Læknablaðið - 15.08.1985, Blaðsíða 44
214
LÆKNABLAÐIÐ
að sérnám geti hafist hérlendis séu allar
forsendur fyrir hendi, þ.e. námsstöður og
kennslukraftar. Kostnaður við að hefja
sérnám verður því í lágmarki, en óhjákvæmi-
lega einhver, m.a. vegna ráðningar starfs-
manns i hlutstarf.
TILLÖGUR
Almcnnar tillögur
A. Nefndin gerir að tillögu sinni að stefnt
skuli að upphafi á sérnámi hérlendis, en því
siðan lokið ytra og verði tími hérlendis 1-2 ár.
Þó kæmi til greina að í heimilislækningum
yrði sérnámi að fullu lokið hér heima.
Nefndin gerir að tillögu sinni að til sérnáms-
kennslunnar verði notaðar stöður reyndra
aðstoðarlækna á Landspítalanum, Landa-
koti og Borgarspítalanum, svonefndar
»súperkandidatsstöður«. Kennsla verði í
höndum kennara við læknadeild og sér-
fræðinga viðkomandi stofnana.
í heimilislækningum þyrfti að auglýsa
stöður á heilsugæslustöðvum í Reykjavík og
úti á landi sem námstöður í heimilislækn-
ingum.
Nefndin vekur athygli á að með fyrir-
hugaðri kerfisbreytingu á heimilislækningum
í Reykjavík skapast ákveðnir möguleikar á
þessu sviði.
Nefndin leggur ríka áherslu á að samningar
náist við erlendar heilbrigðisstofnanir um
framhald á sérnámi.
Nefndin leggur áherslu á að tryggt verði að
gæði sérnáms hérlendis verði sambærileg við
það sem gerist í nágrannalöndum okkar.
B. Tillaga um sérnám. Nefndin gerir að tillögu
sinni, að fyrst um sinn verði stofnað til
sérnáms i eftirtöldum greinum:
1. Heimilislækningum.
2. Lyflæknisfræði.
3. Skurðlæknisfræði.
4. Geðlæknisfræði.
C. Skipulagning, stjórnun og eftirlit neð
sérnámi.
1. Nefndin leggur til að heilbrigðismálaráðu-
neytið skipi þriggja manna nefnd,
SÉRNÁMSNEFND LÆKNA. Formaður
verði skipaður af heilbrigðismálaráðherra í
samráði við menntamálaráðherra, einn til-
nefndur af læknadeild Háskóla íslands og
einn af Læknafélagi íslands.
Hlutverk sérnámsnefndar skal vera sam-
hæfing og eftirlit með sérnámi hérlendis. Hún
setur sér starfsreglur, sem ráðherra staðfestir
að fenginni umsögn læknadeildar.
Samkvæmt reglugerð nr. 39 frá 1970 um
veitingu lækningaleyfa og sérfræðlileyfa má
sérnám einungis fara fram á stofnunum sem
ráðherra hefur viðurkennt til sérnáms að
tillögu læknadeildar.
Sérnámsnefnd veitir deildum og heilsu-
gæslustöðvum í hverju tilviki leyfi til að aug-
lýsa stöður sem sérnámsstöður.
Þær stöður einar sem auglýstar eru með
leyfi sérnámsnefndar verði viðurkenndar til
sérnáms hérlendis.
Um veitingu sérfræðileyfa fer samkvæmt
reglugerð þar að lútandi.
Sérnámsnefnd skal einnig hafa forgöngu
um samninga við sjúkrahús og stofnanir
erlendis um framhaldsnám íslenskra lækna í
samráði við yfirlækna, Læknafélag íslands
og heilbrigðisyfirvöld.
Sérnámsnefnd kanni jafnframt möguleika
á sérnámi í öðrum sérgreinum eftir því sem
tilefni gefst.
Nefndinni er kunnugt um að sérnám fer
þegar fram að hluta til hér á landi í
kvensjúkdómum, augnlækningum og meina-
fræði. Er eðlilegast að skipulag þessa sérnáms
verði í höndum sérnámsnefndar.
2. Ráðinn verði kennslustjóri sérnáms í
hlutastarf (1/3). Hann skal vera starfsmaður
sérnámsnefndar.
3. Stofnaður verði starfshópur í hverri sér-
grein sem framhaldsnám verður tekið upp
í (sérgreinarhópur). í hópnum eigi sæti yfir-
Iæknar í viðkomandi grein, fulltrúar kenn-
ara í greininni í læknadeild Háskóla íslands,
auk fulltrúa lækna í námstöðum. Forstöðu-
maður kennslugreinar við læknadeild hefur
frumkvæði að stofnun hópsins.
4. Nefndin telur að engar breytingar þurfi að
koma til á gildandi laga- eða reglu-
gerðarákvæðum um sérfræðingsviðurkenn-
ingu til að skipulegt sérnám geti hafist
hérlendis. Þó væri æskilegt að við endur-
skoðun reglugerðar nr. 39/1970 verði ákvæði
um sérnámsnefndina felld inn í hana.