Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Page 19
kljúfa okkur út úr skömmtunarkerf- inu og það var stórmál að reyna að fá gjaldeyri, til dæmis.“ Óráðin framtíð Nú sér fyrir endann á verkefn- um Auðuns, Sigurjónu og starfsliðs þeirra á Balkanskaga. Verkefni þeirra fyrir SIDA standa út septembermán- uð og eftir það er framtíðin að mestu óráðin. „Við höfum þegar feng- ið beiðni um að færa þessa vinnu upp á næsta stjórnsýslustig, það er að segja að vera milligönguaðili og stýra samskiptum á milli samtaka sveitarfélaga og ráðuneytanna.“ Auðunn segir að enginn botn sé þó kominn í framtíð starfseminnar og þá vitanlega framtíð þeirra hjóna. sú aðferð sem þau hafa beitt í þróun- araðstoð er ný af nálinni og miklar líkur eru á að áhugi verði fyrir því að fara í sams konar starf á öðrum víg- stöðvum. „Við þurfum að selja þessa hugmynd einhverjum sem eru til- búnir að fjármagna þetta starf. Það þarf ekkert endilega að vera Sænska þróunarsamvinnustofnunin, það gæti orðið hvaða stofnun eða sam- tök sem er,“ segir Auðunn. Sænska þróunarsamvinnustofn- unin er aðili að þessu starfi PEP Int- ernational og samkomulag er um að stofnanirnar eigi aðferðafræðina að jöfnum hlut. „Ef ekkert verður úr áframhaldandi samstarfi með SIDA, þá tek ég náttúrulega þetta konsept og sel það áfram. Í öllu ferlinu höf- um við spurt sjálf okkur hvernig við myndum gera sams konar vinnu á öðrum stöðum þar sem aðstæðurn- ar eru öðruvísi. Þannig höfum við óbeint undirbúið okkur undir það að fara með þetta prógramm eitt- hvert annað.“ En skyldi ekki vera kominn tími til þess að hætta flakkinu og koma heim? „Fólk hefur oft spurt okkur að þessu og jafnvel í þeim dúr að við þyrftum að fara að hætta þess- ari vitleysu og gera eitthvað af viti. Ég hef alla tíð kosið að líta á þetta sem vinnu, frekar en eitthvert hjálp- arstarf eða þess háttar. Við eigum heimili á Íslandi sem við notum þeg- ar við erum þar og komum þangað reglulega. Svona er bara lífið.“ sigtryggur@dv.is DV Helgarblað Föstudagur 4. maí 2007 19 FYRSTI HUGRAKKI STARFSMAÐURINN „Það er sennilega erfitt fyrir fólk sem aðeins hefur fylgst með stríð- inu í kvöldfréttunum að setja sig inn í þetta and- rúmsloft, en málið er að það var jafnvel erfitt fyrir mig sem samt er alin hér upp og var hér allan tímann.“ Arijana Foric arijana gekk til liðs við teymi auðuns Bjarna Ólafssonar árið 1998. Hún segir að mjög erfitt hafi verið að horfa upp á alla eyðilegginguna sem hlaust af styrjöldinni og erfitt hafi verið að átta sig á því hvar ætti að byrja. auðunn hafi þó óhræddur farið inn á viðkvæmustu svæðin til þess að átta sig á veruleikan- um. Endurbyggt þorpið Þorpið Hamabar- ine í nágrenni sanski most í Bosníu er eitt þeirra fjölmörgu þorpa sem auðunn Bjarni vann að því að endurbyggja. Húsin voru ekki eina vandamálið sem blasti við því að oft á tíðum tilheyrðu íbúarnir minnihlutahópum sem voru síður en svo velkomnir heim til sín. Því þurfti að beita samningum og fortölum til þess að þessir fólksflutningar færu friðsamlega fram. 44° 44° 42° 46° 46° 42° 18°16°14° 20° 22° 22°20°18°16°14° Svartfjal laland Í t a l í R ú m e n í a A l b a n í a A u s t u r í k i G r i k k l a n d B ú l g a r í a S A N M A R I N O S l ó v e n í a K r ó a t í a U n g v e r j a l a n d B o s n í a o g H e r z e g ó v í n a S e r b í a Makedónía K O S O V O Fyrrum Júgóslavía starfsemi PEP International, stofnunar auðuns Bjarna, hefur náð vítt og breitt um Balkanskaga. Fyrstu árin fóru í að endurbyggja húsnæði fyrir fólk sem lent hafði á vergangi vegna stríðsátaka. síðustu ár hefur starfið aðallega verið í makedóníu og albaníu, þar sem stofnunin hefur beint sjónum að lýðræðislegri framkvæmd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.