ.e. hærri en 21 mm
Hg og þá sérstaklega ef gláku hefur orðið vart
í ætt sjúklings.
Sé gengið út frá þeim forsendum að
göngudeildarsjúklingarnir séu um þriðjungur
allra þekktra glákusjúklinga á landinu og með
sömu aldurs- og kyndreifingu (sbr. 1. grein
greinaflokksins) er unnt að áætla tölu og
nýgengi (incidence) hægfara gláku á íslandi
þ.e. þeirra sjúklinga sem hefja meðferð
árlega. Áætlaðar tölur nýrra glákusjúklinga
hér á landi samkvæmt ofanskráðu eru birtar í
V. töflu. Er sjúklingum gróft skipt í flokka
eftir sjúkdómsstigi við greiningu. Áætluð
heildartala nýrra glákusjúklinga er um 140-
150 á ári. Nærri jöfn tala karla og kvenna.
Rúmlega 21% af nýgreindum sjúklingum
1970-79 voru komnir með meiriháttar sjón-
sviðsskerðingu er glákan uppgötvaðist.
Áætlaðar nýgengistölur eru miðaðar við
mannfjöldaárið 1975, þ.e. á miðju rannsókn-
artímabilinu. Heildarnýgengi 40 ára og eldri
er um 2 af þúsundi íbúa, 50 ára og eldri 2.9 af
þúsundi (karlar 3.1, konur 2.8), 60áraog eldri
3.9(karlar 4.1, konur 3.7), 70 ára og eldri 4.7
(karlar 5.0, konur 4.5).
Á 1. mynd er sýnt áætlað nýgengi beggja
kynja í aldursflokkum frá fertugu. Nýgengi
eykst línulega úr 0.1 af þúsundi 40-49 ára upp
í 5.1 af þúsundi í aldursflokknum 70-79 ára.
Eftir áttrætt fellur nýgengið aftur. Sennilega
vegna þess að aldursins vegna á fólk ekki eins
hægt með að leita augnlæknis.
%
Fig. 2. Estimates incidence in new open-angleglaucoma
patients in Iceland. Cf. Table V by age and sex. Rates per
1000 population in each age group.
Rates per 1000 population
Incidence
Prevalance
Fig. 3. Comparison ofprevalenceandincidenceof open
angle glaucoma in Iceland.
Á 2. mynd er áætlað nýgengi sýnt hjá hvoru
kyni fyrir sig og er það í öllum aldursflokkum
nokkuð meira meðal karla en kvenna. Eykst
nýgengið línulega frá fertugsaldri til áttræðis-
aldurs hjá báðum kynjum en meira hjá
körlum, þannig að bilið breikkar með aukn-
um aldri.
Þriðja mynd sýnir samanburð á algengi og
nýgengi gláku.