Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Blaðsíða 49
DV Helgarblað föstudagur 4. maí 2007 49
Sakamál
Rúmlega fimmtugur maður var skotinn til
bana af lögreglu á sunnudag við verslunarmið-
stöð í Kansas-borg í Bandaríkjunum. Lögreglan
var kölluð til eftir að hann hóf að skjóta að veg-
farendum með riffli. Tveir lágu í valnum áður
en honum var veitt banaskotið. Átta manns
særðust í byssubardaganum, þar af einn lög-
reglumaður. Síðar kom í ljós að maðurinn hafði
einnig drepið nágrannakonu sína á sjötugsaldri
þegar hann stal bíl hennar.
Ætlaði að drepa fleiri
Maðurinn var starfsmaður verslunarmið-
stöðvarinnar en hafði verið sagt upp störfum.
Er talið að hann hafi ætlað að drepa alla þá
sem á vegi hans yrðu í hefndarskyni fyrir brott-
reksturinn og fyrir að hafa ekki fengið tækifæri
til að starfa þar sem öryggisvörður. Umsókn
hans um það starf hafði verið hafnað af þeirri
ástæðu að hann biði niðurstöðu í máli lög-
regluyfirvalda gegn honum.
Systir mannsins sagði í viðtali við fjölmiðla
að fjölskyldan hefði fengið bróður sinn lagðan
inn á geðsjúkrahús fyrir tveimur árum af ótta
við að hann kynni að svipta sig lífi.
Hann hafði þá átt við geðræn vandamál og
ofdrykkju að stríða í langan tíma að hennar
sögn. Hún segir ómögulegt að komast til botns
í þessum harmleik sem bróðir hennar hafi
staðið fyrir.
Lögregla skaut byssuóðan mann til bana:
Var í hefndarhug vegna brottreksturs
Toni Jo Henry átti slæma æsku.
Móðir hennar dó þegar hún var sex
ára og faðir hennar giftist á ný. Toni
Jo var aldrei sátt við stjúpmóður sína
og sótti fast að fá að flytja til frænku
sinnar. Ung að árum leiddist hún út
í vændi og í framhaldi af því neyslu
áfengis, tóbaks og kannabisefna. Á
sama tíma kynntist hún undirheim-
um Shreveport í Louisiana.
Stutt hjónabandssæla
Árið 1939 kynntist Toni Jo,
Claude „Kúreka“ Henry á vændis-
húsi í Shreveport, en þar var hún í
fullu starfi. Þó Claude væri lánlaus
glæpamaður og biði réttarhalda
vegna skotárásar á fyrrverandi lög-
regluþjón féll Toni Jo umsvifalaust
fyrir honum. Þau gengu í það heilaga
25. nóvember þetta sama ár og fóru
í brúðkaupsferð til Suður-Kaliforn-
íu. En hjónabandssælan varði ekki
lengi því Kúreki fékk tilkynningu
um að mæta fyrir rétt í Texas vegna
skotárásarinnar. Toni Jo reyndi ár-
angurslaust að telja Kúreka á að flýja
með henni, en hann ákvað að mæta
fyrir dóminn og var fundinn sekur.
Hann var dæmdur til fimmtíu ára
vistar í fangelsinu í Huntsville í Tex-
as. Toni Jo sór að frelsa hann úr fang-
elsinu, enda bálill því hún trúði því
statt og stöðugt að Kúreki hefði skot-
ið í sjálfsvörn og hafði treyst á sýknu-
dóm í málinu.
Áætlunin
Toni Jo hafði tengsl í glæpaheim-
um Louisiana og Texas og hófst þeg-
ar handa. Þrátt fyrir ítrekaðar viðvar-
anir um að áætlanir hennar myndu
aldrei ganga eftir var hún staðráðin í
að frelsa Kúreka. Hún bjó í Beaumont
í Texas til að vera nærri Kúreka og þar
komst hún í kynni við Harold „Ark-
insaw“ Burks. Hann bjó yfir þekkingu
á Huntsville-fangelsinu, enda hafði
hann verið fangi þar. Þau ákváðu að
stela bifreið og ræna banka í heima-
bæ Harolds, til að fjármagna aðgerð-
ina. Toni Jo hafði útvegað skambyss-
ur, tveir kunningjar hennar höfðu
stolið þeim úr skotvopnaverslun, og
með það lögðu þau af stað á puttan-
um til Arkansas til að ræna bankann.
Á leiðinni urðu þau fyrir því láni að fá
far með Josep P. Calloway á splunku-
nýjum Ford V8, sem hann átti að af-
henda vini sínum.
Kaldfrifjað morð
Ekki leið á löngu áður en Toni Jo
dró upp skambyssu og neyddi Call-
oway til að aka af þjóðveginum inn á
afskekktan sveitaveg. Þar skipaði hún
honum að stöðva bílinn og þau fóru
öll út úr honum. Eftir að hafa neytt
hann til að afklæðast og hirt af hon-
um öll verðmæti var Calloway hent í
skottið og ekið af stað. Eftir nokkurn
spöl stöðvuðu skötuhjúin bifreið-
ina og hleyptu Calloway úr skottinu.
Toni Jo gekk með honum yfir akur að
heygalta, þar skipaði hún honum að
krjúpa og fara með bænirnar sínar.
Róleg og yfirveguð skaut hún hann
síðan í höfuðið.
Eftir morðið á Calloway óku hún
og „Arkinsaw“ til Camden í Arkans-
as og bókuðu sig inná ódýrt hótel. Á
meðan Toni Jo svaf stakk „Arkinsaw“
af með föt Calloway og bílinn. Morð
hafði ekki verið á dagskránni hjá hon-
um og það hafði komið honum í opna
skjöldu. Síðar sagði hann að hann
hefði eingöngu þóst ætla að hjálpa
Toni Jo, það væri léttara að komast
til Arkansas í fylgd fallegrar stúlku en
einn á ferð. Alein og yfirgefin ákvað
Toni Jo að fara heim til Shreveport og
endaði heima hjá frænku sinni.
Játningin
Frænku hennar varð fljótlega ljóst
að ekki var allt með felldu hjá Toni
Jo. En þó hún gengi á hana fékk hún
ekki nema óljósa mynd af því sem
gerst hafði. Ætlaði hún þá að hafa
samband við bróður sinn, sem var
lögregluþjónn, og leita ráða hjá hon-
um, en hann var í fríi. Viðraði hún þá
áhyggjur sínar við starfsfélaga hans,
Dave Walker, sem fylgdi henni heim
og talaði við Toni Jo. Hann vissi að
Calloway var saknað, en samt var
hann fullkomlega óviðbúinn hinni
skýlausu játningu sem hann heyrði
hjá Toni Jo.
Walker handtók hana á staðnum
og afhenti hana lögregluyfirvöld-
unum í Lake Charles. Við rannsókn
fannst lík Calloway þar sem Toni Jo
hafði myrt hann og einnig var stað-
fest að kúlan sem varð honum að
bana kom úr byssunni sem Walker
hafði tekið af Toni Jo.
Toni Jo var formlega ákærð fyr-
ir morðið, en neitaði í fyrstu að gefa
upp nafn vitorðsmanns síns, vegna
óánægju með þá mynd sem fjölmiðl-
ar drógu upp af henni. Hún lét þó
undan um síðir og „Arkinsaw“ var
settur bak við lás og slá.
Þrjár áfrýjanir
Það var ekki fyrr en eftir þrjár
áfrýjanir að lokadómur var kveðinn
upp yfir Toni Jo. Þá hafði málarekst-
ur staðið yfir í tæp tvö ár, en í janúar
árið 1942 var hún dæmd til dauða
og skyldi dómnum fullnægt í raf-
magnsstólnum. 23. nóvember, örfá-
um dögum áður en dómnum skyldi
fullnægt gerði Kúreki, við annan
mann, vonlausa tilraun til flótta úr
Huntsville-fangelsinu, með það fyr-
ir augum að frelsa Toni Jo. Tilraunin
var dæmd til að mistakast frá byrjun
og hann hafði ekki erindi sem erf-
iði. Þann 27. nóvember fékk Toni Jo
leyfi til að hringja í Claude „Kúreka“
Henry og hafði þá þetta við hann
að segja: „Losaðu þig við þennan
fangabúning og farðu út um aðal-
dyrnar og reyndu að gera eitthvað
við líf þitt.“
Aftakan
Toni Jo Henry var tekin af lífi 28.
nóvember árið 1942. Hún var klædd
látlausum svörtum kjól og grét þeg-
ar höfuð hennar var rakað. Hún fékk
leyfi til að vera með lítríkan höfuð-
klút til að fela hárleysið. Hún var ró-
leg og yfirveguð, en viðurkenndi þó
að hún væri örlítið taugaóstyrk. Hún
brosti til ljósmyndara sem voru við-
staddir og bar höfuðið hátt.
„Arkinsaw“ var tekinn af lífi í
sama rafmagnsstól nokkrum mán-
uðum síðar, þrátt fyrir að Toni Jo hafi
ítrekað haldið fram sakleysi hans af
morðinu.
Sex manns
tróðust
undir
Mikill mannfjöldi hafði safn-
ast saman í túníska bænum Sfax
á mánudag þegar upptökur á
vinsælum tónlistarþætti fóru
þar fram. Þegar vinsæl söng-
kona úr bænum steig loks á svið
reyndu þeir sem stóðu aftast að
komast framar og skapaðist við
það mikil pressa á þá sem stóðu
fremst. Endaði það með því að
sex manns tróðust undir og lét-
ust. Forseti landsins hefur sent
tvo ráðherra til Sfax til að hafa
umsjón með rannsókn á slysinu
fyrir hönd ríkisstjórnar landsins
samkvæmt frétt Ekstrablaðsins. David W. Logsdon drap þrjá áður en lögreglu tókst
að stjóta hann til bana.
.
Vinurinn panikkeraði og stakk af
Hubert Hochstetter, 17 ára, féll af traktor, en vinur hans Josef
Mittriniger var undir stýri. Hochstetter handleggs- og rifbeins-
brotnaði við slysið. Mittringer sá ekki vin sinn þegar hann
bakkaði til að athuga með hann og bakkaði því yfir hann með
þeim afleiðingum að Hochstetter fótbrotnaði á báðum fótum.
Vitni voru að slysinu og hringdu þau eftir sjúkrabíl.
Hálshöggv-
inn vegna
nauðgunar
Það eru litlar líkur á því að
dæmdir nauðgarar í Sádi-Arab-
íu brjóti af sér á nýjan leik. Enda
verða allir þeir sem fundnir eru
sekir um þennan glæp höfðinu
styttri. Þetta fékk maður fá Már-
itíus að reyna á mánudag þegar
höfuð hans var tekið af með
sverði. Maðurinn var dæmdur
fyrir að brjótast inn í þrjú hús
og nauðga konunum sem þar
bjuggu. Einnig hótaði hann
börnum þeirra lífláti. Sam-
kvæmt frétt danska blaðsins BT
hafa fjörutíu og sex manns verið
teknir af lífi það sem af er ársins
í Sádi-Arabíu.
Drepin með
regnhlíf
Ung ítölsk kona var stungin
í auga með regnhlíf af tveimur
kynsystrum sínum á lestarstöð á
Ítalíu í vikunni. Hún hafði sakað
konurnar um að vera vasaþjófa
og hófst þá mikið rifrildi milli
þeirra. Endaði það með því að
þær veittu henni þetta bana-
sár samkvæmt tilgátu ítölsku
lögreglunnar. Konurnar voru
handteknar skömmu síðar en
þær hafa ekki játað á sig verkn-
aðinn. Vonast lögregla til að
DNA-rannsókn á regnhlífinni
tengi þær stöllur með óvéfengj-
anlegum hætti við morðvopnið.
Toni Jo Henry fæddist þann 3. janúar 1916 í Louisiana, Bandaríkjunum. Hún var eina
konan sem var send í rafmagnsstólinn í Louisiana-fylki en hún var tekin af lífi 28.
nóvember 1942 fyrir kaldrifjað morð á Josep P. Calloway á degi heilags Valentínusar
14. febrúar 1940.
sigrar Ástin allt?
Toni Jo Henry Vel var gert við hana
fyrir aftökuna.
Ford V - 8
Calloway var hent
í farangursrýmið.
Rafmagnsstóll
toni Jo var eina
konan sem lét lífið
í rafmagnsstól í
Louisiana.