Læknablaðið - 15.08.1989, Page 36
218
LÆKNABLAÐIÐ
Fjöldi greindra
Mynd 1. Dreifing tilfella á einstök ár.
% sjuklinga
Aldur. Meðalaldur við greiningu var 70 ár.
Yngsti sjúklingurinn var 44 ára, sá elsti 89
ára. Tveir sjúklingar voru yngri en 50 ára,
hvoru tveggja konur með FVG. Meðalaldur
sjúklinga með GSB var 71,1 ár, með FVG
69,8 ár og með hvort tveggja 71,6 ár.
Tafla I. Hlutfallsleg dreífíng sökkgílda eftir
sjúkdómsgreiningu.
Sökk GSB FVG GSB + FVG
<20 ........ 0 1 0
20-29 ...... 0 5 0
30-39 ...... 0 5 0
40-49 ...... 1 (10,0%) 7 0
>50 ........ 9(90,0%) 29 11 (100%)
Samtals 10 47 11
GSB: Gagnaugaslagæöabólga.
FVG: Fjölvöövagigt.
Kynhlutfall. Af 68 sjúklingum voru 39
(57,4%) konur og 29 (42,6%) karlar. Höfðu
29 (61,7%) kvennanna og 18 (38,3%)
karlanna eingöngu FVG. Fimm konur og fimm
karlar greindust með GSB eingöngu.
Skipting titfella á einstök ár. Mynd 1 sýnir
dreifingu tilfella á einstök ár. Arin 1970 til
1974 greindust 13, árin 1975 til 1979 17 og
1980 til 1984 38. Fleiri tilfelli hafa því greinst
hin síðari ár en áður.
Tími frá upphafi einkenna til
greiningar. Lengstur tími frá upphafi einkenna
til greiningar var 208 vikur eða fjögur ár
en stystur ein vika. Fyrra tilfellið var 44
ára gömul kona með fjögurra ára sögu um
vöðva- og liðverki. Síðara tilfellið var 65 ára
gamall karl með kransæðastíflu og greindist
þá jafnframt hjá honum FVG. Meðaltími
frá upphafi einkenna til greiningar var 20,9
vikur. Við GSB eingöngu 9,2 vikur og
FVG eingöngu 26,7 vikur. Mynd 2 sýnir
hlutfallslega dreifingu einkenna.
Sökkgildi. Mynd 3 sýnir hlutfallslega dreifingu
sökkgilda hjá hópnum í heild en tafla 1
dreifingu sökkgilda eftir sjúkdómsgreiningu.
Einungis sjúklingar með FVG höfðu sökk
undir 40 við greiningu. Sjúklingar með GSB
og GSB + FVG höfðu allir hærra sökkgildi,
GSB yfir 40 og GSB + FVG yfir 50.
Alkalískur fosfatasi. Alkalískur fosfatasi var
mældur hjá 61 (89,7%). Reyndust 22 (36,1%)
hafa hann hækkaðan en 39 (63,9%) eðlilegan.
Kreatínfosfókínasi (CPK). CPK var mældur
hjá 33 (48,5%). Tveir (6,1%) höfðu hækkuð
gildi en 31 (93,9%) höfðu eðlileg gildi.
Annar ofangreindra hafði mjög væga hækkun.
eðlilegt vöðvasýni, og ekki fannst hjá honum
illkynja sjúkdómur. Hinn var lagður inn vegna
kransæðastíflu og skýrir hún CPK hækkun.