Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Síða 13
DV Fréttir föstudagur 4. maí 2007 13 ráðstöfunartekjum þessara einstakl- inga er því nærri milljón á ári. Endurgreiðslan reiknast af upp- hæð umfram frítekjumark vistmanna og fyrir lífeyrisþega með lægri tekj- ur en 360 þúsund er frítekjumarkið í raun einu ráðstöfunartekjur ein- staklingsins. Annað fer í skatt og greiðslu dvalarkostnaðar. Lífeyris- þegi þarf því að hafa hærri tekjur en 360 þúsund á mánuði til að hækka ráðstöfunartekjur sínar umfram frí- tekjumarkið. Kerfi ójöfnuðar Ásgeir Jóhannesson, lífeyrisþegi og fyrrverandi stjórnarformaður dvalarheimilisins Sunnuhlíðar, tel- ur mismuninn í kostnaðarþátttöku afar ósanngjarnan. Hann segir þetta því miður einn af mörgum ósann- gjörnum liðum almannatrygginga- kerfisins. „Þetta er því miður svona og mér finnst það mjög ósanngjarnt. Nauðsynlegt er orðið að stokka upp kerfið í heild sinni því það er samof- ið mörgum mjög slæmum öngum. Þjóðfélagsaðstæður hafa gjörbreyst án þess að heildarendurskoðun hafi átt sér stað,“ segir Ásgeir. „Það hafa alltaf aðeins verið teknir smá hlutar kerfisins og reynt að laga þá. Stað- reyndin er sú að kerfið nær ekki að tryggja jöfnuð og þjóna þjóðfélaginu eins og það er í dag. Það er gríðarleg- ur ójöfnuður innan tryggingakerfis- ins þar sem það var mótað í allt öðru þjóðfélagi en nú er. Undirstöðurnar þarf að skoða án þess að breyta hugs- unum um jöfnuð samfélagsins.“ Algjör hneisa Ásta Ragnheiður, þingmaður Samfylkingarinnar, tekur undir og telur hér um hreina og klára stétta- mismunum að ræða. Hún segir hér enn eitt dæmið um misræmið í sam- félaginu. „Þetta er algjör hneisa. Því miður er þetta aðeins eitt slæmt dæmi af svo mörgum í löngu úreltu heilbrigðiskerfi. Fyrir utan það að missa nánast fjárhagslegt sjálfræði þegar fólk leggst inn á stofnun, þá er þetta eitthvað sem enginn á að sætta sig við. Þarna er verulega verið að mismuna fólki eftir aðstæðum og kjörum þess,“ segir Ásta Ragnheiður. Pétur Blöndal, þingmaður Sjálf- stæðisflokks og fulltrúi í heilbrigðis- nefnd, er ósammála. Hann er þeirr- ar skoðunar að fyrirkomulagið sé þvert á móti sanngjarnt. „Eðlismun- ur þessara tekna er mjög mikill. Það er útbreiddur misskilningur að líta á fjármagnstekjur sem hreinar tekj- ur. Raunin er hins vegar sú að réttast er að horfa á þær til helminga, ann- ar helmingurinn er kostnaður við að afla teknanna og hinn helmingurinn er tekjur. Af þeim sökum var ákveðið að krefjast aðeins 50 prósenta end- urgreiðslu af tekjum fjármagnseig- enda og það er mjög sanngjarnt,“ segir Pétur. Stéttaskipting á Íslandi Ingibjörg Brjánsdóttir stjórn- sýslufræðingur hefur skoðað þenn- an málaflokk vel og er hissa á þessu mikla misræmi. Hún segir fjár- magnseigendur einfaldlega ekki lúta sömu reglum og almennir líf- eyrisþegar í þjóðfélaginu. „Þarna sést svart á hvítu að þeir sem njóta fjármagnstekna njóta hagstæð- ari kjara á dvalarheimilum og ráð- stöfunartekjur þeirra eru hærri. Í grunninn hafa þeir einnig lægri skattaprósentu. Fjármagnseigand- inn nýtur þarna sérstakra þegnrétt- inda líkt og hann sé af annarri stétt en hinn almenni lífeyrisþegi. Því hærra hlutfall fjármagnstekna hjá einstaklingi, þeim mun hærri verða greiðslur Tryggingastofnunar,“ segir Ingibjörg. „Löggjafinn hefur augljóslega búið fjármagnseigendum mun betra bæli í ellinni. Þannig eru þeim tryggðar hærri greiðslur úr sjóðum Tryggingastofnunar, öfugt við það sem flestir telja hlutverk hennar, að jafna lífsskilyrði manna en ekki hygla þeim sem betur mega sín. Hinn al- menni lífeyrisþegi á kröfu á stjórn- völd að þau útskýri hvernig á því standi að fjármagnstekjur séu með þessum hætti heilagri en tekjur úr al- mennum lífeyrissjóðum hvað varðar vistgjöld. Það er ótækt að fjármagns- eigendur borgi minna, fái meira út úr sjóðum Tryggingastofnunar og njóti hærri ráðstöfunartekna en hinir. Eru þeir kannski af annarri stétt en al- mennir lífeyrisþegar?“ Fjármagnseigendur aF annarri stétt „Eru fjármagnseigend- ur kannski af annarri stétt en almennir lífeyr- isþegar?“ Lífeyrissjóðstekjur 190.000 kr. fjármagnstekjur 0 kr. Lífeyrissjóðstekjur 150.000 kr. fjármagnstekjur 40.000 kr. Lífeyrissjóðstekjur 95.000 kr. fjármagnstekjur 95.000 kr. Lífeyrissjóðstekjur 40.000 kr. fjármagnstekjur 150.000 kr. Kostnaðar- þátttaka 93.515 kr. Kostnaðar- þátttaka 86.607 kr. Kostnaðar- þátttaka 77.109 kr. ráðstöfun- artekjur 122.390 kr. ráðstöfun- artekjur 53.119 kr. ráðstöfun- artekjur 71.089 ráðstöfun- artekjur 100.618 kr Kostnaðar- þátttaka 67.610 kr. Dæmi um mismun dvalarkostnaðar og ráðstöfunartekna: 2002 2003 2004 2005 2006 Fjölgun greiða fjármagnstekjuskatt 76.128 74.436 76.924 77.080 84.680 7.600 fjöldi skattgreiðenda 224.914 226.462 229.665 234.437 241.344 6.907 Lífeyrissjóðstekjur fjármagnstekjur Ósanngjarnt sigurður Kári Kristjánsson Þingmaður sjálfstæðisflokks „Það er auðvitað fáránlegt að allir sitji ekki við sama borð og fólk sé sett í mismunandi flokk eftir því hvers lags skatta það greiðir. Ég vissi hreinlega ekki að þetta væri svona og það kemur mér mjög á óvart. Þetta er ósann- gjarnt með þessum hætti og á ekki að vera svona. Að mínu mati er því eðlilegt að breyta löggjöf- inni hvað þetta varðar.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.