Læknablaðið - 15.01.1986, Side 16
10
LÆKNABLAÐIÐ
Að meðaltali var fjöldi fyrri fæðinga, 3,2
börn (1-9 börn áður fædd).
Legbrestir í fyrsta flokki voru átta alls
(38,1%). Sex konur höfðu áður fætt með
»klassískum« keisaraskurði (langskurður í
leg), og hjá þremur þeirra brast legið án
undangenginna verkja eða sóttar á 35.-36.
viku. Þverskurður í neðri hluta legs (Sectio
Caesarea inferior transversa) hafði áður verið
gerður hjá tveimur konum. Sjá töflu I.
Legbrestir af öðrum flokki urðu 10 samtals
(47,6%). Ástæður eru sýndar í töflu II.
Áberandi var tíðni vanskapaðra fóstra í
þessum flokki. Eitt fóstur var heilaleysingi
(anencephalus), og annað var með vatnshaus.
í sjö af tíu tilfellum (70%) var meðverkandi
orsakaþáttur notkun hríðarörvandi lyfja
(oxytocin). í þrem fæðinganna var lyfið notað
til að örva sótt, og í fjórum tilfellum var
fæðing sett af stað með sama lyfi.
Til þriðja flokks (ruptura spontanea) teljast
þrjú tilfelli (14,3%), sjá töflu III. í öllum
þremur tilfellum var um að ræða fæðingar-
hindrun, sem ekki var greind og meðhöndluð
tímanlega.
Fjórtán börn létust (66,7%). Andvana
fædd voru tólf og tvö létust á fyrsta sólar-
hring. Sjö börn (33,3%) lifðu af legbresti án
varanlegra eftirkasta.
Meðalþyngd andvana barna var 3.463 g
(2.400-4.980) en þeirra er lifðu 3.215 g (1.984-
4.150). Mæðradauði var 9,5% (2/21).
Við greiningu legbrests voru 12 (52,1%)
kvennanna í losti. Hjá átta konum var lost
yfirvofandi við greiningu (38%). Aðeins ein
kona hafði ekki lostseinkenni eða einkenni
um mikla blæðingu innvortis við greiningu.
Fjórar konur höfðu verki í kvið áður en
hríðir hófust, átta konur (38%) fengu sára
kviðverki eftir að reglulegar hríðir höfðu
byrjað. Þrír legbrestir urðu án hríða eða
undangenginna verkja. Eitt tilfelli greindist
þegar sótt féll niður og i fjórum tilfellum
greindist legbrestur við sókn fylgju og einn
eftir fæðingu vegna slökunar í legvöðva
(atonia).
Meðferð fólst í brottnámi legs í 12 tilfellum
(57,1%) og í átta tilfellum (38%) reyndist
unnt að sauma rifuna í leginu og halda því.
Af þeim tveim konum, sem létust, var leg
numið brott (hysterectomia) hjá annarri
þeirra en hún lést þremur klst. síðar vegna
losts. Hinni konunni var ekki treyst í aðgerð
vegna lostsástands. Reynt var að stöðva blæð-
Tafla I. Legbrestir íkjölfar keisaraskurðar (Flokkur 1).
Ár Aldur Fyrri fæðingar Fyrri keisaraskuröir Tegund örs ±Hríðir
1952 30 iii Sectio antea classica; +
1954 24 i Sectio antea classica; -
1972 33 VII Sectio antea classica; -
1975 34 iii Sectio antea classica; -
1980 38 i Sectio inferior transversa; +
1980 27 i Sectio inferior transversa; +
1980 22 i Sectio antea classica; +
1982 27 IV Sectio antea classica; +
Tafla II. Legbrestir 1950-1982 (Flokkur 2).
Fyrri
Ár Aldur fæðingar Orsakir legbrests
1950 25 IV Sótt fylgja, iatrogen legbrestur.
1953 42 V Þrýst á legbotn í fæðingu.
1962 42 ii Framdráttur, sitjandistaða, oxytocin*)
1962 35 IV Vatnshöfuð, reyndur framdráttur.
1963 42 IX Misræmi**), sogklukka, oxytocin.
1964 37 II Misræmi, oxytocin gengsetning.
1969 33 IV Heilaleysingi (anencephalus), oxytocin gangsetning.
1974 37 VII Oxytocin gangsetning.
1977 29 I Cystis ovarium m.gr., oxytocin tangarfæðing.
1982 33 I Oxytocin gangsetning, sótt fylgja.
*) oxytocin; hríðarörvandi lyf, notað til að setja fæðingu af
stað eða örva hríðir.
**) Misræmi; ósamræmi milli stærðar fósturs og grindar.
Tafla III. Sjálfkrafa legbrestur (Flokkur 3).
Ár Aldur Fyrri fæðingar Orsakir legbrests
1960 44 IV Þverlega
1967 40 ii Misræmi*), of mikið legvatn
1973 26 ii Misræmi, vatnshöfuð
*) Misræmi milli stærðar fósturs og grindar.
inguna neðan frá með saumaskap án árang-
urs. Konan lést 6 klst. síðar.
Að meðaltali var blóðgjöf 3,6 einingar
blóðs (2-7 einingar).
Af þeim átta konum, sem saumuð var hjá
legrifa eftir brest, fæddu tvær tveimur og
fjórum árum síðar eðlilegt barn með keisara-
skurði án fylgikvilla.
UMRÆÐA
Tíðni fullkomins legbrests á íslandi var einn
legbrestur á hverjar 7040 fæðingar á 33 ára
tímabili. Sambærilegar tölur fengnar úr
bandarískum rannsóknum og samræmdar
m.t.t. fullkomins legbrests leiddu í Ijós tíðni-
tölur á bilinu 1/1034 til 1/6673. Ásted. B