Læknablaðið - 15.09.1985, Qupperneq 5
LÆKNABLAÐIÐ 1985;71:221-5
221
Haraldur Halldórsson, Guðmundur Þorgeirsson
ÍNOSITÓLLÍPÍÐ - NÝTT BOÐKERFI í FRUMUM
Flest hormón, taugaboðefni, lyf og ýmis
efni, sem áhrif hafa á hegðun frumna, koma
boðskap sínum á framfæri við frumurnar
með því að bindast sérhæfðum viðtökum. Þau
boðefni, sem ekki komast gegnum frumu-
himnuna, bindast viðtökum áyfirborði henn-
ar. Binding boðefnis við viðtaka Ieiðir til
myndunar boðefnis innan frumunnar (second
messenger), sem siðan veldur breytingum í
hvatavirkni, jónaflæði, seyti (secretion),
samdrætti, frumuskiptingu o.s.frv. Best
þekkt þessara boðkerfa er það, sem leiðir til
myndunar hringtengds AMP (cAMP) til
boðflutnings. Á síðustu árum hefur athygli
mjög beinst að öðru kerfi, sem myndar
boðefni úr ínósitóllípíðum í frumuhimnunni
(1-3). þar sem þetta kerfi virðist gegna mjög
víðtæku hlutverki, hefur verið lýst í fjöl-
mörgum vefjategtundum, tengist fjölbreyt-
tum viðtökum í frumuhimnum og hrindir af
stað ýmsum þeim atburðum, sem flokkast
undir lykilatburði í frumulíffræði, skal því nú
lýst nokkuð nánar.
Eins og flest fosfólípíð eru ínósitóllípíðin
byggð upp af glýseróli, sem er estertengt við
tvær fitusýrur, og fosfórað alkohól (Mynd 1).
Alkohólið myo-ínósitól er einkennandi fyrir
ínósitóllípíðin, en þau greinast hvert frá öðru
eftir fjölda fosfathópa, sem tengjast ínósitóli-
nu. í mestu magni er fosfatidylínósitól,
(Ptdlns), sem hefur fosfathóp tengdan í stöðu
1. Fosfatidyl-ínósitól-monofosfat (PtdIns4P)
hefur auk þess fosfat í stöðu 4 og fosfatidyl-
ínósitól-difosfat (PtdIns4,5P2) hefur enn an-
nan fosfathóp í stöðu 5. Tvö síðast töldu
lípíðin eru innan við 1% af heildar fós-
fólípíðum flestra frumna. Sérhæfðir kinasar
bæta fosfathópum á ínósitóllípíðin, en fosfo-
monoesterasar taka þá af, þannig að hlut-
fallsleg virkni þessara hvata ákvarðar magn
hvers lípíðs í frumuhimnunni.
Lyflækningadeild Landspitalans, Rannsóknarstofa í frumu-
liffræði. Barst ritstjórn 02/05/1985. Samþykkt og send í
prentsmiðju 21/05/1985.
Tenging boðefnis við viðtaka á yfirborði
frumunnar virkjar fosfodiesterasa (einnig
kallaður fosfólípasi C), sem þá brýtur fosfati-
dyl-ínósitól-difosfat niður í tvö skammlíf
boðefni; diacylglýseról og ínósitól-þrífosfat,
(IP3), sem er vatnsleysanlegt. Þetta efnahvarf
gegnir lykilhlutverki í öllu boðkerfinu. Styrk-
fosfatidylinositol
(Ptd Ins)
l' E
Mynd 1. Áhrifboðefnaáínósitólefnaskipti.Efstersýnd
bygging fosfatidyl-ínósitóls (Ptdlns). Fosfatidyl-ínósi-
tól-dífosfat (PtdIns4,5PJ er myndað úr fosfatidyl-
ínósitóti með fosfórun á 4. og 5. sæti ínósitóls. Tenging
boðefnis við viðtaka virkjar fosfólipasa C, sem brýtur
fosfatidylínósitól-difosfat niður I innanfrumuboðefnin
diacylglýseról og ínósitólþrífosfat (IPJ, sem bæði eru
skammlíf og taka þátt í endurmyndun fosfatidyl-inósi-
tóls. Einnig ersýnt hvernig ínósitól-fosfat (IP) verður til
úr glúkósu. Li* hindrar bæði nýmyndun ínósitóls og
myndun þess úr ínósitól-fosfötum.