Læknablaðið - 15.09.1985, Page 50
Orðabókarsjóður
læknafélaganna
Fyrir skemmstu var stofnaður Orðabókarsjóður Læknafélag-
anna.
Hlutverk sjóðsins er, að standa undir kostnaði viö gerö íðorða-
safns lækna og í framhaldi af því, frágangi læknisfræðilegrar orða-
bókar. Stofnfé sjóðsins er þaö fé, sem læknafélögin hafa lagt fram
siðastliöin átta ár, til þess að greiða undirbúning verksins, og fram-
lög annarra aðila, sem berast sjóðnum fyrir 15. okt. 1985.
Læknum er gefinn kostur á þvi, aö gerast stofnfélagar sjóðsins
meö því að greiða 1500 krónur — eittþúsund og fimmhundruö
krónur — inn á reikning sjóðsins i Búnaðarbanka Islands. Framlag
þetta er jafnframt fullt áskriftargjald fyrir íðorðasafn lækna, sem
koma mun út í 15 til 20 heftum á næstu fjórum til fimm árum.
Þeir læknar, sem vilja fá Íðorðasafniö frá byrjun, eru beðnir að
greiða áðurgreint gjald i reikning sjóðsins númer 26-8925 i Bún-
aðarbanka íslands i Austurstræti 5. Ef greitt er í öðrum bönkum eða
í sparisjóðum eru auðkenni reikningsins: 301-26-8925.
Aðgætið að setja rétt heimilisfang í innlagnarseðil.
Oröanefnd læknafélaganna