Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.1985, Blaðsíða 15

Læknablaðið - 15.09.1985, Blaðsíða 15
LÆKNABLAÐIÐ 227 í rannsókninni er síðan fjöldi dáinna úr rannsóknarhópnum (observed number, fundinn fjöldi dáinna) borinn saman við þann fjölda, sem búast má við að deyi hjá sam- svarandi úrtaki, hvað varðar aldur og alma- naksár, meðal íslenskra karla. Það er gerður hlutfallssamanburður milli fundins og vænt- anlegs fjölda dáinna, reiknað svokallað staðlað dánarhlutfall (Standardized Mortali- ty Ratio, SMR). Hér að ofan hefur verið fjallað um dánartölur en sömu meginaðferðum hefur verið beitt varðandi nýgengi krabbameina í rannsóknarhópnum. Með tölvuvinnslu hafa einstaklingarnir í rannsóknarhópnum verið bornir saman við Krabbameinsskrána og fundnir þeir vélstjórar og mótorvélstjórar, sem fengið hafa krabbamein frá árinu 1955 (upphafsár Krabbameinsskrárinnar) og til ársloka 1982. Úr gögnum Krabbameins- skrárinnar hefur einnig verið reiknaður vænt- anlegur fjöldi greindra krabbameina og á grunni þess staðlað nýgengihlutfall (Standar- dized Incidence Ratio, SIR). Aðferðin sem notuð er, felst í því, að samanburðarefniviður (hér allir íslenskir karl- ar), er notaður til að reikna út væntigildi, (hve búast má við mörgum sjúkdómstilfellum/- dánum), þar sem tekið er tillit til fjölda og aldurs einstaklinganna í rannsóknarhópnum á hverjum tíma. Síðan er gerður hlutfallslegur samanburður á fundnum fjölda sjúkdómstil- fella/dáinna og væntigildinu. Þegar athugað er, hvort niðurstöður varðandi dána úr lungnakrabbameini eru tölfræðilega marktækar, er einhliða p-gildi lesið beint úr xJ — töflu(ll, 13). Reiknuð eru 95% öryggismörk með tilliti til Poisson dreifingar (11, 13) og þar sem öryggismörkin innihalda ekki 1.0 er staðlað dánarhlutfall eða staðlað nýgengihlutfall marktækt á 5% stigi (tvihliða). Við ákveðna sundurgreiningu á rannsókn- arefniviðnum er notaður fortími eða huliðstími, sem þýðir, að athugunin beinist einungis að þeim, sem lokið hafa prófi vélstjóra eða mótorvélstjóra fyrir meira en tuttugu árum eða meira en þrjátíu árum síðan. NIÐURSTÖÐUR Fundinn og væntanlegur fjöldi dáinna úr krabbameinum í barka, berkjum og lungum (lungnakrabbameini) í ýmsum hópum vélstjóra og mótorvélstjóra er sýndur í töflu I. Fundinn fjöldi dáinna er meiri en búast má við og er munurinn tölfræðilega marktækur á 5 % stigi (einhliða próf) í þeim hópum, þar sem saman eru vélstjórar og mótorvélstjórar og þar sem eru allir mótorvélstjórar, án tillits til huliðstíma. í töflunni er einnig sýndur fjöldi mannára í hópunum. Tafla II sýnir staðlað dánarhlutfall með 95% öryggismörkum fyrir alla 477 vélstjór- ana og mótorvélstjórana, yfir allt rannsókn- artímabilið frá 1936 til 1982, fyrir öll dánar- mein, flokkinn slys, eitranir, sjálfsmorð og manndráp og undirflokkinn drukknanir við flutninga á legi. Dánarhlutfallið fyrir öll dánarmein er undir einum heilum, þar sem færri hafa dáið en búast má við. Úr áverkum og eitrunum dóu 22, en búast mátti við 19.70 dánum. Þegar litið er á drukknanir við flutninga á legi dóu 9, en búast mátti við 4 dánum og verður því dánarhlutfallið 2.25 sem er tölfræðilega marktækt á 5% stigi samanber 95% öryggismörkin. Table 1. Observed and expected number of deathsfrom malignant neoplasms of trachea, bronchus and lung, standardized mortality ratio (SMR) and number ofperson-years for all subjects andfor marine engineers and machinists separately, 1951-1982 and with 20 and 30 years latency periods. Groups Number of person-years Obderved deaths number Expected deaths number SMR All marine engineers and machinists (1951-1982) 13.437.5 7* 3.41 2.05 Marine engineers and machinists (20 years latency period) 6.021.5 6* 3.07 1.95 Marine engineers and machinists (30 years latency period) 1.820.5 4* 1.57 2.55 All marine engineers (1951-1982) 8.239.5 3 1.71 1.75 Marine engineers (20 years latency period) 3.467.5 3 1.52 1.97 Marine engineers (30 years latency period) 911.0 2 0.69 2.90 All machinists (1951-1982) 5.198.0 4» 1.71 2.34 Machinists (20 years latency period) 2.554.0 3 1.55 1.94 Machinists (30 years latency period) 909.5 2 0.89 2.25 p<0.05, one-tailed.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.