Læknablaðið - 15.08.1989, Side 21
LÆKNABLAÐIÐ
205
sömu einkenni, og auk þess andlitsroða, 3-8
árum eftir greiningu krabbalíkis. Þá fékk einn
sjúklingur andlitsroða 1 1/2 ári eftir greiningu
æxlis. Allir sjúklingar, sem höfðu andlitsroða,
fengu því það einkenni eftir greiningu æxlis,
1 1/2 til 8 árum síðar. Tólf sjúklingai höfðu
lifrarmeinvörp, sem þó greindust ekki við
fyrstu aðgerð hjá öllum. Hjá tveimur fundust
ekki lifrarmeinvörp við aðgerð, en annar
þeirra fékk lifrarstækkun síðar. Tólf sjúklingar
höfðu aukinn útskilnað á 5-HIAA í þvagi, en
mælinganiðurstöður fundust ekki fyrir tvo.
Töf á greiningu: Hjá 27 sjúklingum með
miðgimisæxli, greindist það við skurðaðgerð
vegna annarra sjúkdóma hjá fjórum, og
vegna meinvarpa í hálseitli hjá einum.
Hinir 22 sjúklingamir höfðu allir haft
kviðarholseinkenni, sem telja verður að hafi
stafað frá krabbalíkinu. Atta sjúklingar höfðu
haft einkenni í meira en eitt ár, lengst sjö ár
hjá tveimur. Æxlin voru staðsett í dausgimi
hjá sjö, en við ristilloka hjá einum. Þessir
átta sjúklingar höfðu allir leitað læknis vegna
einkenna sinna, flestir oft, áður en æxlin
greindust. Við fyrstu skurðaðgerð höfðu
allir þessir sjúklingar meinvörp, og fjórir
krabbalíkisheilkenni.
Náin fjölskyldutengsl: Eitt dæmi fannst um
slíkt. Var um að ræða móður og son, sem
bæði fengu krabbalíki í dausgimi.
Dieifing tilfella um landið eftir búsetu: Ekki
fannst óeðlileg þéttni tilfella af krabbalíki á
neinu einstöku landsvæði.
Önnur illkynja œxli, áður, samtímis eða síðar
greind, fundust hjá 12 sjúklingum, sem höfðu
krabbalíki í meltingarfæmm og eru þau sýnd í
töflu VII.
Table VII. Carcinoid tumours 1955-1984. Second
primary malignacies.
Site of carcinoid tumor Site of second primary
Appendix Urinary bladder
Appendix Colon
Appendix Ovary (pseudomyxoma)
Appendix Lung
Appendix Multiple myeloma
Appendix Stomach
lleum Stomach, prostate
lleum Endometrium
lieum Pancreas
Rectum Colon
Stomach Kidney
Unknown Kidney
Afdrif: Þann 1. desember 1986 höfðu 26
sjúklingar látist af þeim 46 sem höfðu
krabbalíki í meltingarfærum utan botnlanga,
og þar sem staðsetning fmmæxlis var óþekkt.
Af þeim höfðu 13 látist af völdum krabbalíkis,
frá fjómm mánuðum til 17 ámm eftir
greiningu æxlis. Þrír sjúklingar þar fyrir utan
létust af fylgikvillum skurðaðgerða sem gerðar
voru vegna krabbalíkis. I tveimur tilfellum
þar sem krabbalíki fannst fyrst við kmfningu,
var það talið dánarorsök. Samtals eru þetta
18 manns eða 39%, sem létust af völdum
krabbalíkis.
UMRÆÐUR
Efniviðurinn í þessari rannsókn er öll
vefjafræðilega greind tilfelli krabbalíkis á
landinu á 30 ámm. Því má ætla, að raunhæf
mynd sé gefin af faraldsfræði sjúkdómsins hjá
Islendingum á þessu tímabili. Hins vegar er
samanburður við erlendar rannsóknir að vissu
leyti erfiður, vegna þess að flestar erlendar
greinar koma frá einstökum stofnunum eða
byggja á völdum sjúklingahópum, en ekki
á öllum greindum tilfellum í jafn samstæðu
(homogen) úrtaki og Islendingar em.
Langflest œxli voru í meltingarfærum, og
af þeim flest í botnlanga (66%). I dausgimi
vom 14%, og 4% í endaþarmi. Mártensson
(6) gefur upp eftirfarandi tölur, og byggir á
fjölda greina: Botnlangi 45%, dausgimi 30%
og endaþarmur 15%.
Krabbalíki fannst hjá fólki á aldrinum 4-90
ára, og að undanskildum æxlum í botnlanga
og lungum er kyndreifing jöfn. Yngstu
sjúklingamir eru þeir sem hafa krabbalíki í
botnlanga, en annars er algengasti aldur þeirra
sem hafa æxli í meltingarfærum 50-60 ára.
Þessar niðurstöður em svipaðar og finna má í
erlendum greinum (6, 13).
Einn sjúklingur hafði krabbalíki í
skeifugarnartotu. Þessir sjúklingar hafa
stundum neurofibromatosis cutanea eða
viscerocutanea (14). Yfirleitt uppgötvast
krabbalíki í skeifugamartotu snemma, vegna
stíflugulu. Horfur þessara sjúklinga eru
almennt góðar.
Langflest krabbalíki í meltingarfærum
eru útgengin frá miðgirni. Flest eru þau í
botnlanga, en næst flest í mjógimi og þar
eru þau algengari neðan til. Krabbalíki er