Læknablaðið - 15.08.1989, Side 37
LÆKNABLAÐIÐ
219
% sjúklinga
Mynd 3. Hlutfallsleg dreifing sökkgilda.
Augnskoðun. Augnskoðun, framkvæmd af
augnlækni, samræmdist GSB hjá tveimur
(4,9%) af 41. Við smásjárskoðun greindist
aðeins GSB hjá öðrum.
Gigtarþáttur (RF). Hann var mældur hjá 47
(69,1%) og voru allir neikvæðir.
Kjarnamótefni (ANA). Þau voru mæld hjá 49
(72,1%) og fundust aðeins hjá þremur (6,1%).
lllkynja sjúkdómar. Gerð var leit að illkynja
sjúkdómum hjá 56 af 68 sjúklingum (82,4%).
Leitin fólst m.a. í rannsóknum á meltingarvegi
og nýrum. Einnig var beinaskann gert
hjá nokkrum og mergsýni skoðuð. Voru
þessar rannsóknir neikvæðar með tilliti til
illkynja sjúkdóma, enda er greiningin FVG
útilokunargreining.
Vöðvasýni. Vöðvasýni voru tekin hjá 14
(20,6%) og sýndi eitt þeirra ósérhæfða
blettabólgu. Þetta var kona með FVG og GSB
árið 1981. Var hún meðhöndluð með sterum
í eitt og hálft ár og hefur verið einkennalaus
síðan.
% sjúklinga
Mynd 4. Lengd sterameðferöar.
MEÐFERÐ
1) Sterafrí bólgulyf (NSAID): 18 af 68
(26,5%) notuðu þegar eða byrjuðu að nota
slík lyf við greiningu.
2) Sterar: 62 (91,2%) voru meðhöndlaðir með
sterum. Allir með GSB, 21, fengu stera en 41
(87,2%) af 47, sem voru með FVG eingöngu.
Sex (8,8%) voru ekki meðhöndlaðir með
sterum en voru meðhöndlaðir með sterafríum
bólgulyfjum í tvo til 13 mánuði. Einn þeirra
fékk einkenni á ný 8 árum eftir greiningu
og fékk þá Prednisólón. Mynd 4 sýnir lengd
sterameðferðar. Voru 13 (19,1%) á meðferð í
eitt til tvö ár og 31 (45,6%) lengur en þrjú ár
(9 í 3-4 ár, 12 í 4-5 ár, 3 í 5-6 ár, 5 í 6-7 ár,
einn í 8 ár og einn í 17 ár). Af þessum hóp
nota 8 enn stera. Reiknuð var út tímalengd
sterameðferðar. Sleppt var þeim sem dóu á
meðferð og þeim sem ekki þurftu á sterum að
halda við FVG (6 sjúklingar) auk sjúklings
sem notað hefur stera í 17 ár án sjáanlegrar
ástæðu. Meðallengd sterameðferðar þeirra
sem eingöngu höfðu GSB reyndist tvö ár
og fjórir mánuðir, tvö ár og 11 mánuðir