Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1986, Síða 18

Læknablaðið - 15.01.1986, Síða 18
(SLENSKT SÉRLYF: ATENÓLÓL HAGKVÆMT OG ÁRANGURSRÍKT LYF TIL MEÐFERÐAR Á HÁÞRÝSTINGI OG HJARTAÖNG. Eiginleikar: Beta-blokkari með áhrifum aðallega á beta-1 viðtæki, en án eigin sympatomi- metískra áhrifa (ISA). Ábendingar: 1. Háþrýstingur. 2. Hjartaöng (angina pectoris). Frá- bendingar: Algerar: 1. ómeðhöndluð hjartabilun. 2. II.-III. gráðu leiðslurof (dissociatio atrioventricularis). Afstæðar: 1. Lungnasjúkdómar með berkjusamdrætti. 2. Hjartabilun. 3. Hægur hjartsláttur. 4. Æðaþrengsli íútlimum (arteriosclerosis obliterans, Raynauds phen- omen). 5. Sykursýki án meðferðar. 6. Sýring ílíkamanum (acidosis metabolica). 7. Háþrýst- ingur í lungnablóðrás (cor pulmonale). 8. Þungun. Varúð: 1. Varast ber að hætta gjöf lyfsins skyndilega hjá kransæðasjúklingum. 2. Lyfið dregur úr samdráttarkrafti hjartans og hjarta- bilun, sem áður olli ekki einkennum, getur þá komið fram. 3. Einkenni berkjusamdráttar (mb. respiratoricus obstructivus) geta komið í ljós af lyfinu. 4. Lyfiðgetur leynt einkennum of lágs blóðsykurs og ofstarfsemi skjaldkirtils (thyreotoxicosis). 5. Við nýmabilun þarf að minnka skammt lyfsins. Aukaverkanir: Geðrænar: Þreyta, þunglyndi, svefnleysi, martröð, of- skynjanir. Meltingarfæri: Verkir, ógleði, uppköst, niðurgangur. Blóðrás: svimi, hand- og fótkuldi. - Vöðvaþreyta. Útþot og þurrkur í augum, þá ber að hætta notkun lyfsins, þó ekki skyndilega. Milliverkanir: 1. Beta-blokkara og verapamíl (Isoptin) á helst ekki að gefa samtímis vegna hættu á AV-blokki og hjartabilun. Nífedipín (Adalat) getur einnig valdið AV- blokki og hjartabilun, ef það er gefið samtímis beta-blokkara, en sjaldnar en verapamil. Hvorki skal gefa beta-blokkara, né kalsíumantagónista (nífedipín, verapamíl) iœð fyrr en a.m.k. tveimur sólarhringum liðnum frá því gjöf lyfsins úr hinum lyfjaflokknum var hætt. 2. Digitalis og beta-blokkarar geta dregið of mikið úr rafieiðni og valdið hægum hjartslætti eða leiðslurofi. 3. Sýmbindandi lyf með álsöltum draga úr virkni lyfsins. 4. Címetidín eykur áhrif lifsins. 5. Svæfingalyf geta ásamt beta-blokkurum dregið verulega úr samdráttarkrafti hjartans. 6. Gæta skal sérstakrar varúðar ef beta-blokkarar og dísópýramíð eða skyld lyf em gefin samtímis vegna hættu á hjartabilun eða alvarlegum leiðslutmflunum. Eiturverkanir: Hægur hjartslátmr, leiðslurof, blóðþrýstingsfall, lágur blóðsykur, krampar, berkjusamdrátt- ur. Meðferð: Atrópín 1-2 mg iv, má endurtaka-, handa smábörnum 50 míkróg. Glucagon 10 mg iv, má endurtaka eftir 10 mín. Prenalterol 10 mg hægt iv, það má gefa þennan skammt á 3-5 mín. fresti, þar til hjartabilunareinkenni minnka. Skammtastærðir handa fullorðn- um: Háþrýstingur: 50-100 mgá dag, sjaldan 200 mgá dag. Lyfið mágefa í einum skammti daglega. Minni skammta skal nota, ef nýmarstarfsemi er skert. Hjartaöng: 50 mg tvisvar sinnum á dag; má auka með varúð í 100 mg tvisvar sinnum á dag. Skammtastærðir handa bömum: Ekki eru tilgreindar upplýsingar um skammtastærðir handa börnum. Töflur: 50 mg og 100 mg / 30 og 100 stk. j/A TORO STEFÁN THORARENSEN HF. Síðumúla 32, 105 Reykjavík. Sími 686044.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.