Læknablaðið - 15.08.1989, Síða 20
204
LÆKNABLAÐIÐ
Table V. Carcinoid tumours 1955-1984. Distribution
by size, depth of invasion and metastases at time
of diagnosis in 29 patients with midgut tumours
excl. appendix.
Average
Depth of invasion N size cm
Submucosa............................ 2 0.9
Muscle............................... 2 0.6
Serosa and regional nodes.... 8 1.4
Mesenterial fat...................... 2 2.9
Mesenterial fat and regional nodes ... 10 2.0
Distant metastases................... 5 2.5
Þeir höfðu báðir niðurgang og aukinn
útskilnað á 5-hýdroxýindólediksýru (5-HIAA)
í þvagi.
íferð œxlis og meinvörp við fyrstu aðgerð
eru sýnd í töflu V. íferðarstig og meinvörp
stóðu í réttu hlutfalli við stærð frumæxlis.
Æxli við ristilloka voru að meðaltali stærst og
ífarandi vöxtur var meiri en hjá öðrum æxlum
í miðgimi: hjá fimm sjúklinganna (83,3%)
var æxlið vaxið út í fituvef, hjá fjórum inn í
botnlangann, og hjá fimm sjúklingum fannst
útsæði í eitlum og hjé einum auk þess í
lífhimnu. Af þeim fjórum æxlum, sem fundust
við aðgerð vegna annarra sjúkdóma, höfðu
þrjú myndað meinvörp.
Af 27 sjúklingum með æxli í miðgimi voru
10 á lífi 1. desember 1986, tveimur til þrjátíu
árum eftir greiningu æxlis. Tíu höfðu látist
af völdum krabbalíkis, 1,9-17 árum eftir
greiningu. Þar af höfðu þrír krabbalíki í
ristilloka og létust þeir 3 1/2-7 1/2 ári
eftir greiningu krabbalíkis. Sjö létust af
öðmm orsökum 12 dögum til 13,8 árum eftir
greiningu. 1 þeim tveimur kmfningum, þar
sem æxlið fannst í miðgimi, var það ekki talið
dánarmein.
3. Afturgirnisœxli fundust hjá íimm
sjúklingum, öll í endaþarmi. Þessir sjúklingar
höfðu engin einkenni haft um krabbalíki. Hjá
fjórum greindist fyrirferð við venjubundna
endaþarmsspeglun, en hjá einum þeirra
hafði áður verið fjarlægt góðkynja æxli. I
fimmta tilvikinu fannst fyrirferðaraukning við
endaþarmsþreifingu fyrir skurðaðgerð vegna
gyllinæðar. Þessi endaþarmsæxli voru öll
lítil, frá 0,1-0,6 cm, meðalstærð 0,35 cm. Öll
voru takmörkuð við slímhúð og slímhúðarbeð
og í öllum tilvikum var eingöngu æxlið
sjálft fjarlægt. Fjórir sjúklinganna (80%)
voru á lífi þremur til tæplega fimmtán árum
eftir greiningu. Einn hafði látist af völdum
kirtilkrabbameins í ristli rúmlega 4 1/2 ári
eftir greiningu krabbalíkis.
í fimm tilfellum var staðsetning frumœxlis
óþekkt og greindist eitt þeirra við krufningu.
Hjá fjórum sjúklingum benti útbreiðsla
æxlisvaxtar til þess, að frumæxlið hafi verið
í meltingarfærum. Hjá þremur sjúklingum
leiddu einkenni frá krabbalíki til aðgerðar en
eitt æxli var greint í leiðinni. Tvær aðgerðir
voru bráðar, vegna gamastíflu, en hinir tveir
sjúklingamir vom skomir upp vegna gmns
um krabbamein í gallblöðru og briskirtli.
Þnr sjúklingar höfðu útbreidd meinvörp við
greiningu og létust af völdum æxlisins fjórum
mánuðum til þremur ámm eftir greiningu.
Einn sjúklingur lést af öðmm orsökum
tveimur árum eftir greiningu. Við krufningu
fundust meinvörp í brjósthimnu en krabbalíki
var ekki álitið dánarorsök.
Krabbalíkisheilkenni: Alls fengu 14 sjúklingar
af 144 (9,7%) krabbalíkisheilkenni og
eru þá ekki talin með tvö tilfelli, þar sem
sjúkrasaga var ekki þekkt. Séu aðeins talin
æxlin, sem sannanlega vom útgengin frá
meltingarfærum, er hlutfallið 11/119 eða
9,2%. Sé botnlangaæxlunum einnig sleppt,
er hlutfallið 11/41 eða 26,8%. Staðsetning
frumæxlis og nánari upplýsingar um þessa
sjúklinga sést í töflu VI. Níu sjúklingar með
krabbalíkisheilkenni höfðu haft kviðverki
og niðurgang frá viku upp í sjö ár áður en
krabbalíki greindist. Fjórir sjúklingar fengu
Table VI. Carcinoid tumors 1955-1984. Patients with
carcinoid syndrome.
Symptoms
Site of -------------------------- Liver Increased
Age Sex primary Pain Diarrhea Flushing metastases 5-HIAA
63 F lleum + + _ + +
69 F lleum + + - + +
54 F lleum + + - + +
78 M lleum + + - - +
57 F lleum + - + + +
54 F lleum + + + + +
59 F lleum + + - + +
56 F lleum + + + + +
52 F lleum + + + + +
60 M lleocecal + + - - ?
66 M lleocecal + + - + ?
64 F Lung + + - + +
66 M Unknown + + - + +
75 F Unknown + + - + +