Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Blaðsíða 31
DV Sport Föstudagur 4. maí 2007 35 Framtíðin er björt hjá Val sem hafa æft hérna og alist upp. Við erum með marga góða þjálfara í yngri flokkunum og margir góðir leikmenn hafa komið upp í gegnum tíðina. Núna stefndum við kannski meira allir í sömu áttina, að titlinum. Okkur hefur allaf vantað fleiri í kringum þetta. Ég vil meina það að fólkið í kring- um þetta skiptir svo rosalega miklu máli, fólkið sem sér um undirbúning heimaleikjanna og allt það. Við fjölg- uðum í þeim hópi og þeir sem tóku að sér verkefnin kláruðu þau með glæsibrag. Það eru ákveðin markmið í kringum þetta líka. Það er ekki nóg að strákarnir æfi sex sinnum í viku og að þjálfararnir séu að djöflast á þeim, það þarf allt að fylgja með. Og ég vil meina að nú í ár hafi þessir hlutir verið bestir hjá okkur á þeim árum sem ég hef ver- ið þjálfari.“ Meistaradeildin er kostnaðarsöm Valsmenn hafa ekki tekið ákvörð- un um hvort liðið fari í Meistara- deild Evrópu næsta vetur. Óskar seg- ir að það sé kostnaðarsamt dæmi og leikmenn jafnt sem þjálfarar þurfi að leggja meira á sig ef liðið fer í Meist- aradeildina. „Nú er spurning hvað félagið gerir varðandi Meistaradeildina, hvað leik- menn og stjórn gera. Ég held að það sé mikilvægt að taka ákvörðun um það. Þetta er auðvitað ákaflega heill- andi keppni og alla langar að fara. Ég held að það verði hvatning fyrir okkur í sumar. Með nýtt hús og Meistaradeild eru spennandi tímar á Hlíðarenda. En menn verða að átta sig á því að það kostar vinnu og peninga. Þetta er ekki eins og í knattspyrnunni, því miður. Hver umferð kostar eina og hálfa til tvær milljónir. Væntanlega förum við í forkeppni og ef við klárum hana þá vitum við að þetta eru sex leikir. Þetta verður álag en ég myndi segja að þetta væri bara skemmtilegt. Ég held að það sé vilji allra að fara. En leikmenn þurfa þá að leggja meira á sig. Þetta eru strákar í fullu námi og fullri vinnu og svo eiga þeir kannski að fara að bæta á sig ein- hverjum fjáröflunum, eins og við höf- um gert undanfarin tvö ár. Þetta er því meira en að segja það. En ég vona að félagið taki þessa ákvörðun.“ Óskar kann vel að meta það um- hverfi sem hann starfar í hjá Val. Hinn reynslumikli þjálfari Heimir Ríkharðs- son er aðstoðarmaður hans og Óskar sagði ómetnalegt að hafa slíkan mann með sér í baráttunni. „Hann kom í Val í fyrra og á þess- um tveimur árum hefur hann unnið tíu titla fyrir félagið. Það segir meira en annað. Þessi maður er búinn að þjálfa í 25 ár og það kemur ekkert í staðinn fyrir reynsluna. Við höfum unnið þetta þannig að ég ætti í raun ekki að tala bara um Óskar, þetta er bæði Óskar og Heimir. Hans hlutverk með þessa reynslu er ómetanlegt og það er erfitt að tala um það. Hann hefur gengið svo oft í gegnum svona lokabaráttu og það er svo þægilegt að hafa svona reyndan mann með sér.“ Enginn leikmaður liðsins er með lausan samning en Óskar útilokaði ekki að félagið myndi bæta við sig, sér í lagi ef Valur fer í Meistaradeild Evrópu. Eini leikmaðurinn sem Óskar sagði að hugsanlega færi frá félaginu í sumar er Sigurður Eggertsson, en kærastan hans stefnir á nám í Danmörku næsta vetur. Aðrir leikmenn hafa lýst yfir að þeir vilji vera áfram hjá Val. „Ég held að það sé mikilvægt að þó við séum Íslandsmeistarar þurf- um við að bæta ýmislegt. Við verð- um líka að líta á það að þessir strákar hafa lagt gríðarlega mikið á sig og stað- ið vel saman sem heild og mér finnst að þessi hópur eigi skilið að fara í nýja húsið að taka við nýjum verkefnum. Ég treysti þeim í það. En við þurfum að leggja meira á okkur. Bæði erum við meistarar og allir vilja fella meistarana og svo er gríðarlegt álag sem fylgir því að fara í Meistaradeildina. Við þurfum að nýta sumarið enn betur en við höf- um gert,“ sagði Óskar. Þáttur Geirs er stór Valur fékk fimm nýja leikmenn til liðsins fyrir nýafstaðið tímabil. Ern- ir Hrafn Arnarson kom frá Aftureld- ingu, Markús Máni Mikaelson kom til Vals úr atvinnumennsku í Þýskalandi, Ólafur Haukur Gíslason kom til Vals úr atvinnumennsku í Sviss, Gunn- ar Harðarson yfirgaf Fram til að leika með Val og Arnór Gunnarsson kom frá Þór Akureyri. Sá maður sem hvað mest hefur unnið í leikmannamálum Vals er Geir Sveinsson, fyrrverandi þjálfari og leik- maður Vals. Óskar sagði að sú vinna sem Geir hafi skilað hafi skipt miklu um árangurinn á þessari leiktíð. „Þáttur Geirs er gríðarlega stór. Hann er í svokölluðu fagráði og tekur að sér að semja við leikmenn og ann- að. Hann hefur gert það á skynsam- legum nótum vil ég meina. Við erum bara með áhugamannadeild og verð- um að passa okkur á að fara ekki með þetta úr böndunum. Þó vona ég að ís- lenska deildin stefni í eitthvað annað, af því að nú á að fara að spila 28 leiki og líka á milli jóla og nýárs. Þá þarf að fara að íhuga að þetta eru menn í fullu námi og vinnu. Geir Sveinsson á gríðarlegt hrós skilið því ég fékk svo skemmtilegan hóp til að vinna með og það er eiginlega honum að þakka. Hann vann mjög gott starf og er mjög góður í þessu.“ Mikil handboltahefð er hjá Val og í gegnum tíðina hafa leikmenn félags- ins verið burðarásar í íslenska lands- liðinu. Dagur Sigurðsson mun taka við starfi framkvæmdastjóra Vals í sum- ar og Óskar sagði að sú reynsla sem gömlu kempurnar búa yfir geti skilað sér í árangri inni á vellinum. „Við erum með Geir Sveinsson, Valdimar Grímsson, Júlíus Jónasson og Jón Kristjánsson. Þetta eru allt mikl- ir sigurvegarar. Svo kemur Dagur Sig- urðsson og reynslan, titlarnir og lands- leikirnir sem þessir menn hafa hljóta að hjálpa okkur. Ég vil eiginlega nýta þá enn meira. Í sjálfu sér nýtti ég Geir Sveinsson mest á fyrsta árinu mínu. Þá tók hann eina æfingu í viku, það er gott að fá nýja rödd og hann kann þetta. Núna hefur hans vinna mest verið í að semja við leikmenn,“ sagði Óskar. En verða einhverjar breytingar hjá Val með tilkomu Dags? „Dagur hefur sýnt að hann er leið- togi inn á vellinum og fyrir utan hann. Það vilja mjög margir vinna í kringum svona mann. Jafn mikið og við þurf- um nýja leikmenn þá þurfum við að fá nýja sjálfboðaliða. Ég vil meina að það sé mikilvægasta fólkið. Ég held að Dagur sé maðurinn sem mun vonandi leiða félagið inn á nýja gullöld í öllum greinum. Svo er spurning hvað hann gerir fyrir handboltann. Hann á enn eftir að þjálfa meistaraflokk Vals og ég veit að það er eitt af hans markmiðum. Hann á líka eftir að þjálfa landsliðið. Ég er klár á því að hann á eftir að taka þetta tvennt og gera það vel,“ sagði Óskar. Handboltinn er sjálfum sér verstur Handbolti skipar stóran sess í huga landsmanna, ekki síst vegna árangurs landsliðsins á undanförnum árum. En einhverra hluta vegna gengur oft erfið- lega að fá fólk til að mæta á leiki hér á landi. „Ég hugsa að það séu allir sammála því að það þurfi átak í markaðsmál- unum. Það er meiri markaðssetning á Norðurlöndunum. Á næsta ári spilar hvert lið 28 leiki og þarf átak þar inn. Ég held líka að þessi sérsambönd þurfi meiri aðstoð, körfuboltinn og hand- boltinn og annað. Ég held að enginn sé að hugsa mikið um að það eru tveir til þrír menn að halda þessu uppi. Það þarf að hjálpa þessum sérsambönd- um í að það verði fleiri að vinna þarna. KSÍ er mjög vel rekið og er búið að gera góða hluti en þeir fá líka styrk utan frá, sem önnur sambönd fá ekki. Og ég vil meina að það sé kraftaverk hvað við erum að gera góða hluti í handbolta, frjálsum, körfubolta og fleiru. Það þarf að breyta en við getum ekki breytt alltaf mótinu á hverju ári. Félögin þurfa að taka sig í gegn. Það þarf að auka tölfræðina í handbolt- anum. Við þurfum líka að búa til fleiri fyrirmyndir í boltanum hér. Svo vil ég persónulega sjá að yngri flokkunum sé sinnt mikið og að fyrirmyndirnar verði mjög íslenskar. Handboltinn er kannski oft sjálfum sér verstur, við erum alltaf að gagn- rýna hver annan. Við þurfum að tak- ast meira höndum saman. Þetta er að mínu mati okkar þjóðaríþrótt. Við þurfum að hlúa að deildinni. Lands- liðið er á háum stalli en það þarf að- eins að ýta undir deildina og hjálpa henni meira. Ég vil meina að við þurfum að bæta fræðsluþáttinn svo að þjálfarar okkar öðlist betri menntun og bæta markaðssetninguna. Við höfum rosa- lega möguleika í þessari íþrótt. Hand- boltinn er á uppleið og það eru að koma peningar inn í Meistaradeild- ina á næstu árum. Sýn er nú að sýna frá þýska handboltanum og þetta gef- ur okkur svo mikið. Þannig að ég er mjög ánægður með þetta framtak hjá Sýn,“ sagði Óskar og bætti við að einn- ig þyrfti að hlúa að dómaramálum hér á landi. „Það sama er uppi á teningnum í dómaramálum, við erum alltaf að ráðast á dómarana. Ég held að síð- asti dómari frá okkur í Val sé kom- inn vel yfir fimmtugt. Við höfum ekki náð að senda neinn frá okkur. Félögin þurfa að virkja þjálfara, stjórnarmenn og leikmenn. Við höfum ekki náð að sinna því nógu vel og öll félög þurfa að taka sig á þar. Ég held líka að dómari á Íslandi sé tilbúinn í hvaða keppni sem er, það er rosaleg gagnrýni sem þeir fá. En við þurfum að fjölga góðum dóm- urum, það er alveg á hreinu.“ Spyr konuna hvort hún sé tilbúin Óskar Bjarni er kennari að mennt og starfar sem stærðfræðikennari hjá sjötta og áttunda bekk í Ölduselsskóla í Breiðholti. Hann sagði oft á tíðum erfitt að sameina það þjálfarastarfinu. „Þetta er í sjálfu sér alltof tímafrekt með annarri vinnu eins og þetta er að þróast. Það er mikið af leikjum, það eru kröfur um að við séum með skipu- lagða fundi, það þarf að klippa efni og fleira. Ég vil meina það að þjálfarastarf bæði í meistaraflokki og annars stað- ar er mikil vinna og í sjálfu sér erfitt að gera eitthvað annað með.“ Óskar er giftur Örnu Þóreyju Þor- steinsdóttur. Þau eiga saman tvo syni, þá Arnór Snæ og Benedikt Gunnar, sem báðir stunda íþróttir með yngri flokkum Vals. Óskar sagði að Arna ætti hrós skilið fyrir þolinmæði sína hvað varðar þjálfarastarfið hjá sér. „Ég held að þeir leikmennirnir og þeir sem standa mér næst viti að þetta er búið að vera gríðarlegt álag á Örnu og strákana báða. Hún á mjög mikinn heiður skilinn. Hún er keppnismann- eskja sjálf, var í fimleikum og annað, og hún hefur verið að bjóða strákun- um heim. Ég hugsa að hún hafi bara svo gam- an af þessu og er keppnismaður og án hennar þátttöku og skilnings væri þetta ekki hægt fyrir mig. Ég spyr hana alltaf eftir hvert einasta tímabil hvort hún sé tilbúin í meira. Ég held að bak- við hvern einasta þjálfara sé góður stuðningur, annars er þetta mjög erf- itt,“ sagði Óskar. Hann lék sjálfur með Val upp alla yngri flokka og var í firnasterku liði félagsins, með þá Dag Sigurðsson og Ólaf Stefánsson innanborðs. Óskar hætti þó ungur að spila og segist sjá örlítið eftir þeirri ákvörðun sinni. „Ætli sé ekki best að segja að ég hafi verið hálfgerð yngri flokka stjarna. Ég stækkaði kannski ekki mikið eft- ir fimmtán sextán ára aldur og mín- ir stærstu sigrar voru kannski tengdir yngri landsliðum og yngri flokkum. Ég ólst upp í sama flokki og Ólafur Stef- ánsson og Dagur Sigurðsson og við unnum allt sem hægt var að vinna. Ég fékk svo að koma upp í meistaraflokk- inn með Geira og Valda og þeim. Ég held að á sextán eða sautján ára aldri hafi ég hálfpartinn gefist örlítið upp, sem ég sé dálítið eftir. Mér fannst eins og ég myndi ekki ná alla leið og mig langaði rosalega að verða bestur. Ég sá fram á að verða eitthvað og fór þá að setja hugann meira í þjálfun. Ég hafði alltaf stefnt á að ná miklu lengra sem leikmaður, ég fer ekkert leynt með það. En það kannski vant- aði upp á líkamlegan burð og annað en ég hafði mjög góðan leikskilning,“ sagði Óskar en hann meiddist í kring- um 17 ára aldur og hætti alveg að spila 22 ára. Heppinn með fyrirmyndir Á samtali við Óskar er greinilegt að það er um auðugan garð að gresja þeg- ar kemur að fyrirmyndum hans í þjálf- un. „Ég var gríðarlega heppinn með þá þjálfara sem ég fékk. Það að ég byrjaði í handbolta og varð Valsari er Magnúsi Blöndal að þakka. Hann dó úr krabba- meini 24 ára gamall og hafði rosaleg áhrif á þetta félag. Hans hvatning hafði mjög mikið með það að gera að mig langaði að vinna með unglingum og börnum og langar enn í dag. Svo var ég með Theódór Guðfinns- son í átta ár sem fór með okkur í þrjár utanlandsferðir og var frábær þjálf- ari. Svo var ég með Þorbjörn Jensson. Svo komst maður alveg á réttum tíma- punkti í kynni við Boris Akbaschev, sem ég vil meina að sé besti þjálfari á séræfingum. Það var mjög gott að fá að kynnast honum og ég vann mjög náið með honum í tvö ár. Og enn í dag leita ég til hans ef maður er í vandræðum, hann er hafsjór af fróðleik. Ég vann einnig með Geira Sveins, Jóni Kristj- áns, Alfreð og Viggó, það er að segja spilaði undir Alfreð og Viggó. Þannig að maður lærir alls staðar eitthvað af öllum. Svo er nú einn sem teng- ist ekki handboltanum sem ég lærði einna mest af og það var Brynjar Karl Sigurðsson sem er með akademíuna á Selfossi. Það er einn duglegasti og hæfileikaríkasti þjálfari sem ég hef komist í kynni við. Hann fékk mig til að hugsa svolítið öðruvísi,“ sagði Óskar. Óskar þjálfaði lið Haslum í Noregi í tvö ár. „Ég fór til Noregs þegar mér fannst að Valur þyrfti aðeins að hvíla sig á mér og ég að hvíla mig á Val. Þá vildi ég ekki fara í annað félag hér á landi og það var mjög gott að fara til Noregs. Kristján Halldórsson (þjálf- ari Stjörnunnar) kom mér eiginlega í þetta og það voru tvö dýrmæt ár, gríð- arleg reynsla. Alltaf þegar ég set mér markmið og íhuga framtíðina, sem er alltaf gott að gera, þá leiði ég alltaf hugann meira og meira að Val. Auðvitað gæti maður fengið sér umboðsmann og farið eitt- hvað út en hér líður mér bara rosalega vel. Ég myndi vilja hafa það þannig að ég hefði það ágætt hérna og myndi vinna meira með unglingum og börn- unum hérna. Mér líst bara vel á fram- tíðina hérna. Ég held að það verði jafn gott að vinna hjá Val og annars staðar,“ sagði Óskar Bjarni að lokum. dagur@dv.is „Ég spyr hana alltaf eft- ir hvert einasta tímabil hvort hún sé tilbúin í meira. Ég held að bak- við hvern einasta þjálf- ara sé góður stuðn- ingur, annars er þetta mjög erfitt.“ Metnaðarfullur þjálfari Óskar Bjarni hætti ungur að spila og snéri sér alfarið að þjálfun 22 ára gamall.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.