Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Blaðsíða 18
Föstudagur 4. maí 200718 Helgarblað DV til þess að hugsa og gera áætlanir,“ segir �uðunn� Ný sýn á starfið Þegar �uðunn var fastur á Ís- landi í endurhæfingu eftir bílslysið fór hann að velta fyrir sér árangrin- um af hjálparstarfinu� „Þegar mað- ur lítur til baka, þá skildi uppbygg- ingin í Bosníu og Kosovo í sjálfu sér ekki mikið annað eftir sig en end- urbyggð hús og kannski einhver tækifæri, vegna þess að þarna var verið að dreifa alls lags landbún- aðartækjum og jafnvel búpeningi� Þessi vinna hafði sennilega engin áhrif á hugarfarið, hvað þá stjórn- sýsluna� Við vorum farin að huga að því að kannski hefði okkur sést yfir þessa þætti,“ segir hann� Hann var þegar í samræðum við Sænsku þróunarsamvinnustofnun- ina um að þróa verkefni sem hefði aðra nálgun og önnur markmið en þau sem unnin höfðu verið fram að þessu� SID� ræddi við Lútherska heimssambandið um að �uðunn myndi leiða fleiri verkefni á Balk- anskaga, en þær viðræður báru ekki árangur og á endanum leituðu Svíarnir eftir því að �uðunn kæmi á fót eigin stofnun sem sæi um að ráðstafa fé frá SID�� „Á meðan ég var heima í endur- hæfingunni var ég farinn að vinna í því að koma minni eigin stofnun á fót� Ég fékk sænska stofnun í lið með mér til þess að veita mér eins konar skjól til þess að koma þessu í gang� Síðan unnum við að því að skrá okkar eigin stofnun�“ Upp úr þessu spratt PEP Inter- national, stofnun �uðuns og Sig- urjónu� „Við byrjuðum strax í upp- hafi árs 2001 og komum hingað til Makedóníu í janúar� Það ár settum við upp skrifstofur bæði í �lban- íu og í Ohrid í Makedóníu� Það ár fór nánast einungis í rannóknar- og undirbúningsvinnu,“ segir �uð- unn� Vitundarvakning í stað peninga PEP International hófst handa með því að koma á fót hvatning- arsjóði sem hafði um 400 þúsund evrur til úthlutunar á þriggja ára tímabili� „Engu að síður fórum við að efast um að almennar lausnir á borð við sjóði og peningagjafir virk- uðu nægilega vel� Því fórum við að stinga upp á því að réttast væri að draga úr mikilvægi þessara fjár- framlaga og auka verulega á nokk- urs konar vitundarvakningu�“ Þessi hugmyndafræði mætti talsverðri andstöðu í upphafi, enda höfðu þorpshöfðingjar og sveitar- stjórar gjarnan lagt fram einhvers konar innkaupalista til hjálparstofn- ananna� Það segir �uðunn hafa ver- ið orðna viðtekna venju� „Við ákváðum samt að halda þessu til streitu og drógum úr fjár- framlögunum alveg niður í það að hvert þorp gat sótt um framlag, að gefnu ákveðnu ferli, sem svar- ar fimm þúsund evrum� Þetta var gegn ákveðnu mótframlagi af þeirra eigin hálfu� Þau urðu að leggja sjálf fram bæði peninga og vinnu� Marg- ir efuðust og sögðu að þetta myndi aldrei ganga� Þetta hefur hins vegar gengið mjög vel þegar upp er stað- ið� Við erum meira að segja alveg hætt öllum peningagjöfum í dag og erum á staðnum til ráðgjafar og að- stoðar�“ Svipað og heima �uðunn segir að við margs kon- ar vandamál hafi verið að glíma� Meðal annars hafi vantraust manna á milli verið mikið og allra síst hafi fólk treyst yfirvöldum til þess að fara með almannafé� „Við höfum reynt að auka gagn- sæið í stjórnsýslunni hjá þeim sveit- arstjórnum sem við höfum verið að vinna með� Það er alveg ný reynsla hjá þessu fólki að sjá samheng- ið á milli gagnsærrar stjórnsýslu, þess að dreifa upplýsingum og gera þær aðgengilegar fyrir borgarana, og breyttra viðhorfa borgaranna� Menn eru farnir að sjá að fólk met- ur stjórnvöld betur og er jákvæðara í garð þeirra,“ segir hann� PEP International hefur að þessu leyti unnið sem ráðgjafi og viðræðu- aðili� Stofnunin hefur boðið sveitar- stjórnunum upp á fundaaðstöðu og aðgang að tölvubúnaði og þess háttar� „Sveitarfélögin hér eru mörg hver á svipuðum slóðum og íslensk sveit- arfélög voru á fyrir á að giska tuttugu árum� Hér er þó í dag ekkert sveit- arfélag með færri en fimm þúsund íbúum� Þessi fimm þúsund manna sveitarfélög hér eru í svipaðri stöðu og Súðavík var sem 250 manna sveit- arfélag þegar ég var þar sveitarstjóri árið 1980,“ segi �uðunn� Hann segist oft verða var við það viðhorf að í Makedóníu geti hlutirn- ir aldrei orðið í lagi� Hann segist þá nota samlíkinguna við Ísland� „Þeg- ar ég var krakki, þá vorum við að �rijana Foric gekk til liðs við �uðun Bjarna Ólafsson og teymi hans í Bosníu árið 1998� Hún seg- ir ástandið þá hafa verið ólýsanlega erfitt� Gríðarleg eyðilegging hafi blasað við og ekki hafi séð fyrir end- ann á þeirri mannlegu eymd sem fylgdi stríði sem enginn skildi� DV ræddi við �rijönu á hátíð sem haldin var í þorpinu Sanski Most í Bosníu í tilefni þess að tíu ár eru liðin frá því að Lútherska heimssambandið og Sænska þró- unarsavinnustofnunin hófu upp- byggingu á svæðinu undir stjórn �uðuns Bjarna� Sorg og vonleysi �rijana segist ekki hafa skilið stöðuna til fulls þegar hún kom til Sanski Most árið 1998� „Ég fædd- ist í bæ sem er aðeins í þrjátíu kíló- metra fjarlægð frá Sanski Most, en var alin upp í Zagreb� Stríðið náði aldrei til Zagreb með sama hætti og það náði til þessara svæða hér í sveitinni� Þegar ég sá gamla fæð- ingarbæinn minn, þá stóðu engin hús lengur,“ segir hún� �rijana segist hafa verið ung og reynslulaus á þessum tíma� Við henni hafi blasað botnlaus fátækt, sorg og vonleysi� „Það er sennilega erfitt fyrir fólk sem aðeins hefur fylgst með stríðinu í kvöldfréttun- um að setja sig inn í þetta andrúms- loft, en málið er að það var jafnvel erfitt fyrir mig sem samt er alin hér upp og var hér allan tímann�“ Fyrsti hugrakki maðurinn Þegar hún er spurð um �uðun og starf hans, þá telur hún að fyrst og fremst sé hann mjög hugrakk- ur maður� „�uðunn reyndi að sjá heildarmyndina og átta sig á því hvað væru viðkvæmustu staðirnir og hvar mikilvægast væri að byrja aðstoðina� Eftir á að hyggja, þá þyk- ir mér vel hafa tekist til miðað við að þetta voru ákaflega erfiðir tím- ar og það virtist ógerningur að átta sig á því hvernig væri best að vinna þetta� Í þessum skilningi vann �uð- unn mikið verk og gott� Hann fór sjálfur inn á svæðin til þess að átta sig á aðstæðum í stað þess að reiða sig á upplýsingar frá öðrum� Hann vildi sjá þetta sjálfur� Hann var fyrsti hugrakki útlendingurinn sem kom hingað til þess að vinna hjálpar- starf,“ segir hún� Að geta ekki hjálpað Sárast var, að mati �rijönu, að átta sig á því í fyrstu hve margir þurftu á aðstoð að halda� „Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því að þess- ir hlutir gætu átt sér stað� Það voru svo margir sem þurftu á hjálp að halda og að sjálfsögðu gat maður ekki veitt alla þá hjálp sem þurfti� Ég gat aðeins hjálpað litlum hluta� Það var líka ansi erfitt að átta sig á því að af hverjum eitt hundr- að manneskjum gat maður aðeins hjálpað tíu� Þau þurftu öll á sams konar hjálp að halda� Stundum þakka ég æðri máttarvöldum fyrir það að aðstoðin skuli hafa haldið áfram� Þegar ég kem aftur í gamla bæinn minn í dag, þá er búið að endurbyggja nánast öll húsin� Það er eins og nýr bær�“ Með stolti „Ég veit hreinlega ekki hvort það var hollt fyrir mig að fyrsti yfirmað- ur minn skyldi vera svona góður� Hann fór alltaf með okkur eins og við værum fjölskyldan hans� En ég myndi aldrei kvarta,“ segir �rijana og hlær við� Hún kveðst stolt af því að hafa fengið tækifæri til þess að vinna með �uðuni� „Jafnvel þó að sam- félagið sé ekki nákvæmlega eins og það var áður en átökin brutust út, og getur sennilega aldrei orðið, þá hefur svo mikið áunnist og það er ekki hægt annað en að finna til stolts þegar maður lítur yfir farinn veg�“ sigtryggur@dv.is Arijana Foric starfaði með Auðuni Bjarna Ólafssyni og Lútherska heimssambandinu að uppbyggingu í Sanski Most í Bosníu. Hún segir Auðun hafa verið fyrsta hugrakka hjálpar- starfsmanninn sem kom inn á átakasvæðin. Þar hafi ríkt fá- tækt, sorg og vonleysi. FYRSTI HUGRAKKI STARFSMAÐURINN Sprengjuregn í Albaníu albanskir borgarar virða fyrir sér ónýtt þakið á híbýlum sínum í borginni Neprosteno. stór hluti af starfi auðunns fólst í því að endurbyggja, skemmd og brunnin hús á Balkanskaga og undirbúa bæjarfélögin fyrir endurkomu íbúa sem höfðu hrakist á vergang. sumir bjuggu í flóttamannabúðum, aðrir í tjöldum við þröngan kost í landi þar sem kuldi nær 30 stigum að vetri. Morgunfundur hjá PEP starfsfólk PEP í Bitola í makedóníu hittist á skrifstofunni að morgni dags. Þar er verkefnum dagsins deilt út. síðan skiptist liðið og heldur út í þorpin þar sem unnið er í samstarfi við þorpshöfðingja, sveitarstjórnir og nefndir við að ná settum markmiðum í stjórnsýslunni. mikil áhersla hefur verið lögð á að hafa stjórnsýsluna gagnsæja til þess að byggja upp traust borgaranna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.