Læknablaðið - 15.08.1985, Side 50
218
LÆKNABLAÐIÐ
b. Landspítali-Námsstaða í eitt ár, lyflækn-
ingadeild.
Deildir: Þriggja mánaða vera á mismunandi
lyflækningadeildum, lungnadeild, hjarta-
deild, gigtsjúkdómadeild, meltingarsjúk-
dómadeild.
Fræðslustarfsemi: Klínískir fundir: þriðju-
daga
Fræðslufundir: fimmtudaga
Fyrirlestrar: föstudaga
Kennsla: Þátttaka í kennslu læknastúdenta og
annars starfsfólks.
Starfssvið: Daglegur rekstur deilda, undir
handleiðslu sérfræðinga. Viðvera á
bráðavöktum.
Rannsóknarskylda: Skila einu rannsóknar-
verkefni á árinu.
Göngudeildir: Fylgja sjálfstætt eftir eigin
sjúklingum (20-30).
Að loknu einu ári á ofangreindum
sjúkrahúsum gæti komið til framlenging á
stöðunni annað ár e.t.v. á öðrum spítala ef
samkomulag næst milli sjúkrahúsa þar að
lútandi. Mundi slíkt samkomulag vera gert að
tilstuðlan sérgreinahóps og samþykkt af
sérnámsnefnd.
Þessar stöður mætti einnig nýta fyrir aðrar
sérgreinar svo sem heimilislækningar og
geðlækningar.
HEIMILISLÆKNINGAR
Það nám, sem þyrfti að koma upp í heimilis-
lækningum hér heima væri námsstaða í eitt ár
á heilsugæslustöð. Þyrfti heilsugæslustöðum
að uppfylla ákveðin skilyrði s.s.
a) Þrír til fjórir fastráðnir læknar, b) Tutor-
kennsla, c) Vaktskylda, d) Skipulögð
fræðslustarfsemi og vikulegir fundir, e)
Rannsóknarverkefni, f) Lágmarksstarfsemi i
mismunandi þáttum heilsugæslu, s.s. ung-
barnaeftirliti, mæðravernd og skólaheilsu-
gæslu.
í öðrum greinum sem nauðsynlegar eru til
sérnáms í heimilislækningum þyrfti að fá
námsstöður á sjúkrahúsunum annaðhvort
með því að nýta fyrirliggjandi námsstöður s.s.
í lyflækningum eða með að skipuleggja
stöður á sjúkrahúsunum fyrir námslækna í
heimilislækningum sérstaklega.
Skipan sérgreinahóps innan heimilislækninga
ætti hafa forgöngu.
Sérnám i heimilislœkningum.
1. Námsstaða í eitt ár á heilsugæslustöð t.d.
heilsugæslustöð í Kópavogi, Egilsstöðum,
Húsavík, Asparfelli.
Vinna við heilsugæslu undir umsjá reynds
læknis (tutors) sem fer yfir afgreiðslu tilfella
og kennsla í viðtalstækni.
Þátttaka í ungbarnaeftirliti, mæðravernd og
skólalækningum.
Þátttaka i vakta- og vitjanaþónustu.
Þátttaka í fræðslustarfsemi á heilsugæslustöð
t.d. fræðslufundum.
Fylgst með vinnu annarra sérfræðinga á stofu
t.d. vikulega i ýmsum greinum s.s. húð-
lækningum, gigtarlækningum, háls-nef og
eyrnalækningum o. s.fr.
Lokið einu rannsóknarverkefni á árinu á sviði
heimilislækninga.
Auk þessa er möguleiki að taka hluta sérnáms
í heimilislækningum á eftirtöldum deildum:
Námsstaða í eitt ár á lyflæknisdeild sbr. að
ofan t.d. á lyflæknisdeild Landspítalans eða
Borgarspítalans.
Námsstaða á geðdeild í 6 mánuði t.d.á
Borgarspítalanum.
Námstaða fyrir lækna í heimilislæknanámi á
kvensjúkdómadeild í 6 mánuði.
Námsstaða á barnadeild í eitt ár t.d. á
Landakoti.
Námsstaða fyrir lækna í heimilislæknanámi á
skurðdeild í 6 mánuði, t.d. á Landspítal-
anum.
Reykjavík 17. nóvember 1984